• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

West Bromwich Albion

Enska úrvalsdeildin

Return Of the Fletch

Runólfur Trausti skrifaði þann 1. maí, 2015 | 8 ummæli

Góðan daginn dömur mínar og herrar.
Á morgun klukkan 16:30 mun Darren Fletcher, ásamt Tony Pulis, koma með lærisveina sína í W.B.A í heimsókn á Old Trafford. Eftir tvo tapleiki í röð þurfa okkar menn að rífa sig upp af rassgatinu og morgundagurinn er tilvalinn til þess.

View image | gettyimages.com

Mótherjinn
Tony Pulis og liðsmenn hans í W.B.A sitja sjö stigum fyrir ofan fallsæti með 37 stig. Samkvæmt gömlu klisjunni þá þurfa þeir því þrjú stig í viðbót til að gulltryggja veru sína í deildinni. Annað árið í röð hefur Pulis tekið við liði sem er með buxurnar á hælunum en í fyrra tók hann við Crystal Palace sem voru svo gott sem dauðadæmdir. Hann bjargaði þeim frá falli og er að gera það sama með W.B.A í ár. Tony Pulis er vissulega ekki einn þarna en í janúar fékk hann Darren Fletcher til liðs við sig. Pulis var ekki lengi að gera okkar mann að fyrirliða og er hann vægast sagt að ganga í gegnum endurnýjun lífdaga en Fletcher hefur spilað alla leiki W.B.A síðan hann flutti sig um set. Lesa meira

Efnisorð: Darren Fletcher Upphitun West Bromwich Albion 8
Enska úrvalsdeildin

WBA 2:2 Manchester United

Sigurjón skrifaði þann 20. október, 2014 | 21 ummæli

Því miður þá þarf ég að skrifa skýrslu um tvö mikilvæg stig töpuð í kvöld. Eins og leikurinn þróaðist þá ætti maður kannski bara að vera sáttur með að hafa bjargað stigi í lokin, en þetta var mjög týpískur leikur frá United, eru meira og minna að stjórna leiknum en gera sér erfitt fyrir með því að gefa mörk á silfurfati. Byrjum á liðinu, það leit svona út: Lesa meira

Efnisorð: Leikskýrslur West Bromwich Albion 21
Enska úrvalsdeildin

West Bromwich Albion annað kvöld

Sigurjón skrifaði þann 19. október, 2014 | 8 ummæli

Annað kvöld byrjar ballið aftur hjá okkar mönnum, eftir tveggja vikna landsleikjahlé, þegar United skutlar sér í tveggja tíma rútuferð til West Bromwich í úthverfi Birmingham. Þar mæta þeir heimamönnum í West Bromwich Albion á The Hawthorns vellinum. Leikurinn byrjar klukkan 19:00 og verður Mike Dean á flautunni.

Oft hefur maður nú fundist þessi landsleikjahlé frekar leiðinleg en íslenska landsliðið hefur svo sannarlega breytt því viðhorfi með árangri sínum undanfarið. Það er vonandi að United standi sig jafn vel og drengirnir okkar í landsliðinu því það er gríðarlega mikilvægt að vinna leikinn á morgun ef United ætlar að halda sér meðal þeirra bestu. Dagskráin framundan er ansi erfið því eftir leikinn á morgun á liðið leik við Chelsea (H), Man City (Ú), Crystal Palace (H) og svo Arsenal (Ú). Þó svo farið sé í hvern leik til að sigra hann, má alveg gera ráð fyrir einhverjum töpuðum stigum í þessum viðureignum, það er því mikilvægt að misstíga sig ekki gegn liðum eins og WBA og Crystal Palace. Lesa meira

Efnisorð: Upphitun West Bromwich Albion 8
Enska úrvalsdeildin

West Brom 0:3 Manchester Utd

Magnús Þór skrifaði þann 8. mars, 2014 | 22 ummæli

Þegar United vann Crystal Palace í síðustu umferð þá kveiknaði von hjá stuðningsmönnum um það væri vendipunktur á tímabilinu. Svo kom leikurinn gegn Olympiakos. En sigurgangan í deildinni hélt áfram í dag.

Þetta var ekki fallegasti fótboltaleikur tímabilsins og maðurinn með flautuna stóð sig ekki jafnvel og hann myndi vilja. Heimamenn komust upp með ansi margt, hóst, Amalfitano, hóst. En fyrsta mark leiksins leit dagsins ljós á 34. mínútu þegar Phil Jones skallaði laglega inn aukaspyrnu Robin van Persie. Staðan 0-1 fyrir United og þannig stóðu leikar í hálfleik. Lesa meira

Efnisorð: Leikskýrslur West Bromwich Albion 22
Enska úrvalsdeildin

West Brom á útivelli

Magnús Þór skrifaði þann 7. mars, 2014 | 5 ummæli

Þökk sé dapurri spilamennsku í deildarbikarnum þá höfum ekki séð Manchester United leika knattspyrnu síðan í stórleiknum gegn Olympiakos sem er samróma álit ritstjórnar síðunnar versti leikur United á tímabilinu og þá er mikið sagt. Eftir jafn andlausa og lélega spilamennsku þá er það ekki það besta að fá langt frí milli leikja. En ef þetta lið hefði snefil af sjálfstrausti og lágmarks vítaspyrnu hæfileika þá hefði það leikið í úrslitaleiknum gegn City. Lesa meira

Efnisorð: Upphitun West Bromwich Albion 5
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Page 2
  • Page 3
  • Page 4
  • Page 5
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • Snjómaðurinn um Liðið í Manchester slagnum
  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • binance account um 96. þáttur – Vörn, miðja, kantur eða sókn? Hvaða staða þarfnast mest styrkingar?
  • Vivod iz zapoya na domy_vmKt um Jóla jóla jólaleikur á morgun

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress