• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Runólfur Trausti

Enska úrvalsdeildin

Newcastle kemur í heimsókn

Runólfur Trausti skrifaði þann 25. desember, 2014 | Engin ummæli

Gleðileg Jól dömur mínar og herrar.

Jæja, að því sem skiptir máli. Á morgun kemur Alan Pardew í heimsókn með Newcastle United. Newcastle byrjaði tímabilið skelfilega og vildu stuðningsmenn liðsins helst krossfesta Pardew og eiganda liðsins, Mike Ashley.

Ég hef ekki horft á nægilega mikið af Newcastle leikjum til að spá fyrir um byrjunarlið þeirra en samkvæmt Physio Room þá eru aðal- og varamarkvörður liðsins báðir meiddir. Jak Alnwick stendur því áfram í rammanum. Einnig eru Gabriel Obertan, Davide Santon, Ryan Taylor og Siem De Jong á meiðslalistanum. Sem stendur er Stuart Taylor meiddur en talið er að hann verði orðinn leikfær fyrir leikinn. Flestir þessara leikmanna hafa reyndar ekki spilað mikið í vetur svo það ætti ekki að riðla of mikið leikskipulagi Newcastle að þeir séu ekki með. Lesa meira

Efnisorð: Newcastle United Upphitun 0
Leikmenn Pistlar

Maðurinn á bakvið tjöldin

Runólfur Trausti skrifaði þann 15. desember, 2014 | 8 ummæli

Til að byrja með vill ég benda öllum á að lesa leikskýrsluna hér að neðan eftir frækinn sigur liðsins gegn Liverpool í gær. Einnig vill ég taka fram að þessi grein var í raun rituð fyrir Liverpool leikinn en uppfærð með smá tölfræði úr honum. En að greininni sjálfri … :

Tímabilið 2005/2006 lenti Manchester United í 2.sæti í ensku Úrvalsdeildinni. Heilum átta stigum á eftir Chelsea. Liðið datt út gegn Liverpool í 5. umferð FA bikarsins og mistókst að komast upp úr vægast sagt auðveldum riðli í Meistaradeild Evrópu. Liðið vann vissulega Deildarbikarinn en fyrir titla þyrsta stuðnigsmenn liðsins var það ekki nóg. Flestir reiknuðu með að Sir Alex Ferguson myndi rífa upp veskið enda Chelsea vægast sagt óárennilegir á þessum tíma. Ferguson, ekki í fyrsta skipti, kom öllum á óvart. Hann keypti einn leikmann sumarið 2006 (kannski var hann upptekinn að horfa á HM?). Ég endurtek, EINN. Sá leikmaður var ekki Pirlo, ekki Gattuso, ekki Seedorf, ekki Gerrard, ekki van Bommel. Þessi leikmaður sat sem fastast á bekknum hjá Englendingum yfir sumarið. Lesa meira

Efnisorð: Michael Carrick 8
Leikmenn Pistlar

Big Dave

Runólfur Trausti skrifaði þann 15. nóvember, 2014 | 3 ummæli

Leikur Manchester United og Crystal Palace var ekki merkilegur fótboltalega séð nema fyrir þær sakir að í honum hélt David De Gea hreinu í fimmtugasta skipti fyrir Manchester United. 50 ,,hrein lök“ er ágætis árangur í 144 leikjum, sérstaklega ef litið er til þeirra varnarvandræða sem liðið hefur verið í nánast síðan að hann skrifaði undir. Leik eftir leik var hann, og er, með nýtt hafsentapar fyrir framan sig. Lesa meira

Efnisorð: David de Gea 3
Enska úrvalsdeildin

Everton í heimsókn

Runólfur Trausti skrifaði þann 3. október, 2014 | 9 ummæli

Góðan daginn kæru lesendur. Hér er á ferðinni mín fyrsta upphitun á síðunni svo hún gæti verið í lengri kantinum. Biðst fyrirfram afsökunar á því.
Á sunnudaginn kemur Roberto Martinez með Everton í heimsókn á Old Trafford Á síðasta tímabili gekk United vægast sagt illa gegn Everton, 0-1 tap á heimavelli og 2-0 tap á útivelli. Skelfing. Ef við gleymum leiknum í fyrra þá þurfum við að fara aftur til 1992 til að finna síðasta sigurleik Everton á Old Trafford. Þetta eru 20 leikir á milli sigurleikja og af þessum 20 leikjum vann United 17 þeirra. Eins og alþjóð veit þá endurtekur sagan sig alltaf, svo nú er komið að öðrum 20 leikjum í röð án taps gegn Everton. Lesa meira

Efnisorð: Everton Upphitun 9
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Interim pages omitted …
  • Page 18
  • Page 19
  • Page 20

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • binance account um 96. þáttur – Vörn, miðja, kantur eða sókn? Hvaða staða þarfnast mest styrkingar?
  • Vivod iz zapoya na domy_vmKt um Jóla jóla jólaleikur á morgun
  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • Arni um Liðið í Manchester slagnum

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress