• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
Enska úrvalsdeildin

Manchester United tekur á móti West Brom rútunni

Magnús Þór skrifaði þann 6. nóvember, 2015 | 1 ummæli

man utd - west bromÁ morgun kemur í ljós hvort sigurinn á CSKA hafi kveikt í mönnum. West Brom er ekki ósvipaðan leikstíl og CSKA. Bæði liðin stilla mörgum mönnum á bakvið boltann og beita skyndisóknum.

Wayne Rooney skoraði loksins í síðasta leik eftir skemmtilega fyrirgjöf frá Jesse Lingard sem hefur óvænt verið að fá helling af tækifærum í síðustu leikjum. En ef við ræðum Rooney aðeins þá átti hann flottan leik gegn Everton á Goodison sem er eiginlega aldrei raunin en hefur svo verið frekar mikið ‘rubbish’ í öðrum leikjum. Ég velti fyrir mér hvort það muni ekki henta honum betur að hafa hraða á vængjunum og vera með Mata fyrir aftan sig.

View image | gettyimages.com

Samkvæmt Louis van Gaal þá er Morgan Scheiderlin búinn að vera veikur en er byrjaður að æfa aftur. Antonio Valencia er ennþá meiddur. Matteo Darmian verður hinsvegar í banni eftir að hafa safnað 5 gulum spjöldum í vetur.

Líklegt byrjunarlið (amk það sem ég vil sjá):

1
De Gea
5
Rojo
17
Blind
12
Smalling
4
Jones
16
Carrick
31
Schweinsteiger
9
Martial
8
Mata
35
Lingard
10
Rooney

West Brom sitja í 12.sæti deildarinnar sem er ekkert ósvipað öðrum liðum Tony Pulis. Ég myndi halda að liðið verði þar í kring mestallt tímabilið. Eins og við öll vitum þá leika þeir Jonny Evans, Darren Fletcher með liðinu og Anders Lindagaard hefur vermt bekkinn hjá þeim í haust.

Eins og ég minntist á áðan þá er þetta lið skipulagt og vill leggja rútunni og ekki sækja á of mörgum mönnum. Sérstaklega ekki á Old Trafford. Áhugavert er að West Brom með 6.besta árangur deildarinnar á útivöllum.

View image | gettyimages.com

Hættulegust menn liðsins eru klárlega þeir Salomon Rondon og Saido Berahino.

Ég spái því að leikurinn fari 2-1 fyrir United. Mata skorar, Berahino jafnar en Fellaini kemur inná af bekknum og skorar sigurmarkið.

Efnisorð: Upphitun West Bromwich Albion 1

Reader Interactions

Comments

  1. Bjarni Ellertsson says

    6. nóvember, 2015 at 15:52

    Vörnin má vera sú sama en ég myndi alveg eins vilja sjá 2 menn frammi, Rooney og Fellaini, láta þá djöflast í varnarmönnunum og hafa snögga menn á köntunum Martial og Lingaard til að komast upp kantinn einn á einn. Lið sem leggja rútunni gengur allt í haginn ef miðverðirnir tveir þurfa einungis að kljást við einn mann frammi og geta aðstoðað bakverðina eins og þeir vilja. það er kominn tími til að kenna Pulis smá lexíu og bulliast í þeim frá fyrstu mínútu. En annars á ég frekar von á jöfnum leik, þetta eru leiðinlegustu leikirnir að horfa á.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Primary Sidebar

Michelsen Tag Heuer er styrktaraðili Rauðu djöflanna

Síðustu ummæli

  • Steve Bruce um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Halldór Marteins um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Sveinn um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Halldór Marteins um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Sveinn um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2025 · Keyrt á WordPress