• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
Enska úrvalsdeildin

United fer til Burnley

Magnús Þór skrifaði þann 22. apríl, 2017 | 3 ummæli

Manchester United var  heldur betur refsað grimmilega fyrir að ná ekki að klára Anderlecht í venjulegum leiktíma því bæði Marcos Rojo og Zlatan Ibrahimovic fóru meiddir af velli. Meiðsli Rojo virtist ekki jafn slæm og hjá Zlatan en nú hefur verið staðfest að báðir slitu þeir krossbönd í hné og ólíklegt að þeir komi meira við sögu á árinu 2017. Svo er hreinlega spurning hvort Zlatan hefur leikið sinn síðasta leik fyrir United því samningurinn hans rennur út í sumar og hann verður a.m.k. frá þangað til í janúar og því erfitt að réttlæta háan launakostnaðinn.

Embed from Getty Images

Þessi meiðsli hljóta að þýða að kaup á framherja og miðverði verði sett á oddinn í sumar og hafa margir leikmenn verið þrálátt orðaðir við United. Líkurnar á að Antoine Griezmann verði keyptur til liðsins hafa líklega stóraukist síðustu tvo sólarhringa. Svo er búist við því að Michael Keane verði keyptur aftur til United eftir góða frammistöðu með Burnley í vetur. Eins og með margt annað er hægt að setja spurningarmerki við ákvörðun Louis van Gaal að selja hann framyfir leikmenn eins og Paddy McNair og Tyler Blackett á sínum tíma.

Embed from Getty Images

Heimamenn í Burnley eru í fallbaráttu en virðist líklegir með að halda sæti sínu á meðan lið eins og Sunderland og Middlesbrough halda áfram í ruglinu. Þriðja liðið sem fellur verður annað hvort Swansea eða Hull en þau unnu reyndar bæði leiki sína í dag og stefnir í æsispennandi baráttu hinum megin í töflunni. Af þeim leikmönnum sem eru á meiðslalistanum eru þeir Kevin Long og Dean Marney örugglega frá í leiknum á morgun en smá möguleiki er á að félagarnir Jóhann Berg Guðmundsson, Sam Vokes og Scott Arfield verði í hópnum.

Embed from Getty Images

Hvernig verður byrjunarliðið hjá Manchester United í þessum leik? Oft hefur verið auðveldara að spá því en svona væri ég til í að sjá liðið á morgun

1
De Gea
36
Darmian
3
Bailly
38
Tuanzebe
23
Shaw
6
Pogba
21
Herrera
18
Young
11
Martial
14
Lingard
19
Rashford

Leikurinn hefst kl. 13:15

Efnisorð: Burnley Michael Keane Upphitun Zlatan Ibrahimovic 3

Reader Interactions

Comments

  1. Heiðar says

    22. apríl, 2017 at 20:51

    Spurning hvað 120 mínútur fyrir 3 dögum munu sitja mikið í liðinu. Eflaust umtalsvert. Vona að Móri róteri eins og hægt er. Herrera og Martial koma pottþétt inn. Væri mjög gaman að sjá Tuanzebe detta inn og hvað þarf til að Fosu-Mensah fái meira en 2 mínútur??
    Svo er það Rooney…….
    Spái því að við sigrumst á mótlætinu og tökum þetta 0-2.

  2. Ási says

    23. apríl, 2017 at 01:21

    Vonandi byrjar Mkhitaryan, einn af okkar bestu leikmönnum.

  3. Audunn says

    23. apríl, 2017 at 12:20

    Það er mikið ritað og rætt um hvaða stóru nöfn United ætli sé að fá í sumar, held að það sé ekki timabært á þessu stigi að vera með getugátur um það því ég efast um að heimsklassaleikmenn sem eru eftirsóttir af stóru klúbbunum út um alla evrópu hafi ekki mikinn áhuga á að fara til United nema þeir komist í meistaradeildina.
    Og til þess að svo megi verða þá verður liðið að vinna lið eins og Burnley.
    Ef United ætlar sér að eiga einhvern séns á að enda í topp 4 þá verður liðið að vinna amk 5 af þeim 7 leikjum sem það á eftir í deildinni og við eigum m.a City, Arsenal, Spurs og Southampton eftir úti sem eru allt gífurlega erfiðir leikir.
    Taka einn leik í einu, sigur í dag veitir mönnum von um að þetta sé hægt.
    Liðið í dag er
    De Gea
    Darmian – Bailly – Blind – Young
    Herrera – Fellaini
    Pogba – Rooney – Lingard
    Martial

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Primary Sidebar

Michelsen Tag Heuer er styrktaraðili Rauðu djöflanna

Síðustu ummæli

  • Elis um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Halldór Marteins um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Steve Bruce um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Halldór Marteins um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Sveinn um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2025 · Keyrt á WordPress