• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
Enska úrvalsdeildin

Milan í Mílanó á morgun

Björn Friðgeir skrifaði þann 17. mars, 2021 | Engin ummæli

Manchester United er á leið til Ítalíu til að etja kappi við AC Milan á San Siro á morgun. Eftir 1-1 vonbrigðin á fimmtudaginn er ljóst að United þarf á marki að halda á morgun, og því er vonandi að liðið verði sókndjarft sem því nemur.

Það verða fá til þessa að gráta um of ef leikjaálag minnkar eftir leikinn á morgun en á hinn bóginn er Milan eitt sterkasta liðið sem eftir er í keppninni og því til mikils ef United kemst áfram. Stærstu fréttirnar eru auðvitað þær að David de Gea, Paul Pogba og Donny van de Beek  eru allir í hópnum. Það er eftir að sjá hvort Pogba er nógu góður af meiðslunum til að byrja inná en hann verður í það minnsta á bekknum. Vonast var til að Edinson Cavani færi með en á síðustu æfingu í morgun kom í ljós að hann er ekki í standi til þess og þarf að verða eftir.

Anthony Martial er enn ekki orðinn heill og er ekki með í för, né heldur Eric Bailly og Juan Mata. Shola Shoretire situr heima en Amad Diallo mætir.

Það þarf því kannske ekki að hafa fleiri orð um þetta, ég ætla að leyfa mér að vona að Pogba verði til í slaginn og liðið verði svona

1
De Gea
23
Shaw
5
Maguire
2
Lindelöf
29
Wan-Bissaka
6
Pogba
38
McTominay
10
Rashford
18
Bruno
21
James
11
Greenwood

Engum kæmi þó á óvart ef Fred kæmi þarna inn fyrir Pogba.

United hefur ekki oft riðið feitum hesti frá San Siro, fyrstu fjóra leikina þar skoraði liðið ekki mark, en 2011 vannst frækinn 3-2 sigur eins og Halldór fór yfir í upphitun fyrir fyrri leikinn. Það er nauðsynlegt að sýna þannig frammistöðu á morgun.

AC Milan

Milan var jafnvel í meiri meiðslavandræðum en United, en Hakan Çalhanoğlu, Ante Rebić og Theo Hernández léku allir í 0-1 tapi gegn Napoli um helgina, og búist er við að Zlatan Ibrahimović verði klár líka. Ibrahim Bennacer og Alessio Romagnoli eru svo komnir til æfinga og er búist við þeim á bekkinn.

Rebić, sem kom inná móti Napoli tókst reyndar að fá beint rautt spjald í uppbótartíma fyrir að fyrtast við dómara eftir að hann braut á andstæðingi, en það telur auðvitað ekki í Evrópukeppni. Annað mál hvort það hefur áhrif á það hvort hann byrjar.

Spáum þessu svona

Donnarumma
Hernández
Kjær
Tomori
Calabria
Kessié
Tonali
Rebić
Çalhanoğlu
Saelemaekers
Zlatan

Það getur verið að Zlatan sé orðinn 39 ára en það væri auðvitað stóra sagan ef hann gerði sínu gamla liði grikk. Það má ekki gerast, og það kemur í ljós á morgun kl 20:00

0

Reader Interactions

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Arni um Liðið í Manchester slagnum
  • Helgi P um Liðið í Manchester slagnum
  • Gummi um Liðið í Manchester slagnum
  • Halldór Marteins um Liðið í Manchester slagnum
  • sófinn um Liðið í Manchester slagnum

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress