Það eru viðtekin sannindi að það eru aldrei gerð góð kaup í janúarglugganum. Nema auðvitað í janúar 2006. Þá komu Patrice Evra og Nemanja Vidic til United og þó að gluggar hafi ekki komið við sögu hjá Nemanja síðan þá, og þaðan af síður gluggagægjar þá er erfitt að mæla mót því að á vellinum virkar Serbinn okkar oft ansi grályndur, svo mjög að manni bregður næstum þegar hann sést brosa.
Jólasveinar United – Bjúgnakrækir
Níundi var Bjúgnakrækir,
brögðóttur og snar.
Við sáum hann breytast úr brögðóttum og snörum unglingi í besta leikmann heims árið 2008.
Hvað meira er hægt að segja um Cristiano Ronaldo? Annað en, komdu heim drengur og hættu að láta þessa Spánverja pirra þig!
Jólasveinar United – Skyrgámur
Í eina tíð var það næstum skylda fyrir ensk knattspyrnulið að hafa leikmann sem, eins og Skyrgámur, litu út eins og þeir hefðu klárað úr öllum pulsupakkanum og drukkið nokkra bjóra á dag síðustu árin. Menn eins og Jan Mölby og Micky Quinn voru álíka að ummáli og að hæð og voru varla verri fyrir vikið. Svo komu menn eins og Sir Alex og Arsène og mikilvægi mataræðis var uppgötvað.
Jólasveinar United – Hurðaskellir
Fáir af leikmönnum United síðari áratugina hafa farið með jafnmiklum hurðaskelli frá Old Trafford og Roy Keane. Haustið 2005 voru hlutirnir ekki að ganga sem skyldi og United tapaði 4-1 á Old Trafford fyrir Middlesbrough. Keane hafði verið meiddur og eftir leikinn brá hann sér í myndver MUTV og sagði nákvæmlega það sem honum bjó í brjósti um frammistöðu leikmanna eins og John O’Shea, Kieran Richardson, Alan Smith og síðast en ekki síst Darren Fletcher og Rio Ferdinand.
Jólasveinar United – Askasleikir
Hann fram undan rúmunum
rak sinn ljóta haus.
George Best sagði einhvern tímann: „Ef ég hefði fæðst ljótur hefði enginn heyrt af Pelé“. Það er ekki laust við að sumir hafi rifjað upp þessi orð snillingsins þegar Luke Chadwick kom á sjónarsviðið úr unglingaliðinu. Því miður var það ekki bara útlitslega séð að Chadwick komst ekki í hálfkvisti við Best. En þó að lengi væri gert grín að bólugröfnu andlitinu á Luke greyinu átti hann vel skilið meistaramedalíuna sem hann fékk árið 2001 fyrir leikina 17 sem hann lék það árið. Hann var nokkuð leikinn kantmaður, en á endanum var hann ekki alveg nógu góður fyrir United. Hann hefur síðan átt alveg þolanlegan feril, að mestu í neðri deildunum.