Í dag mættust stórliðin úr Manchesterborg í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni á Etihad vellinum í ljómandi fínu veðri. United var án Paul Pogba auk þess sem Alexis Sanchez og Romelu Lukaku byrjuðu báðir á bekknum eftir nýafstaðin meiðsl. Framlínan okkar var því Anthony Martial á vinstri kantinum og Jesse Lingard á þeim hægri með Marcus Rashford fremstan.
City menn byrjuðu leikinn af kraftinn og gáfu gestunum ekki nein grið og er varla hægt að segja að United menn hafi snert boltann, svo mikil var einstefnan og áræðnin hjá heimamönnum. Sú vinnusemi skilaði sér strax á 12. mínútu þegar David Silva kom boltanum á Sterling sem átti frábæra fyrirgjöf yfir á fjærstöngina þar sem Bernardo Silva lúrði og náði að senda boltann fyrir markið þar sem nafni hans frá Spáni fékk opið marktækifæri og hamraði boltann í netið fram hjá de Gea.
Eftir það virtist United liðið vakna aðeins en þegar þarna var komið við sögu voru City menn með 107 heppnaðar sendingar og 83% með boltann á meðan United hafði klárað heilar 19 sendingar og nánast ekkert með boltann. Virkilega dræmar upphafsmínútur hjá okkar mönnum en það virðist vera stíllinn hjá liðinu þessar vikurnar.
Loksins þegar rúmar tuttugu mínútur voru komnar á klukkuna virtust okkar menn ætla að taka þátt í leiknum en rétt þegar okkur tókst að setja saman nokkrar sendingar á samherja þá missir Ander Herrera boltann á miðjunni og David Silva komst í hálffæri sem varnarmenn okkar hreinsuðu sem betur fer upp. Í kjölfarið komu fyrstu færin okkar en enginn veruleg hætta skapaðist. Martial átti skot sem var varið, Smalling átti skalla yfir markið og fyrirgjöf frá Young rataði beint í krumlurnar á Ederson.
Engu að síður leit út fyrir að við værum að ýta þeim aftar á völlinn en þó að við næðum að vinna okkur meira og meira inn í leikinn voru heimamenn alltaf líklegir. Undir lok fyrri hálfleiks áttum við í tómu basli með að koma boltanum af hættusvæðinu, heimamenn fengu endalausar hornspyrnur og ekki bætti það úr skák að Herrera virtist vera að missa boltann í annað hvert sinn þegar hann fékk boltann í lappirnar. Gátum talist þokkalega heppnir að vera bara 1-0 undir í hálfleik og greinilegt að breytinga er þörf þar sem United virtist elta allan fyrri hálfleik.
Hálfleikur
Seinni hálfleikur fór ekkert gífurlega vel af stað. Strax eftir þrjár mínútur komst Sergio Aguero inn fyrir vörn United og átti þrususkot yfir de Gea úr þröngu færi og breytti stöðunni í 2-0. Áfram héldu City menn að sundurspila United vörnina og áttu nokkur góð færi á næstu tíu mínútum, óneitanlega besta færið fékk þó Sterling þegar hann komst einn inn fyrir en vildi ná skotinu með hægri og var alltof lengi að aðhafast í teignum og Smalling komst fyrir hann.
Á 57. mín kom Lukaku inn fyrir Jesse Lingard og það tók hann ekki nema nokkrar sekúndur að krækja í vítaspyrnu eftir frábæra stungusendingu en sá belgíski steif ekki sjálfur á punktinn. Sennilega hefur það spilað inn í að Lukaku var nýkominn inn á og að hann hafi ekki skorað í háa herrans tíð fyrir United. Því steig Martial á punktinn, en sá franski tók stutt tilhlaup og sendi Ederson í vitlaust horn. Staðan orðin 2-1 og hálftími rúmur eftir af leiknum og nægur tími til að snúa við taflinu. Við þetta mark fengu okkar menn aukinn kraft enda tími til kominn.
Lítið markvert gerðist á næstu tíu mínútum annað en að Leroy Sane kom inn á og greinilega átti að ganga frá Ashley Young en hann var þegar orðinn gífurlega þreyttur eftir að elta Sterling allan leikinn. Alexis Sanchez og Juan Mata komu inn á sem varamenn þegar tæpar tuttugu mínútur voru eftir og fengum við strax aukaspyrnu sem hefði getað skapað hættu í vítateig City en í staðinn komust City menn í skyndisókn og sem betur fer lét Sane vaða fyrir utan teig en boltinn sveif hátt yfir markið.
Örlítill meiri hraði færðist í leikinn við þessar skiptingar sem gerði síðustu mínúturnar mun skemmtilegri en fyrri hluta síðari hálfleiks. Bæði lið gerðu þó nokkur mistök en ekki nein eins slæm eins og Matic á 86. mínútu þegar City hélt boltanum í heilllangan tíma sem endaði svo með fyrirgjöf inn í teig á İlkay Gündoğan þar sem Nemanja Matic gleymdi hreinlega að hann væri til. Gündoğan kláraði færið af yfirvegun og kom City aftur í tveggja marka forystu. Þannig lauk leiknum og skelltu City menn sér aftur í fyrsta sæti deildarinnar.
Hugleiðingar að leik loknum
Okkar menn fengu loksins skellinn, en það hlaut að vera komið að því að við næðum ekki að koma til baka eftir að við lendum undir. En í stað þess að velkjast um í biturri neikvæðni og pólitískum ómöguleika þá skulum við líta á nokkra jákvæða punkta.
Fyrst ber að nefna að Victor Lindelöf virðist vera að stíga upp sem byrjunarliðsleikmaður og virðist vera að aðlagast ensku deildinni ágætlega loksins. Anthony Martial heldur áfram að vera gífurlega beinskeyttur fram á við auk þess að sinna varnarvinnu í mun ríkara mæli en áður og samvinna hans og Luke Shaw virðist batna með hverjum leiknum.
Vissulega var miðjan okkar yfirspiluð, það verður að segjast eins og er að B.Silva-Fernandinho-D.Silva eru alltaf að fara vinna Herrera-Fellaini-Matic í reitabolta en Fellaini var engu að síður mjög sterkur inn á miðjunni, hefði verið líklega annar leikur ef t.d. Pogba hefði verið með honum. Romelu Lukaku átti líka fína innkomu og gerði mjög vel í að krækja í þessa vítaspyrnu.
En engu að síður sást það með mjög afgerandi hætti að liðið er eftirbátur nágranna sinna á flestum sviðum. Við getum þó huggað okkur við það að við vorum að mæta sterkasta liði deildarinnar, hvort sem þeir hafi orðið það með svikum og prettum skal látið kyrrt liggja, en nú tekur við landsleikjahlé og næstu leikir eru svo Crystal Palace (H), Young Boys (H) og Southampton (Ú) áður en Arsenal mætir á Old Trafford 5. des n.k. Það eru því næg tækifæri fyrir okkar menn til að safna sjálfstrausti og rífa sig í gang fyrir jólatörnina.
gummi says
þetta gæti endað í einhverju rústi
Karl Garðars says
Búinn að bíða eftir þessari skiptingu. Jessss víti! Lingard var ekki góður.
Koma svo! Skora. Yessssss!
Herbert says
Versta miðja sem ég hef séð leengi hjá united…… Herrera, Matic og Fellaini. Gáfu liðinu lítið sem ekkert fram á við. Ennþá minna í varnartilburðum. Matic latur. Herrera með fleiri misheppnaðar sendingar heldur en heppnaðar. Og Fellaini var svosem bara Fellaini. Mjög lítið hreyfanlegur á miðjunni.
Bjarni Ellertsson says
Gott að þessi leikur er afstaðinn.
Zorro says
Man.Utd mörgum ljòsárum á eftir City….þunglamalegt..leiðindi og enginn hreifing né sköpunargáfa i leik United
Helgi P says
Það er ótrulegt að við séum ekki með betri hóp en þetta meðað við alla þessa eyðslu síðan ferguson hætti
Turninn Pallister says
Fannst við henda þessu full auðveldlega frá okkur í dag. Vissulega erfiður leikur gegn lang-sterkasta liði deildarinnar, en það er samt alveg sama. Finnst það oft vanta löngunina til að vinna. Trekk í trekk eftir að við vorum 1-0 undir, þá komumst við í álitlega stöðu til þess að sækja hratt á City með Rashford, Martial og Lingard fremsta. Það hefði mögulega getað virkað, ef Herrera og Matic hefðu reynt að senda boltann fram á við. Ég veit ekki hvað oft það gerðist að fremsta lína tók sprettinn en í stað þess að miðjumennirnir hentu á þá „deadball“, þá var boltinn sendur aftur á Smalling eða á Fellaini (sem því miður er ekki sterkastur í því að senda hættulegar sendingar, þó hann sé ágætur á öðrum sviðum).
City átti því allt of oft mjög auðvelt með það að stilla sig af og verjast. Varnarlega þá duttum við alltaf of aftarlega. Mér leið alltaf eins og City bara réði því hvenær þeir gætu skorað og voru hreinlega klaufar að vinna okkur ekki stærra.
DMS says
Matic og Herrera slakir á miðjunni í dag. Ef við töpum miðjunni svona afgerandi gegn jafn góðu liði og Man City er þá er voðinn vís.
Auðunn says
Virkilega slakur leikur að hálfu United.
Andlaust og humyndalaust lið með ekkert plan í gangi.
Ekki einusinni plan A Hvað þá plan B.
Ótrúlegt að sjá hversu mörgum ljósárum Guardiola er kominn á undan Mourinho með þetta City lið.
Mourinho og Man Utd komast ekki tærnar þar sem hinir hafa hælana þegar kemur að taktík og að spila fótbolta.
óli says
Eins og Auðunn bendir á þá er það sorglega við daginn í dag að sjá hvað við erum langt á eftir City í dag. Guardiola og Mourinho tóku við á sama tíma og þó að Guardiola hafi hugsanlega tekið við betra búi, þá hefur hann fylgt sínum hugsjónum og gildum og búið til frábæran strúktúr, á meðan ég veit eiginlega ekki fyrir hvað United-lið dagsins í dag stendur. Ég elska Mourinho meira en móður mína en maður hugsar óneitanlega um hvað hefði gerst ef Guardiola hefði tekið við Manchester United í staðinn fyrir City.
Jón B says
Gott að menn elski Mourinho, ég er ekki þar. Ef ég væri stuðningsmaður Stoke, þá væri ég líklega ánægður með þennan bolta sem boðið er upp á. Höfum verið heppnir undanfarnar vikur, oftar en ekki verið lélegra liðið meirihluta leikja, en samt náð í úrslit. Ég byrjaði að horfa á leikinn í gær en gafst upp eftir 12 minútur, þá var City auðvitað búið að skora og var með boltann örugglega í 11 mínútur af þessum 12. Það er ekki boðlegt. Maður getur sætt sig við að liðið lendi undir, en það er lágmark að vera með í leiknum.
Við erum með fullt af góðum leikmönnum, sérstaklega framávið. Sést best þegar þeir fara í landsliðsverkefni. Þeir fá ekki að sýna það hjá þessum varnarþjálfara, sem virðist ekki einu sinni geta stoppað í götin í vörninni í augnablikinu.
Rauðhaus says
Áttum aldrei minnsta séns. Ótrúlegur munur á liðunum. Mun meiri en hann þyrfti að vera.
Hjöri says
Ef Móri yrði látinn fara, hvað vildu menn fá í staðinn?
Herbert says
Ég er alveg kominn á það að leyfa Giggs að spreyta sig. Ég meina af hverju ekki. Verður klárlega rándýrt að fá Pochettino frá Tottenham. En myndi klárlega skila sér í skemmtilegri fótbolta. Og sennilega öruggari kostur ef hann er möguleiki. Móri því miður búinn að vera úti að skíta á svo mörgum sviðum. Engin af kaupunum hans að standa sig…. Eiga góða kafla af og til. En það er bara mín skoðun.
Jonas says
Er Liverpool, en ef ég má hafa skoðun á ykkar liði, þá á Móri að fara, held að hann sé útbrunnin, það væri gaman að sjá meistara Giggs taka við liðinu ykkar. þegar neistinn hverfur og peningar taka yfir, það kann ekki góðri lukku að stýra. Held að Giggs gæti, kannski ekki alveg strax, en á næsta tímabili komið liðinu á rétta braut. það bera allir virðingu fyrir Giggs, nema hálfvitar.
YNWA
Haffi says
Mér þykir leiðinlegt þegar ég er að lesa yfir hér og að ég sé að mörgu leiti best sammála Liverpool manni um hvað við ættum að gera með okkar klúbb, ekki endilega að Giggs ætti að taka við það væri ekkert endilega lausn en gæti allt eins virkað, eina sem ég veit er að Móri er búinn að fá tíman til að eiga vera búin að sýna framm á eitthvað og það hefur alls ekki virkað, var að vísu allan timan á móti því að fá hann til okkar út frá því að hans hugsun á fótbolta er þvert á móti ManUtd hugsununi sem við allir höfum elskað frá því að við fórum að horfa á fótbolta sama hve langt til baka við förum.
Jonas says
Sæll Haffi, og þakka góð orð í minn garð. En ástæðan fyrir því að ég nefni Giggs er bara sá, hann var stærstan sinn feril hjá sennilega besta þjálfara allra tíma, hlítur að hafa drukkið í sig þekkingu hans. Ég man þann tíma þegar Ferguson fór frá Aberdeen til Manu, hann byrjaði ekkert of vel, Giggs ættu Manu menn að ígrunda alvarlega. Að endingu vil ég ekki að ríkisliðið manc komist upp með svindl, þar eiga allir sem einn að standa saman um að uppræta.
YNWA