Mitt í öllum staðfestingum Manchester United á komum og brottförum síðasta mánudag kom staðfesting á því að félagið hefði samið við ítalska úrvalsdeildarliðið Atalanta um kaup á leikmanninum Amad Diallo. Hann mun þó ekki koma til Manchester United fyrr en í janúar. Það á vísu enn eftir að semja um laun, fá guttann í læknisskoðun og græja fyrir hann atvinnuleyfið. En það verður varla mikið mál fyrst Manchester United er búið að smella tilkynningunni á samfélagsmiðla. Hvað gæti svosem klikkað?
🔴 We have reached an agreement with Atalanta for the future transfer of Amad Diallo, subject to a medical, personal terms and work permit. 👋#MUFC
— Manchester United (@ManUtd) October 5, 2020
Eftir að þessi tilkynning kom hafa reyndar komið þó nokkrar fréttir þess efnis að Diallo sé búinn að fara í læknisskoðun og hafi staðist hana. Ferlið við að sækja um atvinnuleyfið og ganga frá öllum nauðsynlegum pappírum getur því hafist strax. Það hlýtur því að hafast fyrir janúar að klára það allt.
Amad Diallo Traoré | Player set for medical today in Bergamo, ahead of move to Man United – Will then ‘be able to organise’ switch to England. https://t.co/dZEkPZ390T #mufc
— Sport Witness (@Sport_Witness) October 8, 2020
Amad Diallo er ungur og afskaplega efnilegur kantmaður sem fæddist á Fílabeinsströndinni í júlí 2002. Hann var aðeins 17 ára og 109 daga gamall þegar hann varð fyrsti leikmaðurinn fæddur árið 2002 til að skora í Seríu A. Það gerði hann í sínum fyrsta leik fyrir aðallið Atalanta, í 7-1 stórsigri á Udinese í lok október 2019. Það tók hann aðeins fjórar mínútur að skora mark eftir að honum var skipt inn á í leiknum.
Amad Diallo var orðaður við Manchester United í lok síðasta árs og einnig í vor á þessu ári. Það var þó ekki fyrr en í september sem fréttir af áhuga United á drengnum fóru á flug. Lengi vel virtist hann þó frekar vera á leið til Parma, jafnvel töldu einhverjir að nafni Manchester United hafi aðeins verið kastað fram til að auka áhuga Parma og annarra liða á að fá hann til sín. Annað eins hefur nú gerst. Parma var svo búið að tilkynna um lánssamninga á fjórum leikmönnum í byrjun október, Amad Diallo var einn þeirra. En það virðist ekki hafa verið alveg jafn slegið og Parmaliðar héldu því Manchester United náði að landa samningi um að kaupa leikmanninn á gluggadeginum. Hjá Parma eru menn ekkert glimrandi sáttir við þá atburðarrás en við grátum þessa þróun vonandi ekki í janúar þegar kappinn kemur til okkar manna.
Lengi framan af var hann þó aðallega kallaður Amad Traore eða Traoré í fréttaflutningi. Hann vill þó sjálfur heldur nota nafnið Amad Diallo og virðum við það að sjálfsögðu við hann.
It's also worth noting that Traore now goes by the name 'Amad Diallo'.
That is due the man who claimed to be his father when Amad arrived in Italy as a boy in fact being no relation, meaning Amad & his brother Hamed, who plays for Parma, illegally entered the country
— Tom Maston (@TomMaston) October 1, 2020
Diallo hóf sinn feril á Ítalíu með unglingaliðinu Boca Barco, sem staðsett er í Reggio Emilia í Norður-Ítalíu. Reggio Emilia er aðallega þekkt fyrir kennsluaðferð sem notuð er í mörgum leikskólum hér á landi en minna þekkt fyrir fótbolta. Okkar maður var þó fljótur að vekja mikla athygli með liðinu. Aðeins 12 ára gamall varð hann markakóngur á jólamóti á svæðinu þrátt fyrir að vera langyngsti leikmaðurinn sem tók þátt í mótinu.
Árið 2015 flutti hann sig um set og hóf að leika knattspyrnu með Atalanta. Þar fór hann strax að spila mikið upp fyrir sig í unglingaliðum Atalanta og tók strax vel til sín, skoraði mikið og skaraði fram úr á vellinum. Það tók hann líka ekki langan tíma þangað til hann var farinn að bera fyrirliðabandið í leikjum. En hann ákvað líka að skella sér á samfélagsmiðla, stofnaði sér Instagram-síðu og fyrsta myndin sem hann setti þangað inn var þessi:
View this post on Instagram
Amad Diallo er örvfættur hægri kantmaður (ég veit, jömm!) sem þykir afskaplega beinskeyttur, áræðinn og flinkur með boltann. Honum þykir fátt skemmtilegra en að taka menn á og hefur alls konar trix upp í erminni þegar kemur að því að leika sér með boltann framhjá varnarmönnum. Hann er snöggur, með lágan þyngdarpunkt og flottar hraðabreytingar. Skotfót góðan og auga fyrir sendingum. Hann spilaði sem tía í yngri flokkum áður en hann færði sig út á hægri kantinn. Hann hefur líka spilað mezzala-stöðuna með góðum árangri.
Auðvitað verður þó að taka tillit til þess að hann hefur nánast eingöngu spilað á með yngri liðum fram til þessa. Þrátt fyrir að hafa spilað upp fyrir sig mestan sinn yngriflokkaferil þá hefur hann, enn sem komið er, mjög litla reynslu af aðalliðsfótbolta. Hann hefur aðeins komið við sögu í 3 leikjum til þessa með aðalliði Atalanta. Það má því ekki búast við því að hann verði tilbúinn fyrir leiki með aðalliði Manchester United strax í janúar. En spennandi er hann og vonandi á hann ekki mjög mikið eftir í þroska þangað til hann getur farið að banka á dyrnar með aðalliðinu.
#mufc are in love with Amad Diallo and are convinced that they signed a star. Solskjær facetimed Diallo and told him he is part of the club's future and that he is convinced he is ready to play for United #mulive [@FabrizioRomano, @podcastherewego]
— utdreport (@utdreport) October 7, 2020
Það eru ekki allir sammála um hvaða verð United greiðir fyrir hann en það virðast þó flestir sammála um að það sé grunnverð, plús mögulegar bónusgreiðslur eftir árangri. Saman virðist það verða um 40 milljón evrur, hvort sem það er 30+10 eða 20+20/19+21. Það verður svo að koma í ljós hvað er satt í því. Þetta virkar ansi hátt verð fyrir ungan og þetta óreyndan leikmann á hæsta leveli en ef hann nær að þroska þann efnivið sem er til staðar þá erum við að tala um algjöran stjörnuleikmann. Megi hann komast sem næst því og ná að blómstra sem mest hjá Manchester United.
Velkominn, Amad Diallo!
Skildu eftir svar