• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Sheffield United

Enska bikarkeppnin

Manchester United 1:0 Sheffield United

Sigurjón skrifaði þann 9. janúar, 2016 | 22 ummæli

Manchester United er komið áfram í 4. umferð FA bikarins eftir 1-0 sigur á Old Trafford í dag. Rennum yfir helstu atriði leiksins. Liðið í dag var svona skipað:

De Gea
B-Jackson
Blind
Smalling
Darmian
Schweinsteiger
Fellaini
Martial
Herrera
Mata
Rooney

Varamenn: Romero, McNair, Varela, Lingard (60), Pereira (78), Memphis (60), Keane.

Leikurinn var flautaður á klukkan 17:30. Á 45 mínútu flautaði dómarinn til háfleiks. Á 60 mínútu gerði Man Utd tvöfalda skiptingu þegar Memphis og Lingard komu inn fyrir Mata og Herrera. Á 78 mínútu kom svo Pereira inn fyrir Fellaini. Á 93 mínútu rennir Dean Hammond sér í glórulausa tæklingu á Memphis inn í teignum og úr því varð vítaspyrna sem Rooney skoraði örugglega úr. Leikurinn var svo flautaður af eftir 96 mínútur. Lesa meira

Efnisorð: Leikskýrslur Sheffield United 22
Enska bikarkeppnin

Bikarævintýrið hefst á morgun

Runólfur Trausti skrifaði þann 8. janúar, 2016 | 2 ummæli

Á morgun, klukkan 17:30 kemur Sheffield United í heimsókn á Old Trafford.

Mótherjinn
Sheffield United situr í 8. sæti af 24 liðum í League 1 með 36 stig. League 1 er þriðja efsta deild Englands. Þeir töpuðu síðasta deildarleik sínum, 3-2 á heimavelli gegn Peterborough United. Á leið sinni til Old Trafford hefur hefur Sheffield United unnið Worchester og Oldham Athletic.

Það eru ekki margir leikmenn í Sheffield United sem hinir hefðbundnu áhorfendur enska boltans þekkja en fyrrum Derby mennirnir James McEveley og Conor Sammon spiluðu einu sinni ef ekki tvisvar gegn United á sínum tíma. Svo eru leikmenn á borð við Billy Sharp, David Edgar, Chris Basham og Jose Baxter sem menn gætu kannast við. Annars er þetta lið mest byggt á klassískum breskum kjarna sem einkennir flest neðri deildar lið Englands. Lesa meira

Efnisorð: Leikskýrslur Sheffield United Upphitun 2
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Page 2

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • binance account um 96. þáttur – Vörn, miðja, kantur eða sókn? Hvaða staða þarfnast mest styrkingar?
  • Vivod iz zapoya na domy_vmKt um Jóla jóla jólaleikur á morgun
  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • Arni um Liðið í Manchester slagnum
  • Helgi P um Liðið í Manchester slagnum

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress