• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
Meistaradeild Evrópu

Stjóralaust og stefnulaust Manchester United heimsækir Villarreal

Magnús Þór skrifaði þann 22. nóvember, 2021 | Engin ummæli

Eftir vægast sagt djúpan dal hjá Manchester United hefur stjóranum Ole Gunnar Solskjær verið sagt upp störfum. Það sem vekur athygli er að hann var sá eini í þjálfaraliðinu sem var látinn fara. Mögulega mun það breytast þegar nýr stjóri tekur við, hvenær sem það nú verður. Michael  Carrick er tímabundinn stjóri þangað til að annar tímabundinn stjóri verður fenginn til að stýra liðinu út tímabilið. Við ræddum þetta í nýjasta þætti Djöflavarpsins. Carrick stýrir sínum fyrsta leik annað kvöld þegar United flýgur til Spánar og mætir á Estadio de la Cerámica, heimavöll Villarreal.

Embed from Getty Images

Heimaliðið hefur ekki átt neitt sérstakt tímabil hingað til. Eru vissulega í 2. sæti F-riðils með 7 stig eins og United sem er í 1. sætinu. Gengið í La Liga hefur hinsvegar ekki verið æðislegt og situr liðið í 12. sæti. Vörnin hefur verið vandamál ekki ósvipað og hjá okkur mönnum. Nokkrir lykilmenn verða mögulega fjarri góðu gamni en þeir eru Gerard Moreno, Emmanuel Capoue og Arnaut Danjuma. Aðrir leikmenn ættu að vera klárir í slaginn.

Mögulegt byrjunarlið

1
De Gea
27
Alex Telles
2
Lindelöf
3
Bailly
29
Wan-Bissaka
18
Bruno Fernandes
31
Matic
34
van de Beek
10
Rashford
7
Ronaldo
25
Sancho

Sigur í þessum leik væri innilega kærkominn en jafntefli gæti sloppið ef sigur næst gegn Young Boys í lokaumferðinni.

Leikurin hefst kl. 17:45

Efnisorð: Upphitun 0

Reader Interactions

Skildu eftir svar Hætta við svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Primary Sidebar

Michelsen Tag Heuer er styrktaraðili Rauðu djöflanna

Síðustu ummæli

  • Arni um Mánuður af sumarfríi
  • Keane um Mánuður af sumarfríi
  • Keane um Mánuður af sumarfríi
  • Sir Roy Keane um Mánuður af sumarfríi
  • Halldór Marteins um Mánuður af sumarfríi

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2022 · Keyrt á WordPress