• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Runólfur Trausti

Enska úrvalsdeildin

Tottenham Hotspur 2:0 Manchester United

Runólfur Trausti skrifaði þann 31. janúar, 2018 | 35 ummæli

Enn og aftur brennir maður sig á því að vera spenntur fyrir byrjunarliði fyrir leik en Tottenham voru ekki lengi að kippa manni niður á jörðina. Eftir að hafa haldið hreinu í sex leikjum í röð þá tók það Tottenham aðeins 11 sekúndur að koma knettinum í netið. Tottenham virtust njóta þess að spila fyrir framan flesta áhorfendur í sögu ensku úrvalsdeildarinnar á meðan leikmenn Manchester United virtust ekki vita hvort þeir væru að koma eða fara. Lesa meira

Efnisorð: Christian Eriksen Tottenham Hotspur 35
Enska úrvalsdeildin

Heimsókn á Wembley

Runólfur Trausti skrifaði þann 30. janúar, 2018 | 5 ummæli

…

“Lads it’s Tottenham” ⚽️ pic.twitter.com/85Qq79TmIJ

— Runólfur Trausti Þórhallsson (@Runolfur21) October 28, 2017

Á morgun, klukkan 20:00, fer José Mourinho með drengina sína, og okkar, í heimsókn á Wembley þar sem þeir munu mæta Harry Kane-liðinu eða Tottenham Hotspur eins og þeir kallast víst í daglegu tali. Að öllu gamni slepptu þá er þetta risa stór leikur og gæti hann haft mikil áhrif á komandi vikur hjá báðum liðum. Lesa meira

Efnisorð: Alexis Sanchez Harry Kane Jose Mourinho Maurico Pochettino Paul Pogba Tottenham Hotspur Upphitun 5
Enska úrvalsdeildin

Leicester City 2:2 Manchester United

Runólfur Trausti skrifaði þann 23. desember, 2017 | 23 ummæli

Það má færa rök fyrir því að leikmenn Manchester United hafi verið í jólaskapi í kvöld en þeir svo gott sem gáfu Leicester City stig. Lokatölur 2-2 í leik sem United hefði átt að vinna örugglega. Eftir nokkra leiki í röð þar sem sóknarleikur United hefur ekki verið upp á marga fiska þá var liðið mjög sprækt í kvöld, í raun það sprækt að það hefði eins og áður sagði átt að vinna þennan leik nokkuð örugglega. Lesa meira

Efnisorð: Harry Maguire Jamie Vardy Juan Mata Leicester City 23
Enska úrvalsdeildin

Manchester United 4:1 Newcastle United

Runólfur Trausti skrifaði þann 18. nóvember, 2017 | 4 ummæli

Jæja. Eftir hæga byrjun í dag þá komu okkar menn til baka og unnu á endanum mjög sannfærandi sigur á Rafa Benitez og lærlingum hans í Newcastle United.

Byrjunarlið dagsins

José Mourinho kom á óvart og stillti upp einstaklega sóknarsinnuðu liði sem innihélt meðal annars Antonio Valencia og Ashley Young í bakvörðum, Nemanja Matic og Paul Pogba á tveggja manna miðju, Juan Mata í holunni á bakvið Romelu Lukaku og Marcus Rashford og Anthony Martial á sitt hvorum vængnum. Lesa meira

Efnisorð: Anthony Martial Chris Smalling Newcastle United Paul Pogba Rafael Benitez 4
Enska úrvalsdeildin

Paul Pogba snýr aftur í byrjunarliðið

Runólfur Trausti skrifaði þann 18. nóvember, 2017 | 3 ummæli

José Mourinho hefur svarað kalli stuðningsmanna Manchester United. Byrjunarlið dagsins er sóknarsinnað svo ekki sé meira sagt.

Paul Pogba kemur aftur inn í liðið á meðan þeir Marcus Rashford, Anthony Martial og Romelu Lukaki byrja sem fremstu þrír. Einnig eru Juan Mata og Victor Lindelöf í byrjunarliðinu.

Einnig snúa ZLATAN IBRAHIMOVIC og Marcos Rojo aftur í leikmannahópinn en þeir byrja leikinn á bekknum. Lesa meira

Efnisorð: Byrjunarlið Paul Pogba 3
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Page 2
  • Page 3
  • Page 4
  • Page 5
  • Interim pages omitted …
  • Page 20
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • Snjómaðurinn um Liðið í Manchester slagnum
  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • binance account um 96. þáttur – Vörn, miðja, kantur eða sókn? Hvaða staða þarfnast mest styrkingar?
  • Vivod iz zapoya na domy_vmKt um Jóla jóla jólaleikur á morgun

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress