• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
Enska úrvalsdeildin

Everton á morgun

Björn Friðgeir skrifaði þann 3. desember, 2016 | Engin ummæli

everton-manchester-unitedÞað hefur ekki gengið vel hjá United á Goodison Park síðustu árin, sigur vannst 2011 og síðan ekki aftur fyrr en prýðilegur 3-0 sigur vannst síðasta vetur. Að auki vann United Everton á heimavelli og síðan á Wembley í vor í undanúrslitum bikarsins þannig að síðasta ár var ágætt.

Það er meira en hægt er að segja um gengi United í deildinni í síðustu leikjum. Í síðustu sjö leikjum hefur liðið gert fimm jafntefli, unnið einn leik og tapað einum. Af liðunum í efri helmingnum hefur aðeins einu liði gengið ver: Everton. Þeir hafa aðeins unnið einn af síðustu átta, og tapað fjórum og það er farið að fara um Ronald Koeman stjóra liðsins.

Ólíkt United hefur Everton hins vegar ekki verið að leika í öðrum keppnum og hefur því ekki sigra þar til að hugga sig við.

En það er einmitt gott gengi í deildarbikarnum og Evrópudeildinni sem United þarf að fara að taka yfir í deildarleikina. Það er alltaf hægt að benda á Michael Carrick og ótrúlegt sigurhlutfall hans í vetur, en liðið verður bara að sýna að þessi fína spilamennska framávið sem sást á fimmtudaginn sé ekki bara honum að þakka.

Það verður spennandi að sjá hvort José skiptir inn á frá því á fimmtudaginn eða hvort það verður liðið frá sunnudeginum síðasta sem verður uppistaðan í byrjunarliðinu á morgun

1
De Gea
36
Darmian
5
Rojo
4
Jones
25
Valencia
6
Pogba
21
Herrera
11
Martial
8
Mata
22
Mkhitaryan
9
Ibrahimovic

Luke Shaw meiddist á fimmtudaginn og óljóst er hvort hann verður klár. því ætla ég að spá þremur breytingum frá West Ham leiknum um síðustu helgi. Henrikh Mkhitaryan hlýtur að byrja og sömuleiðis Anthony Martial eftir góða frammistöðu þeirra á fimmtudaginn. Juan Mata kemur í staðinn fyrir Rooney sem er í banni. Það er freistandi að gera Mourinho þá hugsun að setja Fellaini gegn sínu gamla liði, en Mata hlýtur að vera betri kostur. Innkoma Fellaini af bekknum er hins vegar nokkuð vís.

Embed from Getty Images

Eitt af því sem verið hefur hvíslað síðan á leikmum á fimmtudaginn er hvort að hraður leikur United þá hafi verið því að þakka að Paul Pogba hafi ekki verið í liðinu. Þá vill fólk meina að spil hans sé of hægt og hægi of á leik United. Það er löngu ljóst að hann er ekki sá sem er hlaupandi út um allan völl að sækja boltann en ég ætla ekki að taka undir þá skoðun, í það minnsta ekki strax. En Pogba verður í byrjunarliði á morgun og þetta er þá eitthvað til að líta eftir.

Everton byrjaði tímabilið vel og er því í þeirri stöðu þrátt fyrir slakt gengi undanfarið að sigur mun lyfta liðinu yfir United í töflunni. Liðinu sem er spáð til þess er svona:

Stekelenburg
Baines
Williams
Jagielka
Coleman
Barry
Gueye
Mirallas
Barkley
Bolasie
Lukaku

Vörnin er kunnugleg þó að Ashley Williams hafi bæst við í sumar.  Á miðjunni kom Idrissa Gueye frá Villa til að spila við hliðina á Gareth Barry og framlína er sömuleiðis vel þekkt. Þrátt fyrir að vera iðinn markaskorari þá hefur Romelu Lukaku ekki enn skorað fyrir Everton á móti United og vonandi að hann fari ekki að taka upp á því á morgun. Það verður ágætis verkefni fyrir Rojo og Jones að sýna að góð frammistaða þeirra undanfarið sé ekki tilviljun. Það er laust sæti fyrir einn varnarmann við hliðinni á Bailly þegar hann kemur til baka, og eins og staðan er núna lítur út fyrir að Jones sé að vinna þá keppni. Sem þýðir væntanlega að hann tognar á morgun.

Þetta verður enn einn leikurinn þar sem við stuðningsfólkið vonumst eftir því að leikmenn fari að gera í deildinni þar sem þeir hafa verið að gera í bikarkeppnunum, yfirspila mótherjana OG skora mörkin sem hefur vantað svo sárlega í deildarleikjum.

From Jose yesterday. Basically said restoring United's playing style is, at the moment, more important than results https://t.co/RgFKOVkAK5

— Rob Dawson (@RobDawsonMEN) December 3, 2016

Það hlýtur að koma að því, það sjá öll sem horft hafa á síðustu leiki. Leikur liðsins hefur verið stórskemmtilegur oft á tíðum, og þó einhver ykkar kunni að líta á þessi ummæli José Mourinho á fréttamannafundi í gær sem tilraun til að draga úr vonbrigðum með úrslitin undanfarið þá ætla ég að horfa bjartari augum á þau og segja: Já það er allt annað að horfa á United í vetur en síðustu tvö ár og ef þetta þýðir aðlögunartímabil og hugsanlegt fimmta sæti eða ver, svo fremi sem það endar með titli með flottri spilamennsku, þá ætla ég að segja já takk!

En ég ætla heldur ekki að hafa áhyggjur af því að það taki of langan tíma að finna markið. Meðan spilamennskan helst svona fín, þá koma mörkin. Ég hef því ákveðið að vera fullur bjartsýni og spá öðrum 3-0 sigri í leiknum sem byrjar kl 16:00 á morgun

 

 

 

 

Efnisorð: Everton Upphitun 0

Reader Interactions

Skildu eftir svar Hætta við svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Primary Sidebar

Michelsen Tag Heuer er styrktaraðili Rauðu djöflanna

Síðustu ummæli

  • Dór um Brighton & Hove Albion 4:0 Manchester United
  • Tony D um Brighton & Hove Albion 4:0 Manchester United
  • Sindri um Brighton & Hove Albion 4:0 Manchester United
  • Scaltastic um Brighton & Hove Albion 4:0 Manchester United
  • SHS um Brighton & Hove Albion 4:0 Manchester United

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2022 · Keyrt á WordPress