• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
Enska úrvalsdeildin

Stoke á morgun

Runólfur Trausti skrifaði þann 1. október, 2016 | 1 ummæli

Manchester United - Stoke CityKlukkan 11:00 á morgun tökum við á móti Mark Hughes og félögum í Stoke City á Old Trafford.

Eftir þrjú töp í röð hafa okkar menn nú unnið þrjá leiki í röð, mótherjarnir hafa ef til vill ekki verið þeir sterkustu en sigur er sigur. Eftir 4-1 sigurinn á Leicester City um síðustu helgi þá breytti Mourinho liðinu lítið fyrir Evrópuleikinn síðasta fimmtudag og má reikna með sömu 11 á morgun og byrjuðu gegn Leicester City.

Embed from Getty Images

José Mourinho hefur þó gefið það út að meiðsli Timothy Fosu-Mensah á fimmtudaginn hefðu gert það að verkum að hann gat ekki gefið Memphis þær mínútur á vellinum sem hann hafði áætlað. Að því sögðu þá kom það mörgum á óvart að sjá að hvorki Schneiderlin né Carrick byrjuðu leikinn og Matteo Darmian komst ekki í hóp þrátt fyrir skelfilegar frammistöður Marcos Rojo undanfarið.

Mótherjinn

Stoke hefur byrjað tímabilið skelfilega og sitja í neðsta sæti deildarinnar með skitin tvö stig eftir sex leiki. Tvö jafntefli og fjögur töp með markatöluna -11.

Það má því búast við því að Mark Hughes peppi sína menn vel upp fyrir leikinn á morgun og þeir mæti gjörsamlega bandbrjálaðir til leiks.

Það er eitthvað um meiðsli hjá mótherjum morgundagsins en fyrir utan Jack Butland og Ibraham Affelley þá eru fáir byrjunarliðsmenn í meiðslum hjá þeim. Meiðsli Butland hafa haft slæm áhrif á Stoke en hinn þaulreyndi Shay Given tók við stöðunni á milli stanganna fyrst um sinn en eftir að hann meiddist fengu þeir hinn 33 ára Lee Grant á láni frá Derby County.

Embed from Getty Images

Líkleg byrjunarlið Stoke á morgun er einhvern veginn svona

Grant
Pieters
Indi
Shawcross
Johnson
Allen
Whelan
Cameron
Arnautovic
Bony
Shaqiri

Tölfræði

  • Manchester United hefur unnið síðustu 8 heimaleiki gegn Stoke City
  • Að sama skapi hefur liðið unnið 9 af síðustu 11 leikjum á Old Trafford
  • United hefur unnið Stoke með allavega tveimur mörkum í síðustu 8 heimaleikjum í öllum keppnum
  • Stoke hefur tapað 5 af síðustu 6 útileikjum sínum

Baráttan á vellinum

  • Það verður áhugavert að sjá Wilfried Bony berjast við hafsenta par United í leiknum. Mig grunar að Eric Bailly sé lúmskt spenntur að mæta Bony.
  • Zlatan Ibrahimovic gegn Ryan Shawcross og Bruno Martins Indi ætti að verða áhugavert en Zlatan er búinn að sýna okkur í vetur að hann ber höfuð og herðar yfir flesta varnarmenn deildarinnar í loftinu.
  • Marcus Rashford (ef hann verður á vinstri vængnum) gegn Glen Johnson verður líka ágætis rimma þar sem Johnson er nú ekki þekktur fyrir laglegan varnarleik. Svo ef Rashford á ekki sinn besta leik má reikna með að Anthony Martial komi inn en hann skoraði eitt af mörkum ársins í fyrra gegn Stoke á Old Trafford.
Embed from Getty Images

Efnisorð: Mark Hughes Old Trafford Stoke City Upphitun 1

Reader Interactions

Comments

  1. Runólfur Trausti says

    1. október, 2016 at 15:20

    Ef menn vilja svo sjá highlights úr leiknum frá því á Old Trafford þar sem Martial, Mata (og Rooney) fóru hamförum þá er þau að finna hér:

    http://www.manutd.com/en/News-And-Features/Features/2016/Oct/Video-manchester-united-3-stoke-city-0-premier-league-february-2016.aspx

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Primary Sidebar

Michelsen Tag Heuer er styrktaraðili Rauðu djöflanna

Síðustu ummæli

  • Elis um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Halldór Marteins um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Steve Bruce um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Halldór Marteins um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Sveinn um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2025 · Keyrt á WordPress