• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Zunderman

Lesefni

Bókarýni: Rauði baróninn

Zunderman skrifaði þann 11. október, 2021 | Engin ummæli

Jólin koma snemma í ár. Fyrsta jólabókin er komin á ritstjórnarskrifstofu Rauðu djöflanna. Hún er Rauði baróninn, sjálfævisaga Garðars Arnar Hinrikssonar, knattspyrnudómara og stuðningsmanns Manchester United.

Mér vitanlega hefur ekki áður komið út ævisaga íslensks knattspyrnudómara. Fyrir knattspyrnuáhugamenn er fagnaðarefni að fá nýja sýn á leikinn.

Nokkrir erlendir dómarar, svo sem Pierluigi Collina, Howard Webb og nú síðast Mark Clattenburg hafa gefið út sínar ævisögur. Líkt og hjá að þeim skín í gegn hjá Garðari virðing fyrir knattspyrnulögunum og einlægur áhugi á dómarastarfinu. Þótt Garðar sé nú hættur að dæma leggur hann það á sig að reyna að útskýra túlkanir og reglur fyrir íslenskum stuðningsmönnum Manchester United á Facebook, sem er góðra gjalda vert. Lesa meira

Efnisorð: bókarýni Rauðu djöflanna Garðar Örn Hinriksson 0
Pistlar

Arfleifð Ed Woodwards: Sérfræðingur í klúðri?

Zunderman skrifaði þann 23. apríl, 2021 | 1 ummæli

Vel má vera að Ed Woodward hafi hugsað sér að hætta hjá Manchester United í árslok en augljóst er að Ofurdeildarklúðrið flýtti því að það væri opinberað. Woodward hefur lengi verið skotspónn óánægju stuðningsmanna United en hve verðskuldað er það og hver var sök hans í Ofurdeildinni.

Woodward var verðlaunaður fyrir að setja saman fjármögnunum á kaupum Glazer-fjölskyldunnar í United í fyrra starfi sínu hjá JP Morgan fjárfestingabankanum. Hann er fæddur í Essex, nam eðlisfræði í Bristol áður en hann færði sig yfir í endurskoðun. Lesa meira

Efnisorð: Ed Woodward Edward Woodward 1
Pistlar

Ofurdeildin fallin

Zunderman skrifaði þann 21. apríl, 2021 | 3 ummæli

Ofurdeild Evrópu virðist heyra sögunni til 48 tímum eftir að hún var stofnuð eftir að ensku liðin flúðu út úr brennandi húsinu sem þau byggðu og kveiktu í. En hvað gerðist, hvað gerist næst og hver er staðan hjá Manchester United eftir tvo tilfinningaríka sólarhringa?

„Hver sá sem ver nokkrum stundum í innsta hring fótboltans gerir sér fljótt grein fyrir því að rétt eins og olía er hluti af olíuiðnaðinum er heimska hluti af knattspyrnuviðskiptum.“ Þessum orðum tísti blaðamaðurinn Simon Kuper, annar höfunda bókarinnar Soccernomics, um það leyti sem Ofurdeild Evrópu hrundi til grunna í gærkvöldi. Lesa meira

Efnisorð: Ofurdeildin 3
Pistlar

Deild hinna ósnertanlegu

Zunderman skrifaði þann 19. apríl, 2021 | 4 ummæli

Í gærkvöldi var tilkynnt um væntanlega stofnun Ofurdeildar Evrópu. Manchester United er eitt tólf stofnfélaga og er augljóslega framarlega því Joel Glazer er fyrsti varaformaður deildarinnar. Þá fjármagnar JP Morgan deildina, líkt og yfirtökuna á sínum tíma en Ed Woodward er fyrrum starfsmaður bankans. Tilkynningin um stofnun deildarinnar hefur vakið hörð viðbrögð meðal margra knattspyrnuáhugamanna. Rauðu djöflarnir rýna í stöðuna. Lesa meira

4
Pistlar

United og væntu mörkin

Zunderman skrifaði þann 6. apríl, 2021 | 3 ummæli

xG eða vænt mörk er tískuhugtakið sem allir eru að tala um. En hvað eru vænt mörk, er eitthvað að marka þau og hvað þýða þau fyrir Manchester United?

Hvað eru vænt mörk?

Vænt mörk eru líkindareikningur á hversu líklegt er að lið eða leikmenn skori úr færum sínum. Knattspyrnan hefur lengi verið íhaldssöm og sparkspekingar trúðu því að skilningur á íþróttinni byggði allur á tilfinningu og auga. Aðrar íþróttir, eins og hafnabolti eða körfubolti, hafa tölfræði yfir nánast hvert leikatriði. Þessi tölfræði er nú að koma inn í fótboltann og xG er kannski skýrasta dæmið um það. Lesa meira

Efnisorð: Tölfræði xG 3
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Interim pages omitted …
  • Page 12
  • Page 13
  • Page 14
  • Page 15
  • Page 16
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • binance account um 96. þáttur – Vörn, miðja, kantur eða sókn? Hvaða staða þarfnast mest styrkingar?
  • Vivod iz zapoya na domy_vmKt um Jóla jóla jólaleikur á morgun
  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • Arni um Liðið í Manchester slagnum
  • Helgi P um Liðið í Manchester slagnum

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress