• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

West Bromwich Albion

Enska úrvalsdeildin

West Brom 1:0 Manchester United

Magnús Þór skrifaði þann 6. mars, 2016 | 22 ummæli

Eftir nokkrar fínar frammistöður og jákvæð úrslit þá var liðið togað niður á jörðina aftur. Stjóratíð Louis van Gaal hefur einkennst af því að vera tvö skref áfram, eitt skref afturábak. Þegar kemur að því að leika gegn stórum liðunum þá virðist liðið eiga ansi auðvelt með að peppa sig upp og mæta rétt stemmdir til leiks. Svo eru leikirnir gegn lélegri liðunum sem allt fer til andskotans. Ef að United hefði spilað eins og ætlast er til af liðinu gegn þessum liðum þá væri liðið einfaldega þægilega á toppnum í þessari deild. Lesa meira

Efnisorð: Leikskýrslur West Bromwich Albion 22
Enska úrvalsdeildin

United heimsækir WBA

Tryggvi Páll skrifaði þann 5. mars, 2016 | Engin ummæli

Áður en lengra er haldið er rétt að staldra aðeins við og renna yfir yfirferð Runólfs á ungu leikmönnunum sem hafa verið að fá tækifæri með aðalliðinu.

Á þessu undarlega tímabili þar sem Leicester er að labba í burtu með titilinn og stórlið eins og United og Chelsea eiga í vandræðum er eitthvað ótrúlega þægilegt við það að West Bromwich Albion er bara nákvæmlega þar sem það á að vera. Í 13. sæti. Lesa meira

Efnisorð: Upphitun West Bromwich Albion 0
Enska úrvalsdeildin

Manchester United 2:0 West Bromwich Albion

Björn Friðgeir skrifaði þann 7. nóvember, 2015 | 24 ummæli

United stilti upp sama liði og á móti CSKA,

1
De Gea
5
Rojo
17
Blind
12
Smalling
18
Young
31
Bastian
16
Carrick
35
Lingard
10
Rooney
8
Mata
9
Martial

Varamenn: Romero, Borthwick-Jackson, Jones, Schneiderlin, Herrera, Pereira, Memphis.

Lið WBA:

Myhill
Brunt
Evans
McAuley
Dawson
McClean
Fletcher
Yacob
Morrison
Rondón
Sessegnon

Það kom nákvæmlega ekkert á óvart að West Brom lagðist í vörn frá fyrstu mínútu og United pressaði eftir því, svo mjög að Pulis var farinn að reyna að fá sína menn til að fara aðeins framar. Það gekk þó frekar illa og leikurinn minnti eins og margir leikir United á handboltaleik þar sem United var að leika boltanum á milli leikmanna fyrir framan vörnina. Loksins þegar kortér var liðið af leik gátu þeir loksins fundið smá glufu á vörninni og Juan Mata átti ágætis skot utan úr teig, en náði ekki að sveigja boltann nógu mikið til að hann færi réttu megin við stöngina fjær. Lesa meira

Efnisorð: West Bromwich Albion 24
Enska úrvalsdeildin

Manchester United tekur á móti West Brom rútunni

Magnús Þór skrifaði þann 6. nóvember, 2015 | 1 ummæli

Á morgun kemur í ljós hvort sigurinn á CSKA hafi kveikt í mönnum. West Brom er ekki ósvipaðan leikstíl og CSKA. Bæði liðin stilla mörgum mönnum á bakvið boltann og beita skyndisóknum.

Wayne Rooney skoraði loksins í síðasta leik eftir skemmtilega fyrirgjöf frá Jesse Lingard sem hefur óvænt verið að fá helling af tækifærum í síðustu leikjum. En ef við ræðum Rooney aðeins þá átti hann flottan leik gegn Everton á Goodison sem er eiginlega aldrei raunin en hefur svo verið frekar mikið ‘rubbish’ í öðrum leikjum. Ég velti fyrir mér hvort það muni ekki henta honum betur að hafa hraða á vængjunum og vera með Mata fyrir aftan sig. Lesa meira

Efnisorð: Upphitun West Bromwich Albion 1
Enska úrvalsdeildin

Manchester United 0:1 West Brom

Ritstjórn skrifaði þann 2. maí, 2015 | 12 ummæli

Til að byrja með vill ritstjórn votta Rio Ferdinand og fjölskyldu alla sína samúð en Rebecca Ellison, eiginkona hans, lést í nótt eftir stutta baráttu við krabbamein. Á 5. mínútu leiksins klöppuðu stuðningsmenn liðsins og sungu nafn hennar. Gífurlega vel gert hjá stuðningsmönnum liðsins. Einnig spiluðu leikmenn með svört sorgarbönd.

View image | gettyimages.com

En að leiknum, Van Gaal stillti upp þessu liði gegn lærisveinum Tony Pulis. Lesa meira

Efnisorð: Leikskýrslur Rio Ferdinand West Bromwich Albion 12
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Page 2
  • Page 3
  • Page 4
  • Page 5
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • Snjómaðurinn um Liðið í Manchester slagnum
  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • binance account um 96. þáttur – Vörn, miðja, kantur eða sókn? Hvaða staða þarfnast mest styrkingar?
  • Vivod iz zapoya na domy_vmKt um Jóla jóla jólaleikur á morgun

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress