Áfram gakk! Nú er það alvöru bikarkeppnin, sú elsta og frægasta (Manchester United státar nú af fleiri deildarbikarsigrum en nokkuð annað lið þegar kóngur ríkir í Sameinaða konungsdæminu). Á morgun kemur gamall vinur, ef vin skyldi kalla, í heimsókn á Old Trafford, David Moyes mætir með West Ham í eftirdragi. Að gefnu tilefni er rétt að benda á að samningur Moyes fyrir United hefði runnið út fyrir fjórum árum þannig við eigum víst ekki lengur hönk upp í bakið á honum.
Enska bikarkeppnin
Manchester United 3:1 Reading
Aðeins ein breyting frá síðasta leik, Maguire kemur inn fyrir Martínez. Enginn Sancho sjáanlegur
Varamenn> Heaton, Martínes, Varane, Williams, Fred (57′), Mainoo (73′), Pellistri (68′), Elanga (73′), Garnacho (68′)
Nokkur kunnugleg nöfn úr fortíðinni hjá Reading:
United var eins og við mátti búast mun sterkara liðið og sótti verulega en Reading bakkaði vel. Færin komu, vörnin blokkaði skot Eriksen eftir að Lumley hafði varið aukaspyrnu frá Rashford og Antony skaut rétt framhjá fjær, ekki í fyrstaskipti sem við sjáum svoleiðis skot frá honum, og ekki það síðasta því hann reyndi aftur rétt á eftir, í það skiptið fór skotið yfir því hann var að reyna að koma boltanum yfir Lumley. Þetta hlýtur að fara að koma hjá honm.
Bikarveislan heldur áfram um helgina!
Manchester United tekur á móti Reading í 4. umferð ensku bikarkeppninnar á Old Trafford kl 20:00 annað kvöld. United gerði sér lítið fyrir og vann Everton 3-1 í næstsíðasta leik þeirra bláklæddu undir stjórn Frank Lampard í síðustu umferð á meðan gestirnir í Reading lögðu Watford að velli með mörkum í uppbótartíma í sitthvorum hálfleiknum.
Á blaði gæti margur sagt að United hafi fengið auðvelda viðureign en bikarleikir hafa þá rómantík að þeir einfaldlega eru annars eðlis en hefðbundnir deildarleikir. Það væri þó afar lélegt af okkur að ganga út frá því að þetta verði léttur leikur því við höfum oftar en ekki brennt okkur á að vanmeta andstæðingana, sérstaklega þegar þeir fá að spila á „stóra sviðinu“. En þráhyggjukenndur sigurvilji Erik ten Hag er svo sterkur að hann einn og sér ætti að duga til að koma okkur áfram inn í næstu umferð bikarsins en lítum fyrst á mótherjana.
Manchester United 3:1 Everton
Erik ten Hag stillti upp frekar sterku liði gegn Everton í kvöld í bikarnum. Þrátt fyrir að Lisandro Martinez hafi verið klár þá byrjaði hann á bekknum og Shaw byrjaði í miðverðinum með Varane.
Á bekknum voru þeir Tom Heaton, Anthony Elanga, Lisandro Martinez (’77), Aaron wan-Bissaka, Harry Maguire (’84), Victor Lindelöf, Fred, Scott McTominay (’84) og Alejandro Garnacho.
Lampard leiddur í fallexina?
Næsti leikur United er bikarleikur gegn Everton á Old Trafford á morgun kl 20:00. Um er að ræða fyrstu viðureign United í bikarnum en liðið er líka komið í 8-liða úrslit deildarbikarsins en sú viðureign fer fram 10. janúar næstkomandi. Liðin mættust á Goodison Park fyrr á leiktíðinni en þeim leik lauk með 1-2 sigri United í leik þar sem Iwobi kom Everton yfir en eftir það yfirspilaði United heimamenn og vann að loka eins marks sigur með mörkum frá Antony og Ronaldo eftir að sá síðarnefndi kom inn á 29. mínútu vegna meiðsla hjá Martial.