• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Friðrik Már Ævarsson

Enska bikarkeppnin

Baráttan um deildarbikarinn hefst á ný.

Friðrik Már Ævarsson skrifaði þann 18. september, 2017 | 4 ummæli

Næst á dagskrá er fyrsti leikur United í deildarbikarnum og mótherjarnir að þessu sinni Burton Albion F. C. Eftir frábæra byrjun í Úrvalsdeildinni og Meistaradeildinni vonumst við að sjálfsögðu til að United geti haldið uppteknum hætti og byrjað af sama krafti í deildarbikarnum.

Bikarinn, sem núna ber nafnið Carabao Cup eftir orkudrykkjaframleiðandanum, hefur ekki alltaf verið í miklum metum hjá stóru liðunum og því hefur þessi keppni oft verið vettvangur fyrir stjóra þessara liða til að leyfa yngri og sprækari leikmönnum að spreyta sig. United vann einmitt þennan bikar í fyrra við mikinn fögnuð höfundar og næsta víst að Mourinho vilji gera allt í sínu valdi til að halda honum. Það verður því fróðlegt að sjá hversu mikið Móri er tilbúinn að gefa ungu strákunum færi á að sanna sig á stóra sviðinu í þessum leikjum og það kæmi lítið á óvart að sjá minni spámenn í hópnum. Þessi leikur væri tilvalinn til þess þar sem líklega pakka Burton Albion í vörn og vona að endurtaka þurfi leikinn á heimavelli þeirra. Að auki er ekki ólíklegt að nú þegar leikjadagskráin er orðin ansi þétt að Mourinho þurfi að hvíla lykilleikmenn fyrir stærri leiki. Þar fyrir utan er meiðslalistinn búinn að lengjast við lítinn fögnuð höfundar. Nýjasta nafnið á listanum er Paul Pogba sem gæti verið út í allt að 12 vikur en aðrir á listanum eru Zlatan Ibrahimovich og Marcos Rojo en Luke Shaw, sem hefur verið á listanum, er spurningarmerki og fróðlegt að sjá hvort hann sé tilbúinn. Lesa meira

Efnisorð: Deildarbikarinn 4
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Interim pages omitted …
  • Page 33
  • Page 34
  • Page 35

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Arni um Liðið í Manchester slagnum
  • Helgi P um Liðið í Manchester slagnum
  • Gummi um Liðið í Manchester slagnum
  • Halldór Marteins um Liðið í Manchester slagnum
  • sófinn um Liðið í Manchester slagnum

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2025 · Keyrt á WordPress