Þá er loksins komið að vertíðinni sem við höfum öll verið að bíða eftir. Enski boltinn er farinn aftur af stað eftir alltof langt hlé og Manchester United fékk það verðuga verkefni að bjóða gamlan óvin úr norðurhluta Lundúna á Old Trafford. Liðin áttu mjög ólíku gengi að fagna á síðustu leiktíð en á meðan Arsenal stýrði nokkuð örugglega inn í 2. sætið í deildinni, þriðja árið í röð og fór í undanúrslit Meistaradeildarinn þá var lið United að athlægi og endaði í 15. sæti. Í Evrópudeildinni komst liðið hins vegar í úrslitaleikinn en tapaði þar fyrir öðru Lundúnarliði sem spilaði ekki betur en United á tímabilinu.
Hins vegar virðist United hafa gert mjög góða hluti í sumar er varða leikmannamál og í raun hafa kaup liðsins líklegast farið fram úr vonum margra stuðningsmanna. Liðið byrjaði snögglega með því að kaupa Matheus Cunha frá Úlfunum en hann var með 62,5 millj. punda klásúlu og fór sumarið því vel af stað.
Eftir þetta hægðist reyndar verulega á og gerðist lítið í nokkrar viku og svo landaði liðið bæði Bryan Mbeumo og Benjamin Sesko. Það var því ágætis eftirvænting í loftinu á Old Trafford fyrir nýju leikmönnunum og ekki skemmdi fyrir að þarna voru að mætast liðin sem voru sitt á hvað orðuð við framherjana Sesko og Gyokeres sem enduðu svo í sitt hvoru liðinu.
Fyrri hálfleikur
Leikurinn fór fjörlega af stað og það voru heimamenn sem byrjuðu af krafti. Lið gestanna var mjög sterkt en þeir stilltu upp í raun nánast fjórum miðvörðum, Calafiori, Saliba, Gabriel og White. Nýji miðjumaðurinn þeirra ,Zubimendi, sem á að fylla í skarð Thomas Partey, byrjaði á miðsvæðinu með Rice og Ödegard og frammi voru þeir Martinelli og Saka, sitthvoru megin við nýja manninn Gyokeres.
Ruben Amorim stillti upp Bayindir í markið, þrátt fyrir að Onana hafi verið heill heilsu en hann hafði þó misst af öllu undirbúningstímabilinu, en í þriggja manna línu sáum við Leny Yoro, Matthjis de Ligt og Luke Shaw.
Diogo Dalot og Patrick Dorgu skipuðu bakvarðarstöðurnar og á miðjunni voru Bruno Fernandes og Casemiro. Framlínan samanstóð af þeim Mbeumo, Mount og Cunha.
Mbeumo komst nálægt því að skora snemma í leiknum eftir langa sendingu frá Bruno en David Raya sá við honum í markinu. Patrick Dorgu átti síðan skallatilraun í átt að marki eftir aukaspyrnu frá Bruno en ekki mikil ógn fyrir Spánverjann í markinu.
Þrátt fyrir að vera mun sterkari framan af og líflegri en þreytulegir Arsenal menn þá voru það gestirnir sem komust fyrst á blað. Það var eins og skrifað í skýin að markið kæmi eftir að Arsenal fékk sína fyrstu hornspyrnu. Veikleiki United, styrkleiki Arsenal.
Rice tók hornspyrnuna og Arsenal hraðlestin stefndi að marki. Boltinn sveif í átt að marklínunni, Altay Bayindir stökk upp með Saliba og Mount vafða utan um sig og sló aumkunnarlega í tuðruna sem svo datt fyrri fætur Calafiori. Sá ítalski var snöggur að hugsa og potaði boltanum yfir línuna og kom gestunum í forystu, 0-1.
En United virtust ekki slegnir út af laginu eins og oft gerðist á síðustu leiktíð. Þvert á móti tóku þeir skellinum og virtust ætla að bíta frá sér undir eins. Stuttu eftir fiskaði fyrirliðinn okkar aukaspyrnu rétt fyrir utan teiginn hjá Arsenal en skot hans úr henni fór beint í vegginn.
Áður en hálftími var liðinn af leiknum komst Mbeumo upp vinstri kantinn og komst í skotfæri en David Raya var snöggur niður og náði að blaka höndinni í boltann og stýra honum aftur fyrir í horn sem ekkert varð úr.
Patrick Dorgu var mjög líflegur og hljóp eins og þindarlaus væri í leiknum en Daninn komst í færi þegar 30 mínútur voru komnar á klukkuna. Hann hafði brunað upp kantinn og opnaði svo líkamann og setti fast skot á markið, framhjá markverðinum en því miður small boltinn í fjærstönginni utanverðri.
Ekki leið á löngu áður en næsta færið leit dagsins ljós en þá kom Mattheus Cunha og stimplaði sig inn í leikinn af krafti þegar hann tók boltann frá eigin vallarhelming, setti undir sig hausinn og keyrði þráðbeint í gegnum miðjuhringinn framhjá hverjum Arsenal leikmanninum rétt eins og þeir væru æfingakeilur. Hann komst upp að teig gestanna en þegar kom að því að taka í gikkinn missti hann örlítið jafnvægi og skotið varð slakt.
Nýju leikmennirnir, Mbeumo og Cunha spiluðu svo laglega saman sem endaði með skoti frá Brasilíumanninum en aftur varði Raya. United var að banka og banka og eflaust mörgum fundist mark liggja í loftinu.
Hann var svo aftur á ferðinni þegar hann þvingaði Raya í frábæra vörslu eftir að hann komst upp vinstri vænginn og henti í þrusugott skot. Gestirnir héldu forystunni inn í hálfleik þrátt fyrir að United hefði sett töluverða pressu á þá.
Það var áberandi að Bukayo Saka og Gyokeres voru varla búnir að vera í mynd í fyrri hálfleik og eflaust enginn þeirrar skoðunar að þeir hafi átt góðan leik þessar fyrstu 45 mínútur.
Síðari hálfleikur
Síðari hálfleikur byrjaði ekki eins fjörlega og sá fyrri en það voru félagarnir Mason Mount og Luke Shaw sem léku sín í milli sem endaði með því að Mount tók skot að marki sem fór í varnarmann og náði öðru skoti strax í kjölfarið en töluvert framhjá markinu.
Eftir um tíu mínútna leik kom Amad Diallo inn fyrir Diogo Dalot sem hafði átt mjög flottan leik. Áfram héldum við að pressa á þá en þéttur varnarleikur þeirra gaf ekki mikil tækifæri og það reyndist United erfitt að skapa færi.
Á 65. mínútu kom nýjasti leikmaður United á völlinn en Benjamin Sesko sem kom frá RB Leipzig í Þýskalandi og uppskar mikið lófaklapp frá áhorfendum. Á sama tíma kom Manuel Ugarte inn fyrir Casemiro en innkoma hans reyndist engan veginn góð. Úrúgvæinn virtist engan veginn komast í takt við leikinn og vill sjálfsagt fljótt gleyma þessum leik sem fyrst.
Þegar korter var eftir eða rúmlega það byrjaði United að þrýsta og kreista varnarlínu Arsenal með öllum tiltækum ráðum. Cunha stakk varnarmanninn sinn af og kom boltanum á Mbeumo en samherji hans þvældist fyrir honum og skotið varð eftir því.
Dorgu átti síðan fyrirgjöf sem rataði á nýbónaða pönnuna á Mbeumo en enn og aftur var David Raya vel á verðinum og þurfti að hafa sig allan við að verja frá Kamerúnanum knáa. Amad Diallo komst líka í skotfæri en Raya varði enn á ný.
Áður en lokaflautið heyrðist tókst United að koma boltanum inn í teiginn þar sem Saliba virtist sparka aftan í vinstri fótlegginn á Cunha sem féll við. Simon Hooper á flautunni lét sér fátt um finnast og lét leika halda áfram og VAR virtist ennþá vera í sumarfríi.
Leikar enduðu því 0-1 fyrir Arsenal sem verður að segjast ósanngjörn úrslit. United var 61% með boltann á móti 39% Arsenal en þeir skoruðu snemma og virtust tilbúnir til að reyna halda út. United átti 22 skot og þarf af 7 á rammann en það hefur ekki gerst í viðureign þessara liða síðan við unnum 8-2.
Heilt yfir spilaði liðið fantavel en það var auðséð að vélin er ekki orðin vel smurð og nýju leikmennirnir enn að finna taktinn með restinni af liðinu. Það er þó bjartar yfir mönnum og meiri liðsheild en á síðustu leiktíð. Áfram virðist þó augljós að það eru veikir hlekkir í liðinu og þörf á frekari liðsstyrk áður en sumarglugginn lokar.
Næsti leikur er gegn Fulham á Craven Cottage á sunnudaginn næstkomandi.
Skildu eftir svar