Gleðilegt nýtt ár ágætu lesendur! Þá er komið að því að líta til fyrsta leiks á nýju ári en það er heimsókn til Newcastle annað kvöld. Þetta verður fjórði leikur United undir stjórn Ole Gunnar Solskjær en Norðmaðurinn getur orðið annar stjórinn í sögu félagsins til að vinna fyrstu fjóra deildarleiki sína en aðeins Sir Matt Busby tókst það.
Það er eins og við United menn höfum fengið félagið okkar til baka um jólin en allt annar bragur hefur verið á liðinu í síðustu þremur leikjum, allt ágætir sigrar gegn Cardiff, Huddersfield og nú síðast Bournemouth. Það var alltaf vitað að fyrstu fjórir leikir Solskjær yrðu þægilegir á pappírunum og vonin sú að liðið tæki fullt hús stiga yfir þessa törn, eitthvað sem er skyndilega orðinn raunsær möguleiki.
Newcastle
Leikurinn gegn Newcastle gæti þó vel orðið sá erfiðasti á stuttri stjóratíð Solskjær en United hefur ekki fagnað sigri á St. James Park síðan í mars 2015 þegar Ashley Young skoraði sigurmark undir lok leiks, þá undir stjórn Louis van Gaal. Við unnum auðvitað eftirminnilegan 3:2 sigur á Newcastle fyrr í vetur þar sem gestirnir náðu tveggja marka forystu snemma leiks áður en United sneri taflinu við og, að sögn margra, björguðu starfi Mourinho um sinn. Heimsókn okkar á St. James Park í febrúar á þessu ári lauk hins vegar með tapi er Matt Ritchie skoraði eina mark leiksins. Newcastle hefur ekki unnið tvo heimaleiki í röð gegn United í rúm 30 ár.
Newcastle verður sennilega án varnarmannsins sterka Federico Fernandez en hann meiddist í síðasta leik liðsins, 1:1 jafntefli gegn Watford. Þá er fyrrverandi Liverpool-maðurinn Jonjo Shelvey að snúa aftur eftir meiðsli og gæti vel byrjað á morgun sinn fyrsta leik í tvo mánuði. Þá er Ki Sung-yeung enn frá þar sem hann tekur þátt með Suður-Kóreu á Asíuleikunum.
United
Hjá okkar mönnum er auðvitað ljóst að Eric Bailly tekur ekki þátt eftir að hafa fengið beint rautt spjald í síðasta leik gegn Bournemouth. Chris Smalling tekur að öllum líkindum ekki þátt vegna meiðsla ásamt Marcos Rojo. Það eru því sennilega aðeins tveir hafsentar heilir fyrir morgundaginn, Victor Lindelöf og Phil Jones.
Þá ætti þetta að vera fyrst leikur Alexis Sanchéz undir stjórn Solskjær sem og fyrsti leikur Sílemannsins í þó nokkurn tíma en hann hefur verið frá vegna meiðsla. Það verður gríðarlega forvitnilegt að sjá Sanchéz spila aftur í treyju United enda hefur vera hans í Manchester verið hörmungarsaga til þessa en hann er einn þeirra leikmanna sem gæti grætt á nýrri byrjun undir nýrri stjórn.
Þá er Marcus Rashford búinn að leika á als oddi í síðustu leikjum og verður líklega með þó stutt sé síðan síðustu leikir hafa verið spilaðir. Sömuleiðis hefur Paul Pogba heldur betur átt sjö dagana sæla en hann gæti orðið annar leikmaðurinn í sögu United til að skora tvö mörk í þremur deildarleikjum í röð. Afrek sem Cristiano Ronaldo náði árið 2006. Eitthvað hlýtur Solskjær þó að rótera en að öllum líkindum verður mest róterað í liðinu næsta laugardag þegar við mætum Reading í enska bikarnum.
Auðunn says
Skrappí sigur en sigur engu að síður. Og er það sem skiptir máli í svona leikjum.
Það er ekki hægt að búast við flugeldasýningu í öllum leikjum og sannarlega ekki gegn þessu liði á útivelli.
Gott að halda hreinu 👍 og afskaplega gott að sjá hversu skarpur Ole Gunnar er, hann hefur vit á því að notast ekki við Fellaini enda veit hann að hann er bæði mjög mjög lélegur leikmaður og United spilar ílla og lélegan fótbolta með hann innanborðs.
Happy days 👍👍⚽⚽