• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Watford

Enska úrvalsdeildin

United tekur á móti Watford

Magnús Þór skrifaði þann 29. mars, 2019 | Engin ummæli

Baráttan um sæti í Meistaradeild Evrópu heldur áfram á morgun. Manchester United tekur á móti Watford sem er búið að eiga fínt tímabil en liðið situr í 8. sæti ensku úrvalsdeildarinnar og eru aðeins stigi á eftir Wolves. Síðast þegar liðin mættust sigraði United með 1:2 þar sem Romelu Lukaku og Chris Smalling sáu um markaskorun. Watford liðið er mjög gott en hefur átt það til að drulla örlítið samanber niðurlæginguna þeirra á Anfield. Óljóst er um þáttöku þeirra Tom Cleverley, Andre Gray og Jose Holebas. United hefur tapað tveimur leikjum gegn Arsenal í deild og Wolves í enska bikarnum. Lesa meira

Efnisorð: Upphitun Watford 0
Djöflavarpið

Djöflavarpið 62. þáttur – Watford, Young Boys og Wolves

Magnús Þór skrifaði þann 20. september, 2018 | 1 ummæli

Maggi, Halldór og Björn settust niður og ræddu sigrana gegn Watford í úrvalsdeildinni og Young Boys í Meistaradeild Evrópu. Einnig var farið yfir sigra kvennaliðsins í fyrstu tveim leikjum sínum í deildarkeppni og aðeins rætt um leikina framundan.

Við viljum endilega fá ykkar álit þannig að virk þáttaka í athugasemdarkerfinu er vel þegin.

Ef við viljið senda okkur spurningar þá er það hægt á Facebook síðu Rauðu djöflanna. Lesa meira

Efnisorð: Enska úrvalsdeildin Kvennaboltinn Meistaradeild Evrópu Watford Wolves Young Boys 1
Djöflavarpið

Djöflavarpið 61.þáttur – Spurt og svarað

Magnús Þór skrifaði þann 13. september, 2018 | 1 ummæli

Maggi, Halldór og Friðrik settust niður og svöruðu spurningum frá ykkur ásamt því að hita létt upp fyrir leikinn gegn Watford á laugardaginn.

Við viljum endilega fá ykkar álit þannig að virk þáttaka í athugasemdarkerfinu er vel þegin.

Ef við viljið senda okkur spurningar þá er það hægt á Facebook síðu Rauðu djöflanna.

Hægt er að hlusta á þáttinn í spilaranum hér fyrir ofan auk þess sem hægt er að hala honum niður í gegnum spilarann eða hér að neðan. Jafnframt má gerast áskrifandi að þættinum í gegnum ýmis podkast-forrit: Lesa meira

Efnisorð: Jose Mourinho Marcus Rashford Paul Pogba Watford 1
Enska úrvalsdeildin

Manchester United 1:0 Watford

Halldór Marteins skrifaði þann 13. maí, 2018 | 4 ummæli

Þetta var 1000. leikur Manchester United í ensku úrvalsdeildinni. 500. úrvalsdeildarleikurinn á Old Trafford. Kveðjuleikur Michael Carrick og alveg mögulega kveðjuleikur fleiri leikmanna liðsins. Einn þeirra var þó óvænt fjarverandi. Anthony Martial átti að spila þennan leik, samkvæmt því sem Mourinho sagði eftir West Ham leikinn á fimmtudaginn. Svo varð þó ekki, fyrir leik bárust fréttir af því að Martial hefði mætt á svæðið og keyrt svo í burtu, væri ekki í hópnum. Það kveikti strax alls konar sögur, hvort sem það var að Martial hafi farið í fússi og ósætti við Mourinho, að ólétt kærastan hans væri á leið í fæðingu eða mögulega að hann væri meiddur. Það kom svo seinna í ljós að hann hafði meiðst á æfingu daginn fyrir leik. Lesa meira

Efnisorð: Marcus Rashford Michael Carrick Watford 4
Enska úrvalsdeildin

Watford kemur í heimsókn í lokaleik deildarinnar

Halldór Marteins skrifaði þann 12. maí, 2018 | Engin ummæli

Það hefur oft verið meira undir í lokaleik deildarinnar en er núna. Raunar er þetta einhver minnst spennandi lokaumferð í ensku úrvalsdeildinni í langan tíma, það er allt svo gott sem ráðið og bara langsóttir möguleikar á hreyfingu hvað síðasta fallsætið og 4. sæti deildarinnar snertir.

Manchester United er búið að tryggja 2. sætið, það var eiginlega aldrei í neinni alvöru hættu. Þessi leikur verður því notaður til að kveðja einn af okkar betri leikmönnum síðustu ár. Michael Carrick, fyrirliði liðsins, mun byrja þennan leik og hann mun fá heiðursskiptingu. Og það er svo sannarlega gott tilefni til að fagna. Lesa meira

Efnisorð: Michael Carrick Old Trafford Watford 0
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Page 2
  • Page 3
  • Page 4
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • Snjómaðurinn um Liðið í Manchester slagnum
  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • binance account um 96. þáttur – Vörn, miðja, kantur eða sókn? Hvaða staða þarfnast mest styrkingar?
  • Vivod iz zapoya na domy_vmKt um Jóla jóla jólaleikur á morgun

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress