• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
Enska úrvalsdeildin

Aston Villa í kvöld

Björn Friðgeir skrifaði þann 15. janúar, 2022 | Engin ummæli

Síðbúin upphitun, en klukkan 17:30 á eftir fer United á Villa Park þar sem Aston Villa tekur á móti þeim og freistar að hefna bikartapsins á mánudaginn var.

Það er ekki hægt að segja að sigurinn´a mánudaginn hafi verið sannfærandi þó að vissulega hafi United haft tök á leiknum. Enn á ný er erftitt fyrir Rangnick að finna leikstíl sem hentar leikmönnum, og honum, og ber árangur.  Svo fer í gang umræða um það hverju sé að kenna, Ronaldo fór í viðtal í vikunni og virtist finna að því að yngri leikmenn í dag ættu erfitt með að taka gagnrýni. Það er alveg ljóst að það er ekki alltaf hægt að kenna stjóranum og í dag þarf að stíga upp frá mánudeginum ef taka á þrjú stig með heim frá Villa Park

Við þekkjum lið Villa frá á mánudaginn, en nú hefur Philippe Coutinho bæst í hópinn á láni frá Barcelona og þó að lífið þar hafi reynst honum erfitt og hann sé nýkominn til Villa fer þar leikmaður sem mun styrkja Villa gríðarlega. Búist er við að hann taki stöðu Ings í framlínunni.  John McGinn er í banni og Lucas Digne kemur frá Everton og tekur stöðu Matt Targett í vinstri bak.

Martínez
Digne
Mings
Konsa
Cash
Sansa
Luis
Ramsey
Coutinho
Watkins
Buendía

Þetta verður þá svona og verkefnið hjá United er að ná tökum á miðjunni, nokkuð sem var ekki hægt mestan hluta síðasta leiks

1
De Gea
23
Shaw
19
Varane
5
Maguire
20
Dalot
18
Bruno
31
McTominay
17
Fred
11
Greenwood
19
Cavani
7
Ronaldo

Luke Shaw og Scott McTominay eru í banni en Ronaldo, Harry Maguire , Diogo Dalot, Jadon Sancho og já, Phil Jones ættu allir að vera búnir að ná sér af meiðslum. Þetta er stillt í 4-4-2 þökk sé tæknilegum örðugleikum, ætti að vera 4-2-2-2 en það verður enginn hissa ef þetta fer í 4-2-3-1. Það bara verður að gera eitthvað á miðjunni.

Þetta verður enn ein þolraunin og það er alger nauðsyn að liðið geri mun betur en á mánudaginn.

Leikurinn er sem fyrr segir kl 17:30 á eftir og á flautunni er David Coote

0

Reader Interactions

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Arni um Liðið í Manchester slagnum
  • Helgi P um Liðið í Manchester slagnum
  • Gummi um Liðið í Manchester slagnum
  • Halldór Marteins um Liðið í Manchester slagnum
  • sófinn um Liðið í Manchester slagnum

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2025 · Keyrt á WordPress