• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Zunderman

Enska úrvalsdeildin

Norwich City 0:1 Manchester United

Zunderman skrifaði þann 11. desember, 2021 | 10 ummæli

Liðið er næstum eins og Daníel sá það fyrir, 4-2-2-2

1
De Gea
27
Telles
5
Maguire
2
Lindelöf
20
Dalot
25
Sancho
17
Fred
39
McTominay
18
Fernandes
7
Ronaldo
10
Rashford

Varamenn Henderson, Heaton, Bailly, Jones, Shaw, Lingard, Van de Beek, Greenwood, Elanga

Ljótt en það hefst

Cristiano Ronaldo skoraði eina mark Manchester United þegar liðið marði Norwich City á Carrow Road í dag. Það jákvæða eftir leikinn er að United vann þrátt fyrir að spila illa.

Nýr skerfari er mættur í bæinn en þorpsbúar eru enn við sama heygarðshornið. David de Gea var besti maður Manchester United í dag, varði ein fimm fínustu skot frá Norwich. Lesa meira

10
Enska úrvalsdeildin

Manchester United 1:0 Crystal Palace

Zunderman skrifaði þann 5. desember, 2021 | 4 ummæli

Dagurinn sem Fred skoraði úr langskoti með hægri

Manchester United vann sinn fyrsta leik undir stjórn Ralf Rangnick gegn Crystal Palace í dag. United gerði það sem þurfti og virtist gera það sem til var ætlast af því.

Spennan, sem ríkti fyrir mögulegum breytingum á fyrstu uppstillingu Rangnick, var óþörf því hann stillti upp sama liði og byrjaði gegn Arsenal á fimmtudag. Breytingar voru á hópnum, Jesse Lingard og Anthony Martial meiddust á æfingu í gær en nafni hans Elanga fékk tækifæri í staðinn. Lesa meira

Efnisorð: Crystal Palace Leikskýrsla Leikskýrslur 4
Pistlar Stjórinn

Ballaðan um Ralf Rangnick

Zunderman skrifaði þann 29. nóvember, 2021 | 2 ummæli

https://twitter.com/ManUtd/status/1465282005369860098

 

En hver er þessi maður sem ekkert of margir stuðningsmenn United höfðu heyrt af fyrr en fyrir um mánuði síðan? Einn Rauðu djöflanna hefur fylgst með honum um nokkuð langa hríð.

Mín fyrstu kynni af Rangnick voru 1999, þegar RÚV sýndi þýska boltann. Arfleifð Ásgeirs Sigurvinssonar og Eyjólfs Sverrissonar tryggði að Stuttgart hefur alltaf verið mitt lið þar og ég man eftir ungum þjálfara með hornspangargleraugu sem var þá nýtekinn við. Óljóst rámar mig í að hann hafi gefið ungum leikmönnum tækifæri. Hann entist í rúmt eitt og hálft ár hjá Stuttgart – sem er nokkuð gott á þeim bænum. Hann vann InterToto bikarinn og kom liðinu í undanúrslit bikarsins en vandræðagangur í deildinni kostaði hann starfið. Nafnið og karakterinn varð mér eftirminnilegt og hef ég því alltaf haft auga með honum. Lesa meira

Efnisorð: Ralf Rangnick 2
Lesefni

„Já, sumir leikmenn hafna Manchester United“

Zunderman skrifaði þann 16. nóvember, 2021 | Engin ummæli

Þann 10. nóvember síðastliðinn voru tólf ár liðin frá því að þýski markvörðurinn Robert Enke, þá leikmaður Hannover, framdi sjálfsmorð. Enke tilheyrði fámennum hópi sem hafnaði því að spila með Manchester United á blómaskeiði liðsins undir Sir Alex Ferguson, en leiðir Enke og United lágu víðar saman.

Embed from Getty Images Lesa meira

Efnisorð: bókarýni Rauðu djöflanna Robert Enke 0
Lesefni Stjórinn

Hvenær rekur maður þjálfara og hvenær rekur maður ekki þjálfara?

Zunderman skrifaði þann 25. október, 2021 | 18 ummæli

Það er mánudagur. Andskotans, ömurlegur mánudagur. Enn er svart úti þegar vekjaraklukkan hringir. Laufið er dottið af birkinu, skógurinn er dökkur en ekki gulur. Einn þessara daga þar sem maður vildi geta dregið sængina upp fyrir haus og haldið áfram að sofa.

En við þurfum flest að mæta í skólann eða vinnuna, afplána frá níu til fimm. Og það er sammerkt með okkur stuðningsmönnum Manchester United eða þeim sem vinna fyrir félagið hvort sem um ræðir fólkið á skrifstofunni, leikmenn, þjálfara eða stjórnendur. Lesa meira

18
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Interim pages omitted …
  • Page 11
  • Page 12
  • Page 13
  • Page 14
  • Page 15
  • Page 16
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Arni um Liðið í Manchester slagnum
  • Helgi P um Liðið í Manchester slagnum
  • Gummi um Liðið í Manchester slagnum
  • Halldór Marteins um Liðið í Manchester slagnum
  • sófinn um Liðið í Manchester slagnum

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress