• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Enska deildarbikarkeppnin

Enska deildarbikarkeppnin

Undanúrslit deildarbikars á morgun

Björn Friðgeir skrifaði þann 21. janúar, 2014 | 6 ummæli

Þá er komið að því sem gæti hugsanlega orðið eini ljósi punkturinn á leiktíðinni. Sunderland kemur í heimsókn á Old Trafford og með því að vinna með tveggja marka mun, nú eða eitt núll og halda út framlenginguna getur United tryggt sæti sitt í úrslitaleiknum. Sá leikur yrði reyndar gegn City…

En það skiptir engu. Liðið þarfnast sárlega á öllum sigrum að halda til að lappa upp á laskaðan móralinn. Einhvern tímann hefðum við skutlað hálfu varaliðinu inná og ekki haft áhyggjur, nú mun hálft varaliðið þurfa að spila hvort eð er. Lesa meira

Efnisorð: Sunderland Upphitun 6
Enska deildarbikarkeppnin

Sunderland 2:1 Manchester United

Tryggvi Páll skrifaði þann 7. janúar, 2014 | 36 ummæli

Gamanið heldur áfram. Liðið var svona:

De Gea

Rafael Evans Vidic Evra

Cleverley Carrick

Valencia Giggs Januzaj

Welbeck

Bekkur: Lindegaard, Smalling, Hernandez, Fletcher, Kagawa, Büttner, Zaha.

Sunderland: Mannone, Bardsley, Alonso, Brown, O’Shea (C), Larsson, Cattermole, Ki, Giaccherini, Borini, Fletcher.

Fyrri hálfleikur var alveg sérstaklega lélegur af hálfu beggja liða en þó sérstaklega af okkar hálfu. Það gerðist akkúrat ekkert fyrr en á 25. mínútu að Moyes færði Januzaj fyrir aftan framherjann og setti Giggs út á kant. Januzaj var eini leikmaðurinn í okkar liði sem var að reyna eitthvað og eftir þessa tilfærslu var hann meira í boltanum og var sprækur. Hann skoraði mark sem var réttilega dæmt af vegna rangstöðu. Eins og venjulega þó misstu okkar menn einbeitinguna undir lok hálfleiksins og fengu á sig mark. Larsson þrykkti aukaspyrnu inní teiginn þar sem Wes Brown kom boltanum inn í markteig þar sem Phil Bardsley og Ryan Giggs voru að kljást. Boltinn barst í markið og líklega mun þetta mark skrifast á Giggs. Við þekkjum þetta handrit og í sannleika sagt er maður að verða dauðþreyttur á því. Lesa meira

Efnisorð: Leikskýrslur Sunderland 36
Enska deildarbikarkeppnin Stjórinn

Undanúrslit deildarbikarsins – taka 1

Tryggvi Páll skrifaði þann 6. janúar, 2014 | 5 ummæli

Eftir vonbrigði helgarinnar er vel þegið að fá leik strax í kjölfarið svo að hægt sé að einbeita sér að einhverju öðru en eingöngu því neikvæða. Á morgun mætum við Sunderland í úrslitum deildarbikarsins. Sem betur fer á útivelli.

Ég las ágæta grein fyrir helgina um mikilvægi bikarkeppna. Í henni er haldið fram að sigur í bikarkeppni geti virkað sem stökkbretti fyrir lið og fleytt þeim í átt að frekari velgengni. Tekið er dæmi um Nottingham Forest lið Brian Clough frá áttunda áratugnum sem vann hina merku keppni Anglo-Scottish bikarinn árið 1976. Kannski ekki stærsta bikarkeppnin en Clough sagði seinna að þetta hefði haft sín áhrif: Lesa meira

Efnisorð: David Moyes Sunderland Upphitun 5
Enska deildarbikarkeppnin

Stoke 0:2 Manchester United

Björn Friðgeir skrifaði þann 18. desember, 2013 | 20 ummæli

Eins og undanfarið var byrjunarliðið búið að leka til David McDonnell, blaðamanns á Daily Mirror, @DiscoMirror áður en nokkur annar birti það.

De Gea

Rafael Smalling Evans Evra

Cleverley Jones Anderson

Valencia     Young

Welbeck

Varamenn: Johnstone, Hernandez, Nani, Fletcher, Kagawa, Büttner, Zaha

Þegar þetta lið var birt var ekki laust við að ég óttaðist að þriggja manna miðjan yrði aðeins of neikvæð. Það kom í ljós að það reyndist nokkuð rétt og nákvæmlega ekki neitt gerðist í fyrri hálfleik, utan að dómarinn tók leikmenn útaf í 5 mínútur þegar hríðin var orðin svo þétt að hann sá ekki út úr augum. Reyndar hjálpar ekki að skýrsluhöfundur sofnaði yfir leiknum og svaf fram í seinni hálfleik. Moyes hefur líklega heyrt af þessu því hann kippti Anderson útaf og setti Hernandez inná. Það tók ekki langan tíma ða bera ávöxt. Ashley Young sem hafði verið jafn slakur og alltaf kom á blússandi ferð upp miðjuna, gaf á Hernandez og fékk boltann beint til baka og bombaði í netið utan teigs. Sørensen hafði fingur á boltanum en hefði eins getað verið að stoppa fallbyssukúlu. Gjörsamlega ótrúlegt mark úr ótrúlegri átt. Young fagnaði enda gríðarlega þessu fyrsta marki frá maí 2012, hvarf inn í stuðningsmannahópinn fyrir aftan markið og uppskar gult spjald fyrir. Lesa meira

Efnisorð: Ashley Young Leikskýrslur Patrice Evra 20
Enska deildarbikarkeppnin

Stoke City og Darren Fletcher á morgun

Björn Friðgeir skrifaði þann 17. desember, 2013 | 9 ummæli

Á morgun Darren Fletcher fer United Darren Fletcher í heimsókn Darren Fletcher til Stoke Darren Fletcher í fjórðungsúrslitum Darren Fletcher deildarbikarsins. Af Darren Fletcher óviðráðanlegum ástæðum Darren Fletcher missti upphitari Darren Fletcher af leiknum Darren Fletcher um helgina og Darren Fletcher hefur því Darren Fletcher ákveðið að einbeita sér Darren Fletcher að stærstu fréttunum Darren Fletcher úr þeim leik Lesa meira

Efnisorð: Darren Fletcher Upphitun 9
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Interim pages omitted …
  • Page 10
  • Page 11
  • Page 12
  • Page 13
  • Page 14
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • Snjómaðurinn um Liðið í Manchester slagnum
  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • binance account um 96. þáttur – Vörn, miðja, kantur eða sókn? Hvaða staða þarfnast mest styrkingar?
  • Vivod iz zapoya na domy_vmKt um Jóla jóla jólaleikur á morgun

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress