• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
Enska úrvalsdeildin

Heimsókn á Ólympíuleikvanginn í London

Runólfur Trausti skrifaði þann 1. janúar, 2017 | Engin ummæli

west-ham-united-manchester-united-olympicManchester United byrjar 2017 á heimsókn til West Ham United í Lundúnum. West Ham leikur nú á nýjum velli, hefur sagt skilið við Upton Park, sem þeir kvöddu einmitt með leik gegn United í vor. Nú er leikið á Ólympíuleikvanginum í London og sýnist víst sitt hverjum um þann völl og stemminguna. Hamrarnir hafa átt misjöfnu gengi að fagna í vetur en það var aðeins í lok nóvember sem liðin mættust tvisvar með skömmu millibili. Náði West Ham í stig á Old Trafford en töpuðu svo 4-1 í Deildarbikarnum aðeins nokkrum dögum síðar. Vonandi verður okkar United í sama gír og þá þegar liðin mætast á morgun.

Mótherjinn

West Ham hefur verið á fínu róli undanfarið. Eftir að tapa 5-1 fyrir Arsenal á heimavelli þá náði liðið jafntefli gegn Liverpool ásamt því að vinna Burnley, Hull City og Swansea City. Lokaleik síðasta árs töpuðu þeir samt gegn Leicester City, 1-0 á útivelli.

Hamrarnir koma vængbrotnir inn í leikinn á morgun en á meiðslalistanum eru Mark Noble, Diafra Sakho, Simone Zaza, James Collins, Arthur Masuaku, Gokhan Töre, Arvalo Arbeloa, Reece Oxford og Sam Byram.

Embed from Getty Images

Manchester United

Okkar menn hafa ekki tapað knattspyrnuleik síðan þann 3. nóvember í Tyrklandi. Síðan þá hafa þeir gert þrjú jafntefli og unnið níu, þar af sex í röð.

Síðasti sigurleikur er mönnum eflaust í fersku minni en eftir að lenda undir þá fengum við að sjá eitt gamalt og gott United comeback. Kominn tími til. Fyrir þann leik ákvaðð José Mourinho að hvíla fimm leikmenn svo það má búast við einhverjum breytingum á morgun.

Ég ætla nú ekki að spá of mikið í byrjunarliðið en mig grunar að við munum sjá Marcos Rojo og Phil Jones aftur í hafsent sem og Michael Carrick kemur aftur inná miðjuna. Hvað varðar restina af liðinu þá verður eflaust einhver af fremstu mönnum liðsins hvíldur en ferskar lappir eftir erfiðan leik gegn Middlesboro eru nauðsyn.

Ætla ég að gerast svo djarfur að spá því að United vinni erfiðan 2-1 sigur þar sem Anthony Martial heldur áfram frá því sem var horfið gegn Boro.

Embed from Getty Images

Leikurinn er klukkan 17:30 á morgun.

Efnisorð: London Premier League Upphitun Útileikur West Ham United 0

Reader Interactions

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Primary Sidebar

Michelsen Tag Heuer er styrktaraðili Rauðu djöflanna

Síðustu ummæli

  • Elis um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Halldór Marteins um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Steve Bruce um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Halldór Marteins um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Sveinn um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2025 · Keyrt á WordPress