• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
Enska úrvalsdeildin

Ljúf 3 stig gegn Leicester

Ragnar Auðun Árnason skrifaði þann 1. september, 2022 | 7 ummæli

Erik ten Hag gerði engar breytingar á liðinu frá sigrinum gegn Southampton, þegar margir bjuggust kannski við því að Casemiro myndi hefja leik.

Fyrri hálfleikur

Leikurinn byrjaði svona ágætlega rólega en þó fínt tempó hjá báðum liðum og frekar mikið jafnræði meðal þeirra en lítið um færi. Christian Eriksen fékk hálffæri en setti boltann fram hjá og Dewsbury-Hall átti þá skot úr aukaspyrnu af frekar löngu færi sem David De Gea greip, annars gerðist ekki mikið annað fyrstu 20 mínúturnar. Það var hins vegar á 23 mínútu þegar fyrst dróg til tíðinda í leiknum, Danny Ward markmaður Leicester hreinsaði boltann frá marki sínu, United vann fyrsta boltann og Bruno Fernandes stakk boltanum inn fyrir á Marcus Rashford sem stakk honum því næst á Jadon Sancho sem rölti framhjá Ward og lagði hann þægilega í netið, 1-0 fyrir United.

Eftir markið fór United að taka örlítið yfir leikinn og fékk nokkur hálffæri, Sancho fékk líklegast besta færið fyrir utan þegar hann skoraði eftir flottan undirbúning frá Rashford átti Sancho skot innan úr vítateig en í varnarmann Leicester og þaðan lak boltinn í hendur Danny Ward. Þegar fimm mínútur voru eftir af fyrri hálfleiknum brögguðust Leicester menn aðeins og fóru aðeins að sækja en sköpuðu sér þó ekki neitt almennilegt færi en það kristallast kannski best í xG tölfræði þeirra í fyrri hálfleik en xG-ið þeirra var 0.03. Barnes átti fínt skot fyrir utan teig sem fór yfir og Leicester fékk  eina álitlega aukaspyrnu hægra meginn við vítateig United en ekkert varð úr henni. Staðan í hálfleik 1-0 og ekki mjög mikill glamúr yfir fyrri hálfleik en 1-0 ágætlega verðskulduð staða en ekki mikið meira en það. United sýndi þó á köflum í fyrri hálfleik flott spil þó að það vantaði oft loka hnykkinn til þess að það spil myndi skila góðu færi. Þess má geta að á 15. mínútu mátti heyrast vel í United stuðningsmönnum „We want Glazers out“ og það heyrðist reyndar mjög vel allan leikinn í United stuðningsmönnum á pöllunum.

 

Seinni hálfleikur

United menn komu sprækir út úr leikhléi en eftir um 5 mínútna leik fengu Leicester menn hraðri sókn og braut Martinez á Dewsbury-Hall u.þ.b. 7 metrum fyrir utan vítateig, Maddison tók aukaspyrnuna og De Gea þurfti að hafa sig allan við til þess að koma í veg fyrir mark. Eftir þetta byrjuðu Leicester menn að taka völdin á leiknum. Á 56 mínútu gerði ten Hag sína fyrstu skiptingu, Casemiro kom inn í stað Anthony Elanga. Leikurinn róaðist aðeins eftir að Casemiro kom inn á en Leicester þó enn þá líklegri aðilinn. Leicester fékk aukaspyrnu á stórhættulegum stað í kringum 60. mínútu en skot Maddison beint í varnarvegginn. Cristiano Ronaldo kom inn á fyrir Jadon Sancho eftir u.þ.b. 20 mínútna leik í seinni hálfleik. Hann átti tvö hættulegustu færi seinni hálfleiks annars vegar þegar hann klippti boltann rétt framhjá úr frekar þröngu færi og svo þegar Bruno stakk honum inn fyrir en í þröngu færi skaut hann boltanum framhjá eiginlega þannig að maður spurði sig hvort hann væri að senda boltann fyrir. Þrátt fyrir að Leicester væru mögulegra líklegri þá gekk þeim bölvanlega að skapa sér einhver færi. Undir lokinn þá var tilfinningin að United myndi mögulega skora annað markið þar sem Leicester voru farnir að setja marga menn fram. Það var þó enginn United maður sem ógnaði marki Leicester undir restina en Iheanacho var hársbreidd frá því að setja boltann í eigið net eftir að fyrirgjöf Bruno fór af honum og rétt yfir markrammann. Í uppbótartíma fékk Leicester eitt prýðisfæri en James Justin hamraði þá boltanum langt upp í stúku sem reyndist seinasta færi heimaliðsins.

 

Að lokum

Leikurinn spilaðist talsvert eins og gegn Southampton, United voru betri aðilinn heilt yfir og Leicester var í bölvuðu basli við að skapa einhver færi. United gerði þetta þó spennandi með því að setja ekki mark númer tvö, því miðað við spilamennsku Leicester þá voru þeir aldrei að fara skora meira en eitt mark. Vörnin hjá United var skipulögð og góð en það þarf meiri ákveðni og fókus fram á við til þess að gera út um leik líkt og þennan. Mér fannst menn stundum hálf kærulausir á vallarhelmingi Leicester í seinni hálfleik eins og að staðan væri 3-0 en ekki 1-0. Það er þó hægt að hugga sig við það að United sé búið að halda hreinu tvo leiki í röð og vinna tvo leiki á útivelli í röð og virðast vera orðnir betri í að drepa leiki sem er eitthvað sem hefur vantað síðastliðin ár. Casemiro kom örlítið ryðgaður inn á en spilaði sig jafnt og þétt inn í leikinn, verður áhugavert hvort hann byrji þann næsta, McTominay stóð sig þó vel í þessum leik þrátt fyrir að hann hafi verið sá sem braut á Maddison á stórhættulegum stað. Þá virðist miðvarðarpar United fyrir tímabilið algjörlega vera geirneglt og það er ofboðslega gaman að vera með miðvörð eins og Varane sem les leikinn gríðarlega vel.

 

United heldur nú heim með níu stig eftir fimm leiki í ensku úrvalsdeildinni og útlitið talsvert bjartara en eftir fyrstu tvo leiki tímabilsins. United tekur svo á móti toppliði Arsenal næsta sunnudag og liðið þarf þá standa sig talsvert betur en í leiknum gegn Leicester til þess að vera fyrsta liðið til þess að vinna Arsenal á tímabilinu. Það er þó ekkert að óttast United þekkir það vel að kippa Arsenal niðrá jörðuna þegar að þeir halda að þeir séu ósigrandi (mynd að neðan fyrir þá sem ekki muna.)

 

xG leiksins

United: 1.26

Leicester: 0.55

 

Liðið

1
De Gea
12
Malacia
19
Varane
6
Martinez
20
Dalot
39
McTominay
14
Eriksen
36
Elanga
8
Bruno
25
Sancho
10
Rashford

 

Lið Leicester

1
Ward
33
Luke Thomas
6
Evans
42
Soumare
2
Justin
25
Ndidi
7
Barnes
22
Dewsbury-Hall
8
Tielemans
10
Maddison
9
Vardy

7

Reader Interactions

Comments

  1. Helgi P says

    1. september, 2022 at 18:43

    Hvað er Elanga búinn að sýna sem ég hef ekki tekið eftir

  2. Helgi P says

    1. september, 2022 at 21:03

    Nú getur maguire farið og fundið sér nýtt lið því hann er ekki að fara slá neinn af þessum varnarmönum út

  3. EgillG says

    1. september, 2022 at 21:45

    maður sá í það í kvöld að Maguire hefur ekkert að gera hérna lengur

  4. Scaltastic says

    1. september, 2022 at 22:28

    Ekki hægt að kvarta yfir 6 stigum í þessum útileikjum, sérstaklega í ljósi þess að fremstu 4 hafa verið gjörsamlega út á túni + Eriksen í áttunni er alls ekki að fúnkera. Ef Elanga og Eriken byrja á sunnudaginn og Rashy verður uppá topp þá verður þetta því miður hlaðborð fyrir Gabriel og Saliba.

    Ég er ekki að fara að drekka McTominay kool aid-ið aftur eins og fyrir þrem árum, hins vegar hefur hann verið vel ásættanlegur síðustu þrjá leiki.

    Ef Varane nær 75% af tímabilinu í stað 50%, þá lifir draumurinn um sjötta sætið.

  5. Tòmas says

    1. september, 2022 at 22:46

    Margt jákvætt í þessu. Vörnin lítur vel út.
    Er ekki alveg sammála því að Eriksen sé ekki að virka í 8unni. Finnst hann hafa gert vel en dregið af honum er liðið hefur á leikina.
    Finnst Bruno berjast en stundum reyna þvinga fram úrslitasendingu þegar hún er ekki tímabær.
    Hefðum þurft annan vel spilandi miðjumann samt og alvöru target center.
    Vonandi áherslan í næstu gluggum.

  6. Silli says

    2. september, 2022 at 01:18

    Mér finnst margt afar jákvætt hafa gerst hjá liðinu okkar undanfarnar vikur.

    Sérstaklega er gaman að sjá sjálfstraustið og ástríðuna vaxa hjá liðinu (t.d. eftir tæklingu Dalot þar sem hann fagnaði eins og hann hefði unnið F1 keppni).
    Vörnin í síðustu 3 leikjum er svo maaaaaargfalt traustari en undanfarin ansi mörg ár og er greinilega að smella, þrátt fyrir að hafa spilað lítið saman.
    Martinez og Varane verður rosalegt CB par ef þeir haldast heilir og halda áfram að þróa sinn leik.
    Loksins er maður aftur farinn að sjá Varane eins og hann var hjá RM, sem er örugglega út af því að hann treystir Martinez betur en öðrum miðvörðum sem hann hefur þurft að spila með undanfarið.
    Svo eru bakverðirnir bara drulluflottir
    Allt byrjar þetta á varnarleiknum, ekki satt?

    ETH er greinilega að vinna vinnuna sína! Skipulagið er að koma og menn virðast vita sín hlutverk á vellinum.

    ….og já Eriksen var maður leiksins hjá Sky, enda flottur leikur hjá honum.

  7. Gummi says

    2. september, 2022 at 10:00

    Loksins er þetta lið farið að spila eins og lið

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Arni um Liðið í Manchester slagnum
  • Helgi P um Liðið í Manchester slagnum
  • Gummi um Liðið í Manchester slagnum
  • Halldór Marteins um Liðið í Manchester slagnum
  • sófinn um Liðið í Manchester slagnum

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress