• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
Enska úrvalsdeildin

United fer á toppinn á morgun

Björn Friðgeir skrifaði þann 16. desember, 2017 | 3 ummæli

Nei, Manchester United er ekki að fara á topp úrvalsdeildarinnar á morgun, en liðið fer hins vegar á The Hawthorns á morgun og mætir West Bromwich Albion á vellinum sem er hæst yfir sjávarmáli af ölllum völlum í úrvalsdeildinni, og reyndar allri deildarkeppninni, 168 metra yfir sjávarmáli.

Það er ekki hægt að segja að WBA hafi gengið vel í vetur. Liðið vann fyrstu tvo leikina í ágúst en hefur ekki unnið leik síðan! Átta jafntefli hafa hins vegar gert að verkum að liðið hangir einu sæti fyrir ofan fallsætin, þökk sé markatölu.  Tony Pulis var rekinn í nóvember og Alan Pardew ráðinn í staðinn en hann hefur ekki náð að stýra liðinu á sigurbraut. Undir hans stjórn hefur liðið samt ná jafntefli gegn Tottenham og Liverpool og því ekkert hægt að reikna með auðveldum sigri á morgun. Jafnteflið gegn Liverpool hefur eflaust komið liðinu í gott skap og það verður erfitt fyrir United að brjóta liðið niður enda sáum við hvernig gekk móti Bournemouth á miðvikudaginn.

Manchester United

Paul Pogba missir af síðasta leiknum vegna bannsins og því verðum við víst að þola miðju Nemanja Matic og Ander Herrera. Staðfest er að Marouane Fellaini verður frá fram á nýja árið vegna meiðsla. Annars má búast við liðinu svona

1
De Gea
18
Young
4
Jones
12
Smalling
25
Valencia
21
Ander Herrera
31
Matić
19
Rashford
14
Lingard
11
Martial
9
Lukaku

Sem sé meira eða minna eins og gegn City og lítið um það að segja meira, annað en það er vonandi að liðið nái að skapa eitthvað meira en verið hefur í síðustu leikjum

West Bromwich Albion

Pardew er búinn að breyta West Brom úr 4-4-2 liði í 4-3-2-1 eða 4-3-3 lið og setja Rondón einan fram. Rondón og Jay Rodriguez eru markahæstu menn WBA þanig að vonandi sýnir það að liðið er ekki líklegt til að gera góða hluti móti vörn United sem vissulega hefur verið nokkuð sterk undanfarið, að ótöldum David de Gea.

Gareth Barry hefur verið frá vegna meiðsla en búist er við honum í liðinu á morgun Vörnin er hins vegar óhreyfð með Jonny Evans fremstan í flokki þar.

Foster
Gibbs
Evans
Hegazi
Nyom
Krychowiak
Barry
Livermore
McClean
Robson-Kanu
Rondón

Leikurinn er kl 14:15 á morgun.

 

Efnisorð: Alan Pardew Marouane Fellaini Paul Pogba Upphitun 3

Reader Interactions

Comments

  1. Auðunn says

    16. desember, 2017 at 17:07

    Algjör skyldu sigur en þetta verður alls ekki auðveldur leikur .
    Liðið verður bara að einbeita sér 100% að stigasöfnum í komandi leikjum og svo er hægt að taka stöðuna þegar þetta brjálaða runni lýkur og spá þá í framhaldið.

  2. Bjarni says

    16. desember, 2017 at 22:18

    Einn af erfiðustu leikjum vetrarins. Liðið þarf að hafa pung til að klára svona leiki því það verður barist um hvern einasta bolta og mikið um návígi í loftinu. Er á báðum áttum hvernig leikurinn fer en ef við mætum ekki til leiks frá fyrstu mínútu þá fer þetta illa. En ekki annað hægt en að senda góða strauma til liðsins og hvetja þá til dáða. Verðum að halda öðru sætinu yfir áramót, þá verð ég glaður.

  3. Rúnar P says

    17. desember, 2017 at 12:49

    Ekki mikill Lukaku aðdáenda, en hann setur þrennu í dag!

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Arni um Liðið í Manchester slagnum
  • Helgi P um Liðið í Manchester slagnum
  • Gummi um Liðið í Manchester slagnum
  • Halldór Marteins um Liðið í Manchester slagnum
  • sófinn um Liðið í Manchester slagnum

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2025 · Keyrt á WordPress