• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Upphitun

Meistaradeild Evrópu

PSG annað kvöld

Magnús Þór skrifaði þann 19. október, 2020 | 1 ummæli

Annað kvöld hefst riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu. Manchester United snýr aftur eftir árs fjarveru. Síðasti sigurleikur United í Meistaradeildinni kom einmitt á Parc des Princes en þar fer viðureign liðanna fram annað kvöld.

PSG

Paris Saint-Germain  byrjaði tímabilið heima fyrir frekar brösluglega. Liðið byrjaði með ósannfærandi töpum en hefur verið að koma til og hefur unnið 5 leiki í röð og situr í 2. sæti Ligue 1. PSG hefur ekki bara verið verið óheppið með meiðsli leikmanna heldur voru líka að koma upp Covid smit í hópnum. Síðasti leikur liðsins var sannfærandi 0:4 sigur á Nimes á útivelli. Lesa meira

Efnisorð: Meistaradeild Evrópu PSG Upphitun 1
Enska deildarbikarkeppnin

Manchester United heimsækir Luton Town

Magnús Þór skrifaði þann 22. september, 2020 | Engin ummæli

Í kvöld fer fram viðureign Luton Town og Manchester United í þriðju umferð Carabao bikarsins. Á þessum Covid tímum voru margir og undirritaður einnig á því að þessari keppni mætti einfaldlega sleppa vegna mikils leikjaálags. Sú leið var ekki farin og því fáum við leik í kvöld á Kenilworth Road.

Ole Gunnar Solskjær var búinn að gefa það út að Dean Henderson muni standa á milli stanganna í kvöld og verður það spennandi að sjá. Einnig verða menn hvíldir sem spiluðu um helgina og einhverjir munu fá sénsinn á að koma sér í stand. Engin ný meiðsli eru í hópnum sem er gott að heyra. Eftir afspyrnu lélega frammistöðu á laugardaginn þá er ágætt að fá þennan leik til hjálpa liðinu að fá smá leikæfingu enda undirbúningstímabilið ekkert . Spurningin hverjir munu byrja þennan leik og hallast ég að þessu liði: Lesa meira

Efnisorð: Upphitun 0
Enska bikarkeppnin

Manchester United mætir Chelsea

Magnús Þór skrifaði þann 18. júlí, 2020 | 1 ummæli

Manchester United mætir Chelsea á Wembley í seinni undanúrslitaleik ensku bikarkeppninnar á morgun. Þetta verður fjórða viðureign liðanna í vetur en United hefur unnið hina þrjá leikina sem voru deildarleikir og leikur í deildarbikarnum. En þetta er bikarkeppnin og þar skipta fyrri viðureignir eða staða liðanna engu máli, það eina sem skiptir máli er þessi leikur framundan. United liðið hefur staðið sig mjög vel síðan Pogba og Rashford komu aftur inn í liðið í sumar og það að liðið geti eigi enn möguleika á tveimur titlum er frábært. Lesa meira

Efnisorð: Chelsea Upphitun 1
Enska bikarkeppnin

Manchester United heimsækir Derby County

Magnús Þór skrifaði þann 4. mars, 2020 | Engin ummæli

Á morgun fer fram síðasti leikur 16-liða úrslita FA bikarsins. Wayne Rooney og félagar hans í Derby taka þá á móti Manchester United. Gengi Derby í Championship deildinni hefur ekki verið alltof gott en liðið situr nú í 13. sæti og er 8 stigum frá umspilssæti. Wayne Rooney gekk til liðs við Derby í janúar glugganum og hefur staðið sig þokkalega. Rooney hefur spilað 14 leiki í öllum keppnum og skorað í þeim 4 mörk og lagt upp 2. Lesa meira

Efnisorð: Derby County Upphitun 0
Enska úrvalsdeildin

Manchester United fer til Stamford Bridge

Magnús Þór skrifaði þann 16. febrúar, 2020 | 6 ummæli

Annað kvöld fer fram þriðja viðureign Manchester United og Chelsea. Fyrsti leikur liðanna tímabilinu fór fram á Old Trafford þar sem United sigraði 4:0 og gaf stuðningsfólki falska von um tímabilið framundan.

Gengi liðanna hefur verið ólíkt frá því. Chelsea er meira og minna búið að sitja í 4. sæti deildarinnar þrátt fyrir næg tækifæri fyrir United að saxa almennilega á forystuna. Svo slæmt hefur þetta verið í síðustu umferðum að United situr nú í 9. sæti og er sex stigum á eftir Chelsea og  fimm stigum á eftir Tottenham sem læddist í dag uppí 5. sætið. Sigur á morgun er lífsnauðsynlegur sérstaklega ljósi þess að möguleiki er á því að 5. sætið gefi sæti í Meistaradeild Evrópu í kjölfar dóms UEFA á Manchester City. En það koma fljótlega í ljós. Lesa meira

Efnisorð: Chelsea Upphitun 6
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Page 2
  • Page 3
  • Page 4
  • Page 5
  • Interim pages omitted …
  • Page 71
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • binance account um 96. þáttur – Vörn, miðja, kantur eða sókn? Hvaða staða þarfnast mest styrkingar?
  • Vivod iz zapoya na domy_vmKt um Jóla jóla jólaleikur á morgun
  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • Arni um Liðið í Manchester slagnum

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress