• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Runólfur Trausti

Enska úrvalsdeildin

Manchester United heimsækir Southampton í leik sem verður að vinnast

Runólfur Trausti skrifaði þann 30. nóvember, 2018 | 1 ummæli

Á morgun þann 1. desember mætast Manchester United og Southampton á St. Mary´s vellinum en síðarnefnda liðið hefur spilað heimaleiki sína þar frá árinu 2001. Það er ljóst að sigur og ekkert nema sigur kemur til greina hjá José Mourinho og hans mönnum en United situr sem stendur í 7. sæti ensku úrvalsdeildarinnar.

Þá minnum við á 67. þátt Djöflavarpsins sem tekinn var upp í gær en hann má finna hér að neðan á síðunni. Lesa meira

Efnisorð: Southampton Upphitun 1
Enska úrvalsdeildin

West Ham United 0 : 0 Manchester United

Runólfur Trausti skrifaði þann 10. maí, 2018 | 6 ummæli

Í gærkvöldi bárust þær fréttir að Sir Alex Ferguson væri kominn af gjörgæslu. Gleðifregnir fyrir alla knattspyrnuunnendur en fjölskylda hans óskar þó enn eftir því að hann fái frið á meðan endurhæfingu stendur til að ná sér að fullu.

https://twitter.com/ManUtd/status/994285488923176960

En að leik dagsins sem var markalaus og frekar tíðindalítill. José Mourinho kom öllum á óvart þegar hann stillti upp í 3-5-2 leikkerfi með þá Alexis Sanchez og Jesse Lingard fremsta á meðan bæði Anthony Martial og Marcus Rashford sátu á varamannbekknum. Liðið var eftirfarandi: Lesa meira

Efnisorð: Adrian West Ham United 6
Enska úrvalsdeildin

Loksins loksins var farið á leik á Old Trafford – Ferðasaga

Runólfur Trausti skrifaði þann 5. apríl, 2018 | Engin ummæli

Fyrir páskahelgina sem var að enda þá hafði undirritaður aðeins séð Manchester United spila einu sinni og var það í Lundúnum er liðið vann Fulham 1-0 þökk sé marki Wayne Rooney eftir stórbrotnar markvörslur David De Gea. Einnig hafði hann aðeins einu sinni komið á Old Trafford en það var í skoðunarferð sumarið 2005. Því var breytt um páskana 2018.

Leiðin á Old Trafford

Það var eflaust í september á síðasta ári þegar einn af ritsjórum síðunnar ákvað ásamt þremur félögum sínum að nú loksins væri kominn tími til að sjá Manchester United spila á Old Trafford. Eflaust hefðum við farið fyrr í vetur en undirritaður ásamt einum af félögunum ákváðu að reyna finna helgi þar sem þeir gætu séð sín lið í neðri deildunum á Englandi spila líka. Þannig var það ákveðið að páskahelgin 2018 yrði yrði fyrir valinu. Stefnt var að því að sjá Peterborough United heimsækja Rotherham United á föstudeginum langa, á laugardeginum var förinni heitið í Leikhús Draumanna að sjá heimamenn etja kappi við Swansea City og að lokum var farið til Lundúna að sjá Dagenham&Redbridge keppa við lið sem ég einfaldlega man ekki hvað heitir. Lesa meira

Efnisorð: Alexis Sanchez Ferðasaga Old Trafford Romelu Lukaku Swansea City 0
Enska bikarkeppnin

Manchester United 2:0 Brighton and Hove Albion

Runólfur Trausti skrifaði þann 17. mars, 2018 | 35 ummæli

Eftir tapið gegn Sevilla í vikunni þá fengu leikmenn United kjörið tækifæri til að vinna stuðningsmenn liðsins aftur á sitt band þegar liðið mætti Brighton í 8-liða úrslitum FA bikarsins á Old Trafford í kvöld.

Leikurinn

Það var ljóst strax frá fyrstu mínútu að stuðningsmenn liðsins voru tilbúnir í slaginn en það var töluvert betri stemmning á Old Trafford í upphafi leiks heldur en gegn Sevilla í vikunni. Leikurinn var hins vegar frekar rólegur í byrjun og þeir sem höfðu reiknað með að United myndi keyra yfir Brighton í upphafi hafa eflaust orðið fyrir vonbrigðum. Það kom á óvart að Glenn Murray, markahæsti leikmaður Brighton, byrjaði leikinn á bekknum en það var snemma ljóst að leikmenn Brighton yrðu sáttir ef leikurinn færi í vítaspyrnukeppni. Lesa meira

Efnisorð: Brighton & Hove Albion Old Trafford 35
Enska bikarkeppnin

Allt undir gegn Brighton annað kvöld

Runólfur Trausti skrifaði þann 16. mars, 2018 | 2 ummæli

Klukkan 19:45 annað kvöld kemur Brighton & Hove Albion í heimsókn á Old Trafford í því sem er líklega mikilvægasti leikur okkar manna á tímabilinu miðað við hvernig það hefur þróast en eins og staðan er í dag er FA-bikarinn eini raunhæfi möguleiki Manchester United á titli.

Eftir tvær hörmulegar frammistöður gegn Sevilla er ljóst að United kemst ekki lengra í Meistaradeild Evrópu en Sevilla var einmitt dregið gegn Bayern Munich í 8-liða úrslitum keppninnar nú rétt í þessu. Okkar menn fá hins vegar tækifæri til að sýna úr hverju þeir eru gerðir gegn Brighton annað kvöld en ritstjórn mun fara betur yfir stöðuna á liðinu eftir að hún sér hvernig þeir bregðast við eftir tapið í Meistaradeildinni. Leikmenn liðsins hafa beðist afsökunar á samfélagsmiðlum og annað kvöld fá þeir tækifæri til þess að gera það á vellinum. Lesa meira

Efnisorð: Brighton & Hove Albion Chris Hughton FA Bikarinn Jose Mourinho 2
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Page 2
  • Page 3
  • Page 4
  • Interim pages omitted …
  • Page 20
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • Snjómaðurinn um Liðið í Manchester slagnum
  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • binance account um 96. þáttur – Vörn, miðja, kantur eða sókn? Hvaða staða þarfnast mest styrkingar?
  • Vivod iz zapoya na domy_vmKt um Jóla jóla jólaleikur á morgun

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress