• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
Æfingaleikir

Manchester United 2:0 Manchester City

Tryggvi Páll skrifaði þann 21. júlí, 2017 | 2 ummæli

Ef það fór framhjá einhverjum öttu Manchester-liðin tvö kappi í Houston í Bandaríkjunum í nótt í International Champions Cup.

Þetta var fyrsti leikur beggja liða í þessarri keppni sem orðið er aðalmálið hjá stærstu liðum heims á undirbúningstímabilinu. Þetta var í fyrsta sinn sem liðin mættust utan Bretlandseyja og liðið sem hóf leik fyrir United var svona.

https://twitter.com/manutd/status/888201879418810370

Nokkuð sterkt lið. Pep stillti einnig upp nokkuð sterku liði, auk þess sem að 2-3 kjúklingar fengu að fljóta með. Ederson og Kyle Walker byrjuðu sinn fyrsta leik með City.

Fyrri hálfleikur var mjög fjörugur og það var ekki að sjá að þetta væri vináttuleikur. Vincent Kompany straujaði Lukaku illa snemma leiks og menn voru ekkert að halda neitt sérstaklega aftur af sér í þeirri deild.

Spilalega séð komu bæði lið einnig vel inn í leikinn, bæði lið virkuðu spræk og klár í verkefnið. Þau skiptust á að sækja í fyrri hálfleik þó að framan af hafi United haft yfirhöndina. Fyrsta hálftíman eða svo skiptust liðin á langskotum en United komst nokkrum sinnum í góðar stöður án þess þó að nýta það.

Þangað til á 37. mínútu þegar Pogba sendi klassíska Paul Pogba sendingu yfir vörn City. Þar var Lukaku mættur á fullu stími gegn Ederson sem kom út á móti. Lukaku gerði allt rétt, potaði boltanum framhjá markmanninum með höfðinu og kláraði færið virkilega vel úr erfiðri stöðu. Frábært  mark.

https://twitter.com/manutdgoais/status/888227819687485446

Mínútu síðar gerði United út um leikinn eftir laglega skyndisókn. Mkhitaryan fékk boltann á kantinum og tók á rás inn að miðju vallarins, við teiginn fann hann Rashford í teignum sem kláraði færið sitt afar vel.

City hafði fá svör við þessu. Eftir þetta gerðist fátt markvert í leiknum fyrir utan að Lukaku átti bylmingsskot í samskeytið. Mourinho gerði nokkrar breytingar í hálfleik og í seinni hálfleik, sem og Pep, en við það riðlaðist leikur beggja liða og hvorugt lið tókst að afreka mikið í seinni hálfleik.

https://twitter.com/manutdgoais/status/888228251658854401

Frekari leikskýrslur um leikinn má nálgast á vef Guardian, Telegraph og ESPN.

Næsti æfingaleikur er á aðeins kristilegri tíma, gegn Real Madrid á sunnudaginn klukkan 21.00.

Örfáir punktar

  • Lukaku er að fara virkilega vel af stað. Fyrir utan markið sem hann skoraði, sem var afar laglegt, var hann duglegur að virka sem batti fyrir liðsfélag sína. Hann hljóp mikið og teygði á vörn City með hlaupum hingað og þangað, hann var mikið í spilinu og var eiginlega bara frábær í þessum leik. Verður geggjað að sjá hann í alvöru leik.
  • Mkhitaryan og Rashford koma stórkostlega undan sumri. Mkhitaryan var potturinn og pannan í sóknarleik United og skapaði mikinn usla með hlaupum og góðum sendingum. Rashford virðist einnig vera í frábæru standi og hann er að klára færin sín vel.
  • Varnarleikur liðsins var þó ekkert spes. Manni fannst Lindelöf og Smalling ekkert sérstakir í leiknum og Blind, þrátt fyrir að vera ágætur sóknarlega, var í veseni í leiknum. Þetta skánaði í seinni hálfleik þegar Darmian, Jones og Bailly komu inn. Valencia var traustur að venju.
  • Liðið virðist vera í feiknaformi þrátt fyrir að stutt sé liðið af undirbúningstímabilinu, menn byrjuðu leikinn af krafti og það er einhver óskilgreindur kraftur yfir öllu sem þeir eru að gera, sérstaklega sóknarlega.

Tístvélin

https://twitter.com/manutd/status/888255645891174401

https://twitter.com/chegiaevara/status/888220902739017728

https://twitter.com/utdxtra/status/888222789865549824

https://twitter.com/telegraphducker/status/888224993544359937

https://twitter.com/markogden_/status/888226064555581440

https://twitter.com/utdxtra/status/888226359897722880

https://twitter.com/utdxtra/status/888227102872489984

https://twitter.com/higginbotham05/status/888228765180063744

https://twitter.com/LovinUnited/status/888271667784437760

https://twitter.com/telegraphducker/status/888230274022096896

https://twitter.com/telegraphducker/status/888227881460969472

https://twitter.com/chegiaevara/status/888246713781243904

https://twitter.com/chegiaevara/status/888247248341086209

Efnisorð: Manchester City 2

Reader Interactions

Comments

  1. SHS says

    23. júlí, 2017 at 22:41

    Ok, Lindelöf sko… Kannski ekki rétt að dæma hann af æfingarleikjum en ég get ekki séð að hann sé einhver uppfærsla af Phil eða Mike…

  2. Moore says

    27. júlí, 2017 at 22:06

    Fyrsti æfingaleikurinn hjá City, en restin verður einstefna. United verður í vandræðum með að ná topp 4, en City mun vinna PL.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Arni um Liðið í Manchester slagnum
  • Helgi P um Liðið í Manchester slagnum
  • Gummi um Liðið í Manchester slagnum
  • Halldór Marteins um Liðið í Manchester slagnum
  • sófinn um Liðið í Manchester slagnum

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress