• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
Enska úrvalsdeildin

Arsenal kemur í heimsókn

Björn Friðgeir skrifaði þann 27. febrúar, 2016 | 3 ummæli

Manchester United - ArsenalEftir að hafa komist áfram í bikar og Evrópudeildinni er komið að alvörudeildinni og alvöruandstæðingum. Arsenal kemur á Old Trafford á morgun. Það er farið að fækka í hópi þeirra sem telja að United eigi möguleika á Meistaradeildarsæti þó að liðið sé enn í fimmta sæti einhverra hluta vegna. 

Gengi United gegn toppliðinum í vetur hefur verið nokkuð gott, ólíkt frammistöðunni gegn liðum í neðri hluta deildarinnar og það hentar liði Van Gaal mun betur að spila gegn betri liðum. Það er hins vegar ekki hægt að segja að fyrri leikur liðanna haf verið samkvæmt þessu. Arsenal pakkaði United saman á Emirates 3-0  og leikurinn var hreinlega búinn eftir 7 mínútur.Það er erfitt að horfa á meiðslalistann okkar núna og vonast eftir miklum viðsnúningi frá þeim leik. 

Sigur Arsenal gegn Leicester fyrir tveim vikum opnaði titilbaráttuna verulega en Leicester vann Norwich í dag þannig að Arsenal þarf nauðsynlega á stigunum að halda. Reyndar hafa Arsenal gert jafntefli við Hull og tapað sanngjarnt fyrir Barcelona síðan sigurinn gegn Leicester en það ætti ekki að hafa mikil áhrif á leikinn á morgun, Arsenal kemur til að vinna leikinn og miðað við spilamennsku United undanfarið og títtnefnda meiðslalista hljóta þeir nú að teljast sigurstranglegri.

The Guardian býst við Arsenal liðinu svona

Cech
Monreal
Koscielny
Mertesacker
Bellerín
Ramsay
Coquelin
Welbeck
Özil
Sánchez
Giroud

Þetta er eins og liðið hefur verið undanfarið, nema Danny Welbeck kemur inn fyrir Alex Oxlade-Chamberlain sem  er meiddur. United verður hins vegar eins og í undanförnum leikjum að stilla upp liði sem markast aðallega af því hverjir eru ómeiddir

1
De Gea
17
Blind
5
Rojo
33
McNair
49
Riley
16
Carrick
28
Schneiderlin
7
Memphis
8
Mata
35
Lingard
39
Rashford

De Gea kemur vonandi til baka sem og Rojo, en það er líklega til lítils að vonast eftir öðrum. Síðan er spurning hvort Paddy McNair verði treyst í miðvörðinn eða hvort Blind og Rojo verði látnir spila þar og Varela þá úti á kanti. Í fyrri leiknum í haust spilaði Sánchez vinstra megin og spurning hvort það verði á morgun ef Joe Riley er í hægri bakverðinum.

Þetta verður erfiður róður á morgun, og mjög spennandi að sjá hvernig Memphis og Rashford standa sig þegar mótherjarnir eru af alvöru kaliberi.

Leikurinn byrjar 14:05 á morgun, sunnudag

Efnisorð: Arsenal Upphitun 3

Reader Interactions

Comments

  1. Runar says

    27. febrúar, 2016 at 19:19

    Ég vil bara sjá „The Class of 2016“ þarna inn á og gömlu kempurnar á tréverkinu

  2. bjarni says

    28. febrúar, 2016 at 00:00

    R.I.P.
    GGMU

  3. Hjörvar Ingi Haraldsson says

    28. febrúar, 2016 at 08:56

    Aldur united í áætluðu liði:
    Markmaður: 25ára
    Vörn: 25ára-25ára-20ára-19ára
    Aftari miðja: 34ára – 27ára – 26ára
    Sókn: 22ára – 18ára – 23ára

    Mætti halda að þetta væri unglingaliðið með mönnum úr fyrsta liðinu sem þurfa að æfa sig

    En ég er samt rosalega spenntur fyrir ungustrákunum og finnst þeir spila skemmtilega.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Primary Sidebar

Michelsen Tag Heuer er styrktaraðili Rauðu djöflanna

Síðustu ummæli

  • Elis um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Halldór Marteins um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Steve Bruce um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Halldór Marteins um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Sveinn um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2025 · Keyrt á WordPress