• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Skýringarmyndir

Slúður

Breidd eða gæði. Hvort skal velja?

Björn Friðgeir skrifaði þann 1. júlí, 2017 | 15 ummæli

Nú þegar fyrsti júlí rennur upp er leikmannaglugginn opinberlega opinn og United er búið að kaupa einn leikmann af þeim fjórum sem búist er við að liðið kaupi. Leikmenn mæta aftur til æfinga á laugardaginn næsta, 8. júlí og fljúga til Bandaríkjanna daginn eftir. Eitt af því sem gengið hefur verið frá sem vísu er að José Mourinho hafi lagt fyrir Ed Woodward að ganga frá kaupum fyrir þann tíma til að nýir leikmenn yrðu með frá upphafi undirbúnings. Lesa meira

Efnisorð: Alvaro Morata Ivan Perisic Nemanja Matic Skýringarmyndir Taktík Victor Lindelöf 15
Mánudagspælingar

Mánudagspælingar 2015:08

Tryggvi Páll skrifaði þann 10. ágúst, 2015 | 11 ummæli

Tímabilið er formlega hafið og því tímabært að fara af stað með Mánudagspælingarnar sem verða vonandi fastur liður hjá okkur í vetur. Í þetta skipti snúast pælingarnar um leikform leikmanna, smá tölfræði og ástæður þess að David de Gea sat uppi í stúku.

Leikform?

Ég missti af leiknum á laugardaginn gegn Tottenham en fylgdist þó með samfélagsmiðlunum meðan á leik stóð. Sú mynd sem ég fékk af leiknum þar var frekar neikvæð og ég bjóst því að ég væri að fara að horfa á einhverja hörmung þegar ég horfði á leikinn í endursýningu í gær. Lesa meira

Efnisorð: David de Gea Skýringarmyndir 11
Mánudagspælingar

Mánudagspælingar 2015:07

Björn Friðgeir skrifaði þann 11. maí, 2015 | 1 ummæli

Í síðustu viku vorum við eðlilega að velta fyrir okkur slæmu gengi liðsins í síðustu þrem leikjum.
Tryggvi skoðaði færasköpun og Fellaini á mánudaginn og í hlaðvarpinu á þriðjudaginn ræddum við það sem og mikilvægi Carrick fyrir liðið.

Leikurinn á laugardaginn var aðeins skárri en mörkin komu úr kunnuglegum áttum. Juan Mata skoraði sitt fjórða mark í deild á árinu, að þessu sinni úr víti, og leikmennirnir tveir sem sýnt hafa mestar framfarir í vetur bjuggu til seinna markið, Young gaf fyrir og Fellani skoraði líka sitt fjórða mark á árinu. Lesa meira

Efnisorð: Skýringarmyndir Taktík 1
Mánudagspælingar

Mánudagspælingar 2015:06

Tryggvi Páll skrifaði þann 4. maí, 2015 | 2 ummæli

Hlutirnir eru fljótir að breytast í ensku úrvalsdeildinni. Eftir sannfærandi sigra á Spurs, Liverpool og City var Louis van Gaal frelsarinn sjálfur en í dag, eftir þrjá tapleiki í röð[footnote]Í fyrsta sinn síðan 2001 en þá hafði United þegar tryggt sér titilinn.[/footnote], er farið að glitta í #VanGaalOut merkið á Twitter á nýjan leik. Það er auðvitað fjarstæðukennt að ætla sér að losa sig við stjórann á þessum tímapunkti enda er félagið við það að ná markmiðum sínum fyrir þetta tímabil: Meistaradeildarbolti á Old Trafford 2015/2016. Það er þó ekki efni þessa pistils heldur langar mig að tala aðeins um færanýtingu og færasköpun. Lesa meira

Efnisorð: Marouane Fellaini Skýringarmyndir Taktík 2
Mánudagspælingar

Mánudagspælingar 2015:05

Tryggvi Páll skrifaði þann 27. apríl, 2015 | 7 ummæli

Eftir gott gengi undafarnar vikur var alveg hroðalegt að sjá andleysið sem einkenndi spilamennsku United í gær. Mér fannst liðið reyndar byrja þennan leik ágætlega þrátt fyrir að lenda marki undir snemma leiks. Seinna mark Everton drap hinsvegar allan lífsvilja United-manna og lélegasta frammistaða liðsins undir stjórn Louis van Gaal leit dagsins ljós í gær. Þetta tap hleypir örlítilli spennu í baráttuna um Meistaradeildarsætið þó að niðurstaða hennar sé ennþá fyllilega í höndum okkar manna. Lesa meira

Efnisorð: Daley Blind David de Gea Jorge Mendes Michael Carrick Skýringarmyndir Taktík 7
  • Page 1
  • Page 2
  • Page 3
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Michelsen Tag Heuer er styrktaraðili Rauðu djöflanna

Síðustu ummæli

  • Steve Bruce um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Halldór Marteins um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Sveinn um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Halldór Marteins um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Sveinn um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2025 · Keyrt á WordPress