• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Skýringarmyndir

Enska úrvalsdeildin

Leicester City – Old Trafford – Laugardagur.

Tryggvi Páll skrifaði þann 30. janúar, 2015 | 6 ummæli

Við eigum harma að hefna gegn Leicester sem eru að koma á Old Trafford á morgun. Við máttum þola alveg sérstaklega óþolandi tap gegn þeim í fyrri leik þessara liða. Leikurinn var spilaður 21. september og var annar leikurinn sem liðið spilaði eftir lokun sumargluggans. Hinn leikurinn var gegn QPR þar sem liðið sundurspilaði máttlaust lið QPR og vann 4-0. Eftir brösuga byrjun á tímabilinu vonaði maður því að framtíðin yrði eins og QPR-leikurinn. Öll sumarkaupin komin í hús, allt klárt. Lesa meira

Efnisorð: Leicester City Skýringarmyndir Upphitun 6
Pistlar

Stigapælingar

Tryggvi Páll skrifaði þann 21. ágúst, 2014 | 7 ummæli

Nú eru ekki nema rétt tæplega tvær vikur í að félagskiptaglugginn lokar. Woodward og Glazerarnir hafa rétt tæplega tvær vikur til þess að vinna vinnuna sína svo að Louis van Gaal geti unnið vinnuna sína. Hvað er vinnan hans? Að ná titlinum til baka en fyrsta skrefið í átt að því er að koma liðinu í Meistaradeildina á nýjan leik. Það er verkefni tímabilsins.

Hvað þurfa Louis van Gaal og leikmenn liðsins að gera til þess að ná því? Fjórða sætið er lágmark. Það er alveg sama hvað David Moyes reynir að verja sig, hann klikkaði á öllum markmiðum tímabilsins og skilaði í hús lélegustu titilvörn síðustu ára. 7. sæti. 64 stig. Lesa meira

Efnisorð: Skýringarmyndir 7
Enska úrvalsdeildin

Manchester-slagurinn

Tryggvi Páll skrifaði þann 24. mars, 2014 | 11 ummæli

Framundan er slagurinn um Manchester-borg. Á morgun mætast sigurvegarar siðustu tveggja tímabila Úrvalsdeildarinnar á Old Trafford. Það er auðvitað frekar óvenjulegt að svona leikur sé settur á þriðjudag en upphaflega átti hann að fara fram 1. mars en finna þurfti nýja dagsetningu eftir að City komst í úrslitaleik deildarbikarsins. Undir venjulegum kringumstæðum væri þetta lykilleikur í titilbaráttunni en það er ekkert venjulegt við þetta tímabil fyrir okkur sem halda með Manchester United. Lesa meira

Efnisorð: Manchester City Skýringarmyndir Upphitun 11
Slúður

Góðu fréttunum rignir inn

Tryggvi Páll skrifaði þann 9. janúar, 2014 | 21 ummæli

Já, það er ekkert nema jákvæðir straumar sem streyma frá Old Trafford þessa dagana.

Chris Smalling tók þá upplýstu ákvörðun um að klæða sig upp sem sjálfsmorðsprengjumaður í búningapartý á dögunum. „Blaðamenn“ The Sun voru auðvitað ekki lengi að komast að þessu og birtu þetta á forsíðu blaðsins. Smalling var snöggur að biðjast afsökunar á þessu og sagði þetta misheppnað grín, hann hafi ætlað að þykjast vera svokölluð Jäger-Bomb. Fallega gert hjá honum að taka sviðsljósið af Moyes í smástund. Lesa meira

Efnisorð: David Moyes Skýringarmyndir 21
Pistlar

Hvaðan koma þeir leikmenn sem spilað hafa fyrir United? Opinn þráður

Tryggvi Páll skrifaði þann 11. október, 2013 | 19 ummæli

Svona fyrst það er landsleikjahlé og ekkert að gera dunduðum við okkur við að búa til svona skemmtilega skýringarmynd um þjóðerni þeirra leikmanna sem spilað hafa einn eða fleiri keppnisleik fyrir United. Annars er þetta opinn þráður þannig að ef ykkur liggur eitthvað sérstakt á hjarta má demba því hérna inn.

Áfram Ísland!

Infographics
Efnisorð: Skýringarmyndir 19
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Page 2
  • Page 3

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • Snjómaðurinn um Liðið í Manchester slagnum
  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • binance account um 96. þáttur – Vörn, miðja, kantur eða sókn? Hvaða staða þarfnast mest styrkingar?
  • Vivod iz zapoya na domy_vmKt um Jóla jóla jólaleikur á morgun

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress