• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
Enska úrvalsdeildin

Hvað bíður tímabilið 2025-26?

Zunderman skrifaði þann 13. ágúst, 2025 | 4 ummæli

Embed from Getty Images

Það er að koma að því – enska úrvalsdeildin tímabilið 2025/26 er að hefjast. Eins og oftast í ágúst er bjartsýnin við völd, hjá hverjum sem er. Rauðu djöflarnir settust á rökstóla og rýndu í sumarið og það er framundan er.

Björn Friðgeir Björnsson

1. Hvað væri ásættanlegur árangur í vetur í þínum huga? 5. – 7. sæti. Fjórða ef Baleba kemur.
2. Hvar mun United enda í deildinni? Sjötta. Fjórða ef Baleba og Donnarumma koma.
3. Hver nýju mannanna á eftir að standa sig best? Ég hef hlutfallslega mestar væntingar til Diego Leon. En annars Mbeumo.
4. Hvaða leikmaður mun koma okkur mest á óvart/sýna mestu framfarirnar? Ayden Heaven
5. Hvaða lið verður enskur meistari? Manchester City
6. Hver verður fyrsti þjálfarinn til að verða rekinn? Hvað heitir aftur sá sem þjálfar Sunderland?
7. Hvaða lið kemur mest á óvart? Það verða engin spútniklið í ár. Milligóðu liðin hafa öll misst lykilmenn. Kannski kallast það að koma á óvart ef eitthvert nýju liðanna fellur ekki? En ég sé ekki að það gerist.
8. Hvaða lið veldur mestum vonbrigðum? Myndi það flokkast undir vonbrigði ef Liverpool lendir í þriðja sæti eða neðar? Líklega.

Embed from Getty Images

Hrólfur Eyjólfsson

1. Hvað væri ásættanlegur árangur í vetur í þínum huga? Að vera meðal efstu 5. Að ná í bikar væri gaman.
2. Hvar mun United enda í deildinni? Grátlega nærri þriðja sætinu. Einn fáránlegur leikur mun kosta okkur það.
3. Hver nýju mannanna á eftir að standa sig best? Er klisja að binda þær vonir við nýja framherjann Sesko? Ég held að hann eigi eftir að standa sig vel, að minnsta kosti betur en aðrir sem orðaðir voru við okkur í fjölmiðlum.
4. Hvaða leikmaður mun koma okkur mest á óvart/sýna mestu framfarirnar? Ayden Heaven mun spila sig í að vera í hóp hjá Englandi á HM næsta sumar.
5. Hvaða lið verður enskur meistari? Bæði Liverpool og Arsenal eiga að verða meistarar. Það verður að teljast klúður ef þau vinna ekki deildina. Jafnvel má telja City þar með.
6. Hver verður fyrsti þjálfarinn til að verða rekinn? Daniel Farke hjá Leeds.
7. Hvaða lið kemur mest á óvart? Sunderland mun sleppa við fall
8. Hvaða lið veldur mestum vonbrigðum? Fyrst ætlaði ég að segja Leeds, en miðað við kaupin hjá Chelsea þá stenst það ekki væntingarnar sem fylgja kaupunum og sigrinum á sumarmótinu í Bandaríkjunum.

Embed from Getty Images

Zunderman

1. Hvað væri ásættanlegur árangur í vetur í þínum huga? Evrópusæti, hvort sem er í gegnum deild eða bikarkeppni. Held það skipti félagið máli fjárhagslega.
2. Hvar mun United enda í deildinni? Sjötta sæti.
3. Hver nýju mannanna á eftir að standa sig best? Miðað við undirbúningstímabilið þá kemur Bryan Mbuemo með hraða inn í liðið sem hefur ekki sést lengi, í bland við rétt hlaup og góðan vinstri fót. Sesko þarf fram að áramótum. Vonandi fær hann þá þolinmæði.
4. Hvaða leikmaður mun koma okkur mest á óvart/sýna mestu framfarirnar? Dorgu hefur litið vel út á undirbúningstímabilinu og Heaven gæti orðið fyrsti kostur sem vinstri miðvörður. Ég vona að Mason Mount haldist heill. Ég held að hann gæti haldið Matheus Cunha frá byrjunarliðinu.
5. Hvaða lið verður enskur meistari? Ekkert lið sem ég hef ekki bullandi óþol fyrir.
6. Hver verður fyrsti þjálfarinn til að verða rekinn? Það er sérstakt eins og Brentford gerir að sækja stjóra langt niður í þjálfaraliðið. Það verður annað hvort snilld eða hörmung. Hvað gerist með Nuno Espírito Santo þegar Forest fer að ganga illa. Það er liðið sem fór lengst fram úr öllum xG-gildum í fyrra. Þeir hlutir leita gjarnan jafnvægis.
7. Hvaða lið kemur mest á óvart? Leeds og jafnvel Sunderland eru lið sem mér finnst eiga heima í efstu deild, miðað við stærð og sögu. Tottenham á eftir að rísa, meiðslin í fyrra voru svakaleg en fyrst og fremst hef ég álit á Thomas Frank.
8. Hvaða lið veldur mestum vonbrigðum? Nottingham Forest á eftir að fá jarðtengingu. Er ekki kominn tími á að lið eins og Brentford eða Bournemouth fari aftur niður úr úrvalsdeildinni?

Embed from Getty Images

 

Sigurður Sigurjónsson

1. Hvað væri ásættanlegur árangur í vetur í þínum huga? Í byrjun sumars var tilfinningin 6.-8. sæti. En það hefur komið mér satt best að segja á óvart hversu vel það hefur gengið á leikmannamarkaðnum það sem af er sumri. Ég er því farinn að horfa heldur hærra í töfluna og yrði mjög sáttur við 4.-5. sæti. Fyrst og fremst vill maður bara sjá skemmtilegan fótbolta og fullt af mörkum. Það er aldrei að vita nema það rætist með þessa nýju menn í hópnum
2. Hvar mun United enda í deildinni? Ég ætla að skjóta á 5. sæti.
3. Hver nýju mannanna á eftir að standa sig best? Það er eitthvað sem segir mér að Bryan Mbeumo eigi eftir að skila góðu framlagi í vetur. Lofar virkilega góðu og nú þegar heldur betur búinn að sanna sig í Premier League. Sesko kemur hér einnig sterklega til greina. Það verður áhugavert að sjá hvernig hann kemur inn í þessa deild. Mjög svo spennandi leikmaður.
4. Hvaða leikmaður mun koma okkur mest á óvart/sýna mestu framfarirnar? Það sem ég hef séð af Patrick Dorgu á undirbúningstímabilinu lofar virkilega góðu. Er mjög spenntur að sjá hvernig hann mætir til leiks þegar alvaran hefst. Ég hef mikla trú á því að hann springi út á komandi tímabili og eigi eftir að vera lykilmaður í þessu liði.
5. Hvaða lið verður enskur meistari? Ég ætla að gerast svo djarfur að segja Chelsea
6. Hver verður fyrsti þjálfarinn til að verða rekinn? Ætla að spá því að Leeds verði í brasi og Daniel Farke verði þar af leiðandi fyrstur.
7. Hvaða lið kemur mest á óvart? Það gleður mig að sjá Sunderland að nýju í deild þeirra bestu. Þeir hafa heldur betur styrkt sig í sumar en það skilar sér svo sem ekki alltaf í árangri. Ef þetta smellur saman hjá þeim eru þeir líklegir til að gera gott mót.
8. Hvaða lið veldur mestum vonbrigðum? Þrátt fyrir gott gengi á síðasta tímabili og að hafa tryggt sæti í Meistaradeildinni er eitthvað sem segir mér að þetta gæti orðið smá brekka hjá Newcastle. Þeir hafa verið að missa af þeim leikmönnum sem hafa verið efstir á blaði hjá þeim á leikmannamarkaðnum og öll þessi óvissa í kringum Alexander Isak er ekki til að bæta stöðu mála.

Embed from Getty Images

Friðrik Már Ævarsson

1. Hvað væri ásættanlegur árangur í vetur í þínum huga? Ef við tölum um hvað sé ásættanlegt þá er það lágmarkið sem Amorim þarf að ná til að halda starfinu. Ég held hann sé öruggur gagnvart stjórninni en ef illa gengur í byrjun beinast augun að stjóranum. Við erum búnir að styrka okkur vel fram á við og sumarglugginn gæti orðið betri en menn þorðu að vona. Án Evrópu og með aðeins um einn leik á viku ættum við að standa betur að vígi en mörg liðanna sem enduðu ofar en við í fyrra.
Ég held að Amorim þurfi að ná að lágmarki í efri hluta deildarinnar til að halda starfinu, í mínum huga þarf hann að ná Evrópusæti, sérstaklega ef sterkur miðjumaður og markvörður bætast við. Liðið ætti að fara langt í bikar og deildarbikar en ég krefst ekki bikars.
2. Hvar mun United enda í deildinni? Sjöunda sætinu. Byrjunin verður erfið, samkvæmt einhverjum útreikningum eigum við erfiðustu leikjadagskrána. Ég held að hjólin fari að snúast í rétta átt þegar nýju leikmennirnir aðlagast liðinu og önnur lið fara í Evrópukeppnir.
3. Hver nýju mannanna mun standa sig best? Ég held að hugarfar Bryan Mbeumo valdi því að hann bæti sig áfram, þótt færri vítaspyrnur geri fantasy-spilara fúla. Ég held hann verði allt í öllu og tengi vel saman með Bruno og Sesko.
4. Hvaða leikmaður mun koma okkur mest á óvart/sýna mestu framfarirnar? Þetta val verður á milli bakvarðanna, Patricks Dorgu eða Diego Leon. Leon held ég að fái færri tækifæri í vetur og því ætla ég að skjóta á að Dorgu verði sá sem sýni mestu framfarirnar. Það verður ekki langt liðið af tímabilinu þegar fólk fer að sjá áhrif Amorim á hann því bakverðirnir eru gríðarlega mikilvægir í leikkerfi hans.
5. Hvaða lið verður meistari? Því miður eitthvað annað lið en United. Það þarf ekki eldflaugavísindamann til að átta sig á því að það verður eitt af Arsenal, Liverpool, Man City eða Chelsea. Þessi fjögur verða í sérflokki í ár. Þetta er val á milli fjögurra ömurlegra kosta en ætli það væri ekki minnst sárt ef FC 115 tæki það. Mögulega er það skrifað í skýin ef þetta verður síðasta tímabil Pep Guardiola
6. Hver verður fyrsti þjálfarinn til að verða rekinn? Vanalega eru stjórar nýliðana undir mikilli pressu sérstaklega ef liðin hafa eytt hraustlega í sumarglugganum. Ef svo gengur illa hjá okkur verður enska pressan fljót að kalla eftir höfði Amorim. En ég held að Keith Andrews verði fyrstur til að fara eða kollegi hans Graham Potter hjá West Ham.
7. Hvaða lið kemur mest á óvart? Ég held að Burnley komi til með að koma á óvart. Ekki endilega með því að vinna sig upp töfluna en ég held að þeir verði vel skipulagðir og varnarlega mjög þéttir og reynist liðum erfiðir framan af leiktíðinni og gætu bjargað sér frá falli.
8. Hvaða lið veldur mestum vonbrigðum? Vonandi eitt af stóru liðunum utan við okkur. En nokkur lið koma til greina. Bournemouth missti næsti nær helminginn af byrjunarliðinu, varnarlínuna nær alla með markmanninum. Iraola er snillingur en mun eiga erfitt með þennan sundurtætta hóp sem er eftir.
Leeds spilar áfram gung-ho fótbolta sem flaug í gegnum Championship deildina en flýgur ekki í Úrvalsdeildinni og gætu lent í alvarlegum vandræðum ef þeir ná ekki að stoppa upp í holurnar í varnarleiknum sínum. Burnley á sjálfsagt eftir að skora færri mörk í deildinni en Mbeumo skoraði í fyrra. En mestu vonbrigðin held ég að verði Brentford, því liðinu hefur tekist að halda sér á floti í Úrvalsdeildinni svo árum skiptir en það að missa stjórann, besta leikmanninn, næst besta leikmanninn og fyrirliðann á einu bretti auk þess að fá svo til óreyndan stjóra til að stýra skútunni hljómar eins og uppskrift að hamförum í hæsta gæðaflokki.

Embed from Getty Images

Hvað finnst þér?

Hér eru spurningarnar sem sendar voru á ritstjórnina, þannig þú getir klippt þær og límt með þínum svörum inn í umræðuna í athugasemdum.

1. Hvað væri ásættanlegur árangur í vetur í þínum huga?
2. Hvar mun United enda í deildinni?
3. Hver nýju mannanna á eftir að standa sig best?
4. Hvaða leikmaður mun koma okkur mest á óvart/sýna mestu framfarirnar?
5. Hvaða lið verður enskur meistari?
6. Hver verður fyrsti þjálfarinn til að verða rekinn?
7. Hvaða lið kemur mest á óvart?
8. Hvaða lið veldur mestum vonbrigðum?

 

4

Reader Interactions

Comments

  1. keane says

    15. ágúst, 2025 at 20:19

    Bullshit

  2. Helgi P says

    17. ágúst, 2025 at 08:05

    Við verðum að byrja tímabilið vel og reyna nýta okkur það að vera ekki í evrópukeppni

  3. Helgi P says

    17. ágúst, 2025 at 18:19

    Við verðum að verlsa markmann þvílíkt drasl sem við erum með í markinu

  4. keane says

    17. ágúst, 2025 at 21:17

    ekki gott í dag amorin sagði í viðtali eftir leik við vorum ekki boring common þeir mega alveg vera focking boring ef þeir bara drullast til að vinna leiki skiftir ekki máli hvernig þú spilar bara stig og mòrk telja over and out.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Arni um Liðið í Manchester slagnum
  • Helgi P um Liðið í Manchester slagnum
  • Gummi um Liðið í Manchester slagnum
  • Halldór Marteins um Liðið í Manchester slagnum
  • sófinn um Liðið í Manchester slagnum

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2025 · Keyrt á WordPress