• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Tottenham Hotspur

Enska úrvalsdeildin

Manchester United 2:3 Tottenham

Sigurjón skrifaði þann 29. september, 2012 | 20 ummæli

Jæja, fyrsti sigur Tottenham á Old Trafford síðan 1989 staðreynd. Ekki alveg það sem ég bjóst við, reyndi að vera bjartsýnn á að United myndi koma ferskir til leiks og vinna frekar sannfærandi sigur. Hinsvegar voru það 45 mínútur af hörmulegum fótbolta Manchester United í fyrri hálfleik skóp sigur Tottenham í leiknum. Þrátt fyrir að halda alltaf í vonina var ég nánast búinn að sætta mig við tap í hálfleik, þú getur ekki gefið Tottenham tvö mörk með þessum hætti. Í seinni hálfleik spilaði liðið svo frábærlega og í lok leiksins er ég vonsvikinn að hafa ekki a.m.k. fengið eitt stig út úr leiknum. Dómar í óhag, skot í stöng og slá, nokkur dauðafæri, einn af þessum dögum býst ég við. Við skulum hinsvegar byrja á byrjuninni og skoða liðin. Lesa meira

Efnisorð: Leikskýrslur Tottenham Hotspur 20
Enska úrvalsdeildin

Byrjunarliðið gegn Tottenham

Sigurjón skrifaði þann 29. september, 2012 | 12 ummæli

Jæja, þá er stjórinn búinn að koma með sýna útgáfu af byrjunarliðinu. Skoðum hvað hann leggur til.

Lindegaard

Rafael Evans Ferdinand Evra

Nani Scholes Carrick Giggs

Kagawa

Van Persie

Bekkur: De Gea, Anderson, Rooney, Hernandez, Welbeck, Cleverley, Wootton

Jæja, ekki alveg eins og ég spáði, en samt sem áður ekkert sem kemur á óvart, nema kannski að það er smá útfærslubreyting á kerfinu. Virðast ætla að spila meira 4-4-1-1, mér lýst bara vel á það! Markverðirnir halda áfram að skiptast á, þeir gömlu halda sínum sætum, Rooney kemur ekki inn eins og ég hafði spáð (og vonað) og Nani er á sínum stað þrátt fyrir vandræði hans í vikunni. Kannski hefur Ferguson ekki aðra möguleika varðandi Nani, fyrst Valencia og Young eru meiddir, en það voru sögur á kreiki þess efnis að stjórinn hafi verið brjálaður yfir því að Nani hafi slegið Petrucci á æfingarsvæðinu í vikunni.  Ef öll sú saga reynist rétt, þá er Nani ekki refsað fyrir það, allavega eins og er. Lesa meira

Efnisorð: Liðsuppstilling Tottenham Hotspur 12
Enska úrvalsdeildin

Tottenham á Old Trafford á morgun

Sigurjón skrifaði þann 28. september, 2012 | 12 ummæli

Það er í nægu að snúast þessa dagana fyrir okkur United menn, leikjaplanið er ansi þétt og núna er komið að því að leika við Tottenham í deildinni  á Old Trafford. Leikurinn fer fram á morgun (laugardag) klukkan 16:30. Liðinu hefur gengið afskaplega vel gegn Tottenham undanfarin ár, í síðustu 20 leikjum á Old Trafford hefur Man Utd aldrei tapað, hafa unnið 17 leiki, gert 3 jafntefli og markatalan er 42 mörk gegn 8. Tottenham eru með mjög sterkt lið og auðvitað nýjan þjálfara. Villas-Boas reið kannski ekki feitum hesti gegn United þegar hann var með Chelsea en hver veit, kannski hefur hann lært eitt og annað síðan þá og kannski hentar honum betur að mæta á Old Trafford sem lítilmagninn. Ó vangaveltur. Lesa meira

Efnisorð: Tottenham Hotspur Upphitun 12
Mótherji mælir Viðtöl

Mótherjinn mælir: Birgir formaður íslenska Tottenham klúbbsins

ellioman skrifaði þann 27. september, 2012 | 17 ummæli

Þá er komið að annarri útgáfu af „Mótherjinn mælir“. Á laugardaginn fær United Tottenham Hotspurs í heimsókn á Old Trafford og því við hæfi að fá einhvern dyggan Spurs stuðningsmann í viðtal til okkar. Við höfðum samband við íslenska Tottenham klúbbinn og var formaðurinn, Birgir Ólafsson, tilbúinn til að svara nokkrum spurningum fyrir okkur og gefa okkur smá innsýn inn í hugarheim Tottenham stuðningsmanna og því sem við megum eiga von á. Lesa meira

Efnisorð: Tottenham Hotspur 17
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Interim pages omitted …
  • Page 4
  • Page 5
  • Page 6

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • binance account um 96. þáttur – Vörn, miðja, kantur eða sókn? Hvaða staða þarfnast mest styrkingar?
  • Vivod iz zapoya na domy_vmKt um Jóla jóla jólaleikur á morgun
  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • Arni um Liðið í Manchester slagnum

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress