• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Björn Friðgeir

Enska úrvalsdeildin

Liðið gegn Southampton

Björn Friðgeir skrifaði þann 2. september, 2012 | 36 ummæli

Liðið gegn Southampton er komið og lítur svona út:

Lindegaard

Rafael Ferdinand Vidic Evra

Cleverley Carrick

Valencia Kagawa Welbeck

Van Persie

Kemur verulega á óvart að sjá Rio þarna! Welbeck á kantinum kemur minna á óvart. Svo er bara vonandi að það sé bara verið að hvíla de Gea frekar en það séu meiðsli hjá honum

Viðbót: Bekkurinn: Giggs, Powell, Scholes, Evans, Nani og Chicharito Lesa meira

Efnisorð: Liðsuppstilling Southampton 36
Enska úrvalsdeildin

Southampton á morgun

Björn Friðgeir skrifaði þann 1. september, 2012 | 32 ummæli

Eftir hálfbrösuglega byrjun Manchester United koma þær góðu fréttir að Jonny Evans er orðinn heill, og því þurfum við ekki lengur að þola að besti miðjumaðurinn okkar sé í miðverðinum. Evans lék allan leik U-21 árs liðsins í vikunni og er tilbúinn í slaginn á morgun. Rio Ferdinand og Phil Jones eru byrjaðir að æfa þó þeir séu ekki enn leikhæfir þannig að vonandi er varnarlínan að komast í fullan styrkleika. Ashley Young er hins vegar frá vegna meiðsla sem og auðvitað Rooney, en síðustu fréttir herma að hann verði kominn til baka eftir um mánuð, sem má teljast þokkalega sloppið. Lesa meira

Efnisorð: Southampton Upphitun 32
Opin umræða

Velkomin á Rauðu djöflana – íslenska Manchester United bloggið

Björn Friðgeir skrifaði þann 1. september, 2012 | 24 ummæli

Kæru United aðdáendur! Nú er komið að því!

Í langan tíma hefur það verið draumur fyrir aðdáendur Manchester United, bloggara og tístara að fá alvöru íslenskt United stuðningsmannablogg. Ónefndur klúbbur, í nágrenni við Manchester, hefur í allnokkur ár haldið úti glimrandi fínu bloggi hér á landi og hafa aðstandendur þess oft varpað þeirri spurningu á United menn hvers vegna þeir séu ekki með sitt eigið blogg. Lesa meira

24
Leikmenn Staðfest

Dimitar Berbatov til Fulham (staðfest)

Björn Friðgeir skrifaði þann 30. ágúst, 2012 | 6 ummæli

31. ágúst 2008 var viðburðaríkur dagur í Manchester. Sheikarnir frá Abu Dhabi keyptu Manchester City, og í æsingnum við að kaupa sterkan leikmann buðu þeir meira að segja 30m punda í Lionel Messi þegar einhver misskildi orð annars um að „things were getting messy“. Þeir buðu líka í Dimitar Berbatov. En Manchester United bauð líka í Dimi og í hans huga kom ekkert annað til greina. Manchester United hafði eytt yfir 20 milljónum punda í leikmann í fyrsta sinn síðan Malcolm Glazer keypti félagið og reyndar í síðasta sinn þangað til Robin van Persie kom til liðsins fyrir tveimur vikum. Verðið var reyndar rúmar 30 milljónir og Berbatov er dýrasti leikmaður í sögu félagsins. Lesa meira

Efnisorð: Dimitar Berbatov 6
Leikmenn Slúður

Morgunfréttirnar

Björn Friðgeir skrifaði þann 29. ágúst, 2012 | 4 ummæli

Eins og vænta má, þrem dögum fyrir lokun félagaskiptagluggans, ræður slúðrið ríkjum. Dimitar Berbatov er skv. fréttum í flugvél á leiðinni til Flórens í læknisskoðun eftir að United tók tilboði Fiorentina, sem ku vera um 4 milljónir punda. Virðist nokkuð vel staðfest frétt.

Moussa Dembélé, sem margir United menn hafa viljað sjá koma til félagsins, er hins vegar á leiðinni til Tottenham Hotspur eftir að þeir buðu þær 15 milljónir sem útkaupaklásúlan í samningi hans kvað á um. Orðið á götunni er að United hafi haft áhuga en ekki sem svaraði meira en 11 milljónum. Lesa meira

Efnisorð: Dimitar Berbatov 4
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Interim pages omitted …
  • Page 127
  • Page 128
  • Page 129
  • Page 130
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • binance account um 96. þáttur – Vörn, miðja, kantur eða sókn? Hvaða staða þarfnast mest styrkingar?
  • Vivod iz zapoya na domy_vmKt um Jóla jóla jólaleikur á morgun
  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • Arni um Liðið í Manchester slagnum

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress