• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
Enska úrvalsdeildin

Liverpool á eftir

Björn Friðgeir skrifaði þann 5. janúar, 2025 | 10 ummæli

Síðan er komin upp aftur eftir tæknileg vandamál, rétt í tæka tíð til að minna á leikinn gegn Liverpool á eftir kl 16:30.

Við getum ekki beðið!!

10

Reader Interactions

Comments

  1. Einar says

    5. janúar, 2025 at 11:58

    Okkar helsta von var að leiknum yrði frestað. Lýtur allt út fyrir að svo verði ekki. Ég er alveg dottinn í einhvern svartnættisspíral eftir þessa leiki undir Amorim. Vonandi koma þeir og hann sérstaklega mér á óvart með einhverju masterplani.

  2. Einar says

    5. janúar, 2025 at 16:46

    Já nei. Eða ekki

  3. Tómas says

    5. janúar, 2025 at 19:57

    Förum á Anfield gegn heitasta liði í heimi og erum jafngóðir.
    Ef við hefðum nýtt færið undir lokin hefði það ekkert verið ósanngjarn sigur.
    Amorim mun bæta þetta lið jafnt og þétt á næstu mánuðum. Það að hann víkur ekkert frá sinni hugmyndafræði mun síðan standa með liðinu undir lok leiktíðar og skipta miklu við upphaf næstu.

  4. Auðunn says

    6. janúar, 2025 at 09:02

    Það er ekkert annað í stöðunni enn að gefa Amorim rými og tíma til að byggja þetta lið upp.
    Ég meina hver annar ætti að fá tækifæri til þess?
    Hann er ekki búinn að fá marga daga á æfingarsvæðinu með þetta lið, tekur við liðinu á erfiðum tíma þegar stutt er á milli leikja og lítill tími gefst til að koma sínum hugmyndum í framkvæmd.
    Enn það er líka alveg ljóst að hann þarf liðstyrk og meiri gæði í hópinn þótt ég sé ekkert sérstaklega sammála því að hann þurfi 11 nýja leikmenn.
    Það var átakanlegt að sjá Casemiro og Eriksen saman á miðjunni gegn Newcastle og það er miðja sem maður vill ekki sjá aftur hjá þessu liði. Þessir menn ásamt Lindelof og Antony þurfa að fara í þessum mánuði svo hægt sé að fá inn meiri gæði í þeirra stað.
    Enn sjáum til, ekkert mjög bjartsýnn á að það verði miklar ef einhverjar breytingar á hópnum núna í Jan enn ef liðið spilar áfram eina og það gerði í þessum leik þá hef ég ekki miklar áhyggjur.
    Það þarf að byggja ofan á þennan leik og halda áfram á þessari braut.

  5. Steve Bruce says

    6. janúar, 2025 at 10:39

    Það sem liðið þarf er góður slúttari. Því miður eru Hojlund og Zirkzee einfandlega ekki nógu miklir markaskorarar. Hef velt fyrir mér framherja eins og Chris Wood. Iðnaðarframherji sem nýtir færin sín vel enda þótt hann sé ekki besti fótboltamaður heims. Á endanum snýst þetta um að taka sénsana sem bjóðast. Vera inní teignum.

  6. Auðunn says

    6. janúar, 2025 at 13:53

    Chris Wood er 33 ára og er að eiga fínt tímabil með Forest, ég held að það sé komið meira en nóg af skammtímalausnum hjá Man.Utd eins og Zlatan, Cavani, Alexis Sánchez, Falcao ofl ofl sem ég man ekki einusinni nöfnin á. Þessir menn gátu ekki rass fyrir liðið og fengu alltof feita samninga.
    United þarf framtíðar leikmenn enn það er alls ekki auðvelt að kaupa frábæran markaskorara í Janúar því miður.

  7. Steve Bruce says

    6. janúar, 2025 at 21:27

    @Auðunn. Zlatan var mjög góður og lykilmaður á sínu fyrsta tímabili. Hann meiddist hinsvegar mjög illa um vorið og náði sér ekki aftur á strik. Cavani átti fína spretti og hefði skorað mun meira ef hann hefði fengið betri þjónustu. Falcao var vissulega slakur og Sanchez hræðilegur.
    Chris Wood hefur ólíkt þeim flestum hér að ofan spilað mikið á Englandiog kann á boltann sem þar er spilaður. Svona target centerar geta léttilega skilað sínu til 36 ára aldurs í hið minnsta. Munum í því samhengi að Teddy Sheringham varð leikmaður ársins árið 2001 þá 35 ára gamall.
    Það er mikið „gamble“ að kaupa kornunga stráka og ætla að treysta á þá í fremstu víglínu. Rasmus Hojlund á 70 milljónir punda hefur hingað til ekki verið góð kaup því miður. Hann væri hinsvegar flottur sem annar eða þriðji striker.

  8. Auðunn says

    8. janúar, 2025 at 12:34

    Æi ég veit ekki með Zlatan, hann fer amk ekki í sögubækurnar hjá mér sem góður Man.Utd leikmaður.
    Varðandi að Cavani hafi ekki fengið betri þjónustu þá er það einfaldlega þannig með alla framherja, því betri þjóustu sem þeir fá því fleiri mörk skora þeir myndi ég halda.
    Finnst himin og haf á milli Sheringham annarsvegar og Wood hinsvegar þegar kemur að gæðum.
    Sheringham var búinn að sanna sig með betri framherjum deildarinnar í mörg mörg ár og var virkilega góður alhliða leikmaður, hann skoraði ekki bara mikið heldur lagði hann líka upp og var heilt yfir frábær leikmaður. Wood er að eiga eitt gott tímabil, hingað til hefur hann ekki verið mikið meira en miðlungs leikmaður.
    Já enn nei takk, United þarf eitthvað meira spennandi en Wood að mér finnst persónulega.

  9. Helgi P says

    13. janúar, 2025 at 14:19

    Eru þið búnir að missa áhugan að halda uppi þessari síðu

  10. dr. Gylforce says

    13. janúar, 2025 at 19:09

    Einmitt, eg er sammála Helga P, eruð þið hættir??? Maður skilur alveg að það er mikil vinna að halda úti svona síðu en það verður að segjast að dr. Gylforce er alveg tilbúinn að ljá ykkur lið ef það er vilji fyrir því – maður lifandi!

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Primary Sidebar

Michelsen Tag Heuer er styrktaraðili Rauðu djöflanna

Síðustu ummæli

  • Elis um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Halldór Marteins um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Steve Bruce um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Halldór Marteins um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Sveinn um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2025 · Keyrt á WordPress