• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
Enska úrvalsdeildin

Manchester City 0:2 Manchester United

Magnús Þór skrifaði þann 7. mars, 2021 | 10 ummæli

Enn og aftur nær Ole Gunnar Solskjær í þrjú stig á Etihad. Miðvarðarparið sem hafði fengið á sig þrjú mörk í 14 leikjum fékk á sig tvö í dag. Dean Henderson var öryggið uppmálað í marki Manchester United og þurfti lítið að gera þökk sé góðum varnarleik. Loksins var dæmt víti og var það eins borðleggjandi og það verður. Luke Shaw heldur áfram að brillera á meðan Anthony Martial sem átti annars frábæran leik mistókst að skora í tveimur dauðafærum.

Embed from Getty Images

Leikurinn

Þessi leikur hefði varla getað byrjað betur fyrir United en strax í fyrstu mínútu leiksins brýtur Gabriel Jesus klaufalega á Anthony Martial innan vítateigs og í kjölfarið var vítaspyrna dæmd. Á punktinn steig að sjálfsögðu Bruno Fernandes sem skoraði framhjá Ederson sem var ekki langt frá því að verja spyrnu Portúgalans. Vissulega draumabyrjun. Eins og við var að búast voru heimamenn í Manchester City töluvert meira með boltann í leiknum og leikplan Solskjær var að leyfa þeim það og vinna svo boltann og beita skyndisóknum sem fá lið gera betur en United. Kevin de Bruyne átti líklega sinn versta leik í langan tíma í dag og það hjálpaði okkar mönnum talsvert. Svo má setja spurningarmerki við það að velja Jesus framyfir Aguero sem virðist alltaf skora gegn United. Fyrir utan þetta átti City ekki hræðilegan leik en vörn United át bara allt sem heimamenn reyndu. Dean Henderson leit mjög vel út í dag þrátt fyrir að hafa ekki haft jafnmikið að gera og við bjuggumst öll við fyrir þennan leik. United leiddi leikinn í hálfleik með einu marki gegn engu.

Embed from Getty Images

Seinni hálfleikurinn byrjaði ekki ósvipað og sá fyrri endaði en heimamenn héldu áfram að halda boltanum og héldu áfram að sækja. En United hélt áfram að verjast öllum sóknaraðgerðum City. Þegar fimm mínútur voru liðnar af leiknum átti United skyndisókn og í henni skoraði Luke Shaw nett mark í fjærhornið óverjandi fyrir Ederson í marki City. Allt í einu var United tveimur mörkum yfir gegn liðinu sem fjölmiðlar voru búnir að krýna sem eitthvað ósigrandi skrýmsli og höfðu reyndar gert það sama fyrir Liverpool í fyrra og fyrr á þessu tímabili. Spurning hvort fjölmiðlafólk fara kannski varlegar í yfirlýsingagleðinni? Eftir markið hélt City áfram að sækja og United áfram að verjast en gestirnir hefðu getað skorað amk tvö mörk til viðbótar í dag en Anthony Martial var ekki á skotskónum en átti að öðru leyti fínan leik í dag og  ásamt Daniel James mjög hreyfanlegur. United tókst að halda þetta út og unnu sanngjarnan 0:2 sigur.

Þrátt fyrir að þetta hafi verið æðislegur sigur þá eru en 11 stig í City. Vonandi mun liðið byggja á þessum leik og enda deildina á jákvæðan hátt. Maður leiksins að mínu mati var Luke Shaw. Marcus Rashford fór meiddur af velli í seinni hálfleik og vonandi er það ekki alvarlegt.

Manchester United

26
Henderson
23
Shaw
5
Maguire
2
Lindelöf
29
Wan-Bissaka
17
Fred
39
McTominay
11
Rashford
18
Bruno Fernandes
21
James
9
Martial

Bekkur: Grant, Bailly, Greenwood (Rashford), Amad, Telles, Matic (Martial), Williams (Fernandes), Tuanzebe, Shoretire.

Manchester City

Ederson
Zinchenko
Stones
Dias
Cancelo
Gündoğan
Rodri
Sterling
De Bruyne
Mahrez
Jesus

Bekkur: Steffen, Walker (Cancelo), Aguero, Laporte, Silva, F. Torres, Mendy, Fernandinho, Foden (Jesus).

Efnisorð: Leikskýrsla Leikskýrslur Manchester City 10

Reader Interactions

Athugasemdir

  1. 1

    Magnús Þór says

    7. mars, 2021 at 15:49

    Cavani er ekki með vegna meiðsla og David de Gea og frú eignuðust barn á dögunum og er hann í leyfi.

    2
  2. 2

    Zorro says

    7. mars, 2021 at 17:11

    Svakalega erum við orðnir leiðinlegt og lélegt lið…enginn sòkn..áhugi eða mettnaður…burt með þennan Ole🎃

    5
  3. 3

    Magnús Þór says

    7. mars, 2021 at 18:27

    @Zorro: Hahahaha

    6
  4. 4

    Scaltastic says

    7. mars, 2021 at 18:38

    Þetta lið og þessi stjóri maður lifandi… Ég sagði fyrir þessa þrjá útileiki að 5 stig væri ásættanleg uppskera, ekki get ég kvartað núna þrátt fyrir að Palace leikurinn var brútal.

    Ég er sérstaklega þakklátur þrjóskupúkanum Pep fyrir að spila Sterling og Jesus í staðinn fyrir Foden og Silva, megi sú tilraun halda áfram um ókomna framtíð.

    Lindelöf og Dan James bestu menn vallarins hér á bæ. Alvöru heilsutvenna.

    6
  5. 5

    Cantona no 7 says

    7. mars, 2021 at 18:59

    Ole Ole

    8
  6. 6

    Tómas says

    7. mars, 2021 at 19:32

    Luke Shaw bestur, fannst Mctominay eiga stjörnuleik líka.

    Fagna því að sokki var troðið upp í þá sem voru að drulla yfir Ole hérna eftir Palace leikinn.
    Enda hefur hann heilt yfir gert mjög vel með liðið. En nú þarf að landa þessu öðru sæti og einum titli.

    6
  7. 7

    Turninn Pallister says

    7. mars, 2021 at 19:53

    Mikið er ég ánægður með að Sterling hafi spilað þennan leik. Pep hefur greinilega ekki spáð mikið í tölfræðina hjá honum gegn okkar mönnum þegar hann valdi liðið fyrir leikinn. Okkar menn fá hrós í dag og sýndu að það er ekki alveg að ástæðulausu að við séum í öðru sæti deildarinnar. Shaw maður leiksins en shout out á Henderson og varnarlínuna fyrir framlag sitt í dag.

    Manchester er rauð og því ber að fagna glory glory!

    6
  8. 8

    Karl Garðars says

    7. mars, 2021 at 20:01

    Þetta var magnaður leikur þar sem við vinnum og höldum hreinu gegn verðandi meisturum á emptyhad.
    Þarf samt að viðurkennast að mestmegnið féll með okkur í þessum leik og við áttum líklega ekkert meira skilið út úr þessu en city en það er öllum drullusama um það.

    Það var alvöru barátta í okkar mönnum og ekki hægt að velja einn umfram annan sem mann leiksins fyrir okkur. Sterling gerði að vísu enn og aftur tilkall til þess sem er alltaf pínu kósý en allir hinir börðust vel og voru flottir. Shaw með frábært mark og Henderson með bjútífúl lykilsendingu þar.
    M.a.s Martial minn var alveg ágætur.
    Vonum bara að Marcus sé ekki meiddur.

    5
  9. 9

    Einar Ingi Einarsson says

    7. mars, 2021 at 22:30

    Frábær dagur átti ekki von á sigri eftir síðustu frammistöðu sem var vægast sagt ömurleg .

    2
  10. 10

    Rúnar P says

    8. mars, 2021 at 00:10

    Frábært að sjá Bleikaliðið tapa fyrir Nýliðum dagsins og Machester borg er enn rauð 😉

    1

Skildu eftir svar Hætta við svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Primary Sidebar

Michelsen Tag Heuer er styrktaraðili Rauðu djöflanna

Síðustu ummæli

  • Elis um Fyrsta lið vetrarins!
  • Elis um Fyrsta lið vetrarins!
  • Theodór um Fyrsta lið vetrarins!
  • Snjómaðurinn ógurlegi um Fyrsta lið vetrarins!
  • Arni um Fyrsta lið vetrarins!

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2022 · Keyrt á WordPress