• Sóknarleikurinn er orðinn allt annar. Ekki að það sé teljandi afrek en boltinn gengur hraðar. Mestu munar um Bryan Mbeumo sem er mjög fljótur, sem býr til nýja ógn en líka með góðan vinstri fót og er að negla inn góðum aukaspyrnum og hornspyrnum.
• Varnarleikurinn er ekki enn kominn í lag. Fiorentina fékk gefins mark eftir hornspyrnu og það var líka vandræðagangur gegn Everton þar sem Manuel Ugarte leit sérstaklega illa út.
• Mason Mount er búinn að eiga góðar vikur. Ef hann helst heill og spilar svona þá er til dæmis ekkert sjálfgefið að Matheus Cunha verði fastamaður í liðinu.
• Patrick Dorgu virðist hafa eytt sumarfríinu í ræktinni. Hann hefur styrkt sig verulega og leit vel út í öllum leikjum.
• Verður Ayden Heaven vinstri miðvörðurinn? Hann byrjaði gegn Fiorentina. Luke Shaw var ekki frábær í öðrum leikjum.
• Amad Diallo virðist eiga hægri bakvarðarstöðuna.
• Hvað gera menn eins og Diego Dalot, Matthijs de Ligt og Nassour Mazraoui í lok ágúst ef þeir sjá fram á takmörkuð tækifæri í vetur? Ugarte ef nýr miðjumaður bætist við og Casemiro verður fyrir framan hann? Jafnvel Kobbie Mainoo?
• Með tilkomu Benjamin Sesko virðast tækifæri Rasmus Höjlund búin, miðað við að hann Mount var settur fram gegn Fiorentina og Daninn var geymdur á bekknum síðustu tvo leikina. Hann átti samt ágæta leiki. Joshua Zirkzee hefur ekki sést vegna meiðsla.
• Undanfarin ár hefur alltaf verið spenna í kringum 1-2 unga leikmenn í æfingaferðinni. Það er varla hægt að segja núna. Ekki heimalinga. Diego Leon leit vel út en líklegt virðist að Toby Collyer og Harry Amass verði lánaðir. Bent hefur verið á að met United, með yfir 4.700 leiki í röð með uppalinn leikmann í hóp á leikdegi, sé í hættu.
• Vonandi fer ekki allt í skrúfuna þegar tímabilið byrjar. Við höfum áður verið mötuð á almannatengslaklisjum síðsumars um að þjálfarinn sé sáttur við hópinn, hvað allir séu í miklu betra standi en áður, hvað mórallinn í hópnum sé góður í æfingaferðinni til þess eins að horfa á allt fara í skrúfuna gegn Brighton í fyrsta eða öðrum leik. Á þeim miklu hreyfingum sem verið hafa á liðinu er ljóst að það er enn í mótun. Bruno hefur til dæmis verið oftast sóknartengilliður en miðað við innkaupin virðist augljóst að hann eigi að vera aftar.
Erlingur Gudjonsson says
Ég held að það sé augljóst að verið sé að hafa samkeppni um hverja stöðu á vellinum og það er það sem mun ýta liðinu nær toppnum. Upptalning hér að ofan á hugsanlegum leikmönnum sem gætu verið að fá færri sénsa er í raun ekki tímabær. United er kannski ekki í Evrópukeppni en það setur United í þá stöðu að keppa um báða bikarkeppnirnar af krafti og til þess þarf líka breidd. Síðan ætlar væntanlega liðið að vera í Meistaradeild að ári. Þetta nýja tríó sem er búið að kaupa fremst á völlinn verður vonandi á tánum í vetur. 😎🤞
Steve Bruce says
Kaupin í sumar eru skiljanleg enda var sköpun fram á við orðin sáralítil á síðasta tímabili. Snérist allt um Bruno. Ánægjulegt að það hafi nást að loka þessum þremur dílum. Að sama skapi gengið illa að selja leikmenn.
Hef persónulega smá áhyggjur af varnarleiknum. Þetta mark sem Fiorentina skoruðu var gjörsamlega hriklaegt að horfa á. Það verður mikil eldraun að mæta Arsenal í fyrsta leik.