• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
Enska úrvalsdeildin

Suður til Bournemouth á morgun

Björn Friðgeir skrifaði þann 11. desember, 2015 | 2 ummæli

AFC Bournemouth - UnitedVið höfum öll hugsað nóg um Þýskalandsför United í vikunn og best að gleyma henni og snúa sér að deildinni. Á morgun verða United piltarnir mættir á Dean Court í Bournemouth, þeim ágæta suðurstrandarbæ, og takast þá á við Öskubuskulið síðustu ára

AFC Bournemouth

Fyrir sjö árum lenti AFC Bournemouth í 21. sæti í League Two. Þeir höfðu fallið árið áður m.a. vegna stigafrádráttar vegna fjárhagsvandræða, og frekari frádráttur skilaði þeim í þetta 21. sæti. Liðið slapp þó við fall í næstsíðasta leik og nýr eigandi tók við um sumarið. Eddie Howe hafði tekið við liðinu í botnsæti um miðjan vetur, þá 32 ára, og bjargað þeim svo snarlega frá fallega og nú kom hann því í 2. sæti og upp um deild. Howe skrapp síðan til Burnley en kom aftur innan við tveim árum síðar og leiddi liðið upp í Championship deildina, staldraði við eitt ár þar og síðasta vetur unnu þeir Championship deildina og eru því mótherjar okkar á morgun.

Liðið hefur verið styrkt nokkuð á þessu ferðalagi og má þar nefna markvörðinn Arthur Boruc, en vörnin er nær einungis skipuð leikmönnum sem léku í League One með liðinu. Bournemouth er reyndar með fleiri menn meidda en United, nú eru 10 menn á meiðslalista þeirra, þ.m.t varnarmaðurinn Tyrone Mings, metkaup þeirra Bournemouthmanna, sem meiddist eftir 16 mínútna leik í fyrsta leik sínum. Callum Wilson var helsta markamaskína þeirra í Championship og var kominn með 5 mörk í 6 leikjum þegar hann varð fyrir hnjámeiðslum í september og er enn frá.

Gengi liðsins hefur enda versnað eftir því sem á líður tímabilið, allt þar til í síðasta leik þegar þeir fóru á Stamford Bridge og hirti 1-0 sigur með marki Glenn Murray síðla leiks. Þetta þykir stærsti sigur í sögu AFC Bournemouth, en það var leikur árið 1984 sem áður var mestur, enda sá Harry Redknapp ástæðu til að tísta

https://twitter.com/Redknapp/status/673899927622180864?lang=en

Milton Graham skorar fyrsta mark Bournemouth
Milton Graham skorar fyrsta mark Bournemouth

Já, Harry Redknapp var stjóri Bournemouth þegar bikarmeistarar United fóru á Dean Court í 3. umferð bikarsins og töpuðu 2-0 fyrir Bournemouth sem þá var í gömlu þriðju deildinni. Ekki besti dagur United.

United hefur slegið Bournemouth tvisvar út úr bikarnum síðan þá en nú er komið að alvöru leik. Bournemouth verður sýnd veiði en ekki gefin á morgun

Meitt og sært United lið

Það er meitt og sært United lið sem ferðast suður á bóginn í dag.

Shaw
Rojo
Jones
Smalling
Darmian
Herrera
Bastian
Valencia
Rooney

Nei, þetta er ekki liðið á morgun, þetta eru þeir átta leikmenn sem eru meiddir, auk Schweinsteiger sem tekur út sinn fyrsta leik í þriggja leikja banni vegna olnbogaskots á Winston Reid í West Ham leiknum.

1
De Gea
43
Bw-Jackson
17
Blind
33
McNair
30
Varela
16
Carrick
28
Schneiderlin
7
Memphis
8
Mata
35
Lingard
9
Martial

Ef Bournemouth hlakkar ekki til að takast á við þessa vörn þá veit ég ekki hvað. Annars má telja góðar líkur á að Michael Carrick fari í miðvörðinn og Fellaini komi inn á miðjuna

En skítt með það. Bournemouth er ekkert Wolfsburg og Dean Court ekkert vígi, Bournemouth hefur unnið einn leik á heimavelli og þetta er leikur sem á að vinnast og þar sem á að vera hægt að skora mörk.

Ég ætla því að spá sigri á morgun og að það léttist aðeins brúnin á okkur fyrir jólin.

Leikurinn er síðdegisleikur og byrjar kl 17:30

 

Efnisorð: Bournemouth Upphitun 2

Reader Interactions

Comments

  1. Mikael Tamar says

    11. desember, 2015 at 20:46

    United grísar inn marki og stelur jafntefli! Ég er komin með óþol gagnvart Van Gaal. Ég veit við erum með dúndur menn meidda en Van Gaal er ekki til í að aðlagast nútíma bolta því miður

  2. Sveinbjörn says

    12. desember, 2015 at 13:44

    Maður bíður alltaf og vonar að næsti leikur verði sá sem allt smellur saman í. En það hefur ekki gerst hingað til. Meðan meiðslalistinn okkar er eins og hann er, munum við vera að ströggla. Við erum því miður ekki með nógu breiðan hóp.

    Hef ennþá trú á LVG og finnst hann vera búinn að byggja upp fínt structure fyrir liðið, auk þess sem ég sé ekki hvernig það er betra að Ancelotti taki við núna á miðju tímabili með aðrar áherslur.

    Spái leiðinda 0-0 leik, eða 1-0 fyrir Bournemouth.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Primary Sidebar

Michelsen Tag Heuer er styrktaraðili Rauðu djöflanna

Síðustu ummæli

  • Elis um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Halldór Marteins um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Steve Bruce um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Halldór Marteins um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Sveinn um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2025 · Keyrt á WordPress