• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
Evrópudeildin

Bræður munu berjast – St. Etienne kemur í heimsókn

Magnús Þór skrifaði þann 15. febrúar, 2017 | 2 ummæli

Annað kvöld hefjast 32- liða úrslit Evrópudeildarinnar. Mótherji Manchester United er franska liðið Association Sportive de Saint-Étienne Loire eða St. Etienne í daglegu máli. St. Etienne hefur undanfarin ár verið í topphluta frönsku deildarinnar og tekið reglulega þátt í Evrópukeppni félagsliða. Liðið hefur orðið franskur meistari 10 sinnum og 6 sinnum orðið bikarmeistari. Besti árangur frakkanna í evrópukeppni var að lenda í 2.sæti í Evrópukeppni meistaraliða sem er forveri Meistaradeildarinnar tímabilið 1975-1976.

Embed from Getty Images

Manchester United og St. Etienne tengjast bókstaflega bræðraböndum en Florentin eldri bróðir Paul Pogba er varnarmaður St. Etienne. Ólíkt bróður sínum þá valdi Florentin að leika með landsliði Gíneu en hann og Mathias tvíburabróðir hans eru fæddir þar. Önnur kunnugleg nöfn úr enska boltanum sem leika með St. Etienne eru Jordan Veretout sem er á láni frá Aston Villa, Henri Saivet lánsmaður frá Newcastle United og Kévin Théophile-Catherine sem lék tvö tímabil með Cardiff City.

Embed from Getty Images

José Mourinho hefur gefið það út að Luke Shaw verði ekki með liðinu annað kvöld og framtíð hans með United virðist vera ráðin. Einnig kom fram að Michael Carrick og Wayne Rooney verða hvíldir fyrir bikarleikinn gegn Blackburn um helgina og Phil Jones er ekki orðinn heill heilsu.

Embed from Getty Images

Byrjunarliðinu spái ég svona:

1
De Gea
17
Blind
5
Rojo
3
Bailly
25
Valencia
6
Pogba
21
Herrera
11
Martial
22
Mkhitaryan
8
Mata
9
Ibrahimovic

Hvernig spáið þið að leikurinn fari?

Efnisorð: Jose Mourinho Luke Shaw Michael Carrick Paul Pogba Phil Jones Upphitun Wayne Rooney 2

Reader Interactions

Comments

  1. Hannes says

    15. febrúar, 2017 at 20:47

    2-0 fyrir united. Zlatan og Martial með mörkin. Lingard og Fellaini koma snemma inná til að hvíla byrjunarliðsmenn.

  2. Rúnar Þór says

    15. febrúar, 2017 at 21:32

    Neita að trúa að Shaw sé búinn. Hann verður framtíðar vinstri bakvörður United. Tekur bara tíma að koma til baka eftir þessi hrikalegu meiðsli. Hann kemur sterkur til baka er þessari lægð. Ég trúi!

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Primary Sidebar

Michelsen Tag Heuer er styrktaraðili Rauðu djöflanna

Síðustu ummæli

  • Elis um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Halldór Marteins um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Steve Bruce um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Halldór Marteins um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Sveinn um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2025 · Keyrt á WordPress