• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Enska deildarbikarkeppnin

Enska deildarbikarkeppnin

Manchester United 4:0 Norwich City

ellioman skrifaði þann 29. október, 2013 | 15 ummæli

United tók á móti Norwich City í fjórðu umferð Capital One bikarkeppninni. Fyrir leikinn töluðu flestir stuðningsmenn um áhuga sinn að fá að sjá Januzaj og Zaha í liði United. Moyes ákvað að vera góður gæji og uppfyllti óskir þeirra.

Byrjunarlið United var skipað svona

Lindegaard

Rafael Ferdinand Vidic Büttner

Zaha Jones Cleverley Young

Januzaj

Chicharito

og á bekknum voru þeir Amos, Anderson, Rooney, Giggs, Smalling, Fabio og Valencia. Lesa meira

Efnisorð: Leikskýrslur Norwich City 15
Enska deildarbikarkeppnin

Norwich í deildarbikarnum.

Tryggvi Páll skrifaði þann 28. október, 2013 | 9 ummæli

Á morgun kemur Norwich í heimsókn á Old Trafford í 4.umferð deildarbikarsins eða Capital One Cup eins og hann heitir víst fullu nafni. Við slógum auðvitað Liverpool út í þessari keppni og Norwich hefur sigrast á Bury og Watford til þess að komast í þessa umferð. Rétt er að vekja athygli á því að nú er kominn vetrartími á Englandi og er klukkan nú það sama þar og hér á klakanum. Leikurinn er því klukkan 19.45. Lesa meira

Efnisorð: Norwich City Upphitun 9
Enska deildarbikarkeppnin

Manchester United 1:0 Liverpool

Tryggvi Páll skrifaði þann 25. september, 2013 | 13 ummæli

Það er aldrei leiðinlegt að sigra Liverpool og hvað þá að slá þá út úr bikarkeppni. Þetta er bara deildarbikarinn en það er öllum sama um það í augnablikinu. Fínasti 1-0 sigur á erkifjendunum staðreynd. Þetta var opin og skemmtilegur leikur og allt annað en leikur þessara liða í deildinni í byrjun mánaðarins. Rétt í þessu var svo dregið í 4. umferð keppninnar og þar mætum við Norwich á Old Trafford. Leikurinn fer væntanlega fram þann 30. október. Lesa meira

Efnisorð: Leikskýrslur Liverpool 13
Enska deildarbikarkeppnin

Liverpool mætir á Old Trafford

Tryggvi Páll skrifaði þann 24. september, 2013 | 6 ummæli

Á morgun fer fram síðasti leikurinn í þessari gríðarlega erfiðu leikjahrinu í upphafi tímabilsins. Hún var nú alveg nógu erfið fyrir áður en við drógumst gegn Liverpool í deildarbikarnum en við spilum við þá annað kvöld á Old Trafford. Þó maður kjósi helst að fá veikari andstæðinga í þessum mjólkurbikar verður að segjast að það er bara fínt að fá Liverpool í heimsókn eftir afhroðið á sunnudaginn. Lesa meira

Efnisorð: Liverpool Upphitun 6
Enska deildarbikarkeppnin

Chelsea 5:4 Man Utd – deildarbikar

Tryggvi Páll skrifaði þann 31. október, 2012 | 13 ummæli

Hvar skal byrja?

Þessi leikur var frábær skemmtun og leit mjög vel út allt þar á 94. mínútu. Ég nenni ekki að fara yfir á hvaða mínútu mörkin komu og allt það. Í staðinn ætla ég bara að nefna nokkra hluti sem mér fannst athyglisverðir við þennan leik.

Byrjum á byrjunarliðinu. United stillti upp hefðbundnu deildarbikarliði. Vegna meiðsla varnarmanna okkar fengu M.Keane og S. Wooton tækifæri á ný í byrjunarliðinu ásamt Büttner. Rafael var í hægri bak til þess að gefa varnarlínunni smá reynslu (!). Þrátt fyrir að leikurinn hafi endað 5-4 fyrir Chelsea er ekki annað hægt en að hrósa Wooton og Keane. Allt fram á 94. mínútu stoppuðu þeir nánast allt sem kom að marki United og stóðu sig einstaklega vel. Það eru svo tvenn mistök sem hiklaust er hægt að skrifa á reynsluleysi og þreytu sem gefa Chelsea mark númer 3 og 4. Wooton gerði mistökin en stóð sig annars vel. Ég var samt sérstaklega hrifinn af Keane, mér fannst hann standa sig mjög vel og ég held að hann geti alveg dekkað þessa stöðu vandræðalaust ef meiðslin halda áfram. Auðvitað er grátlegt að mistök Wooton hafi kostað okkur sigurinn í þessum leik en þetta fer í reynslubankann og það er ómetanlegt. Lesa meira

Efnisorð: Chelsea Leikskýrslur 13
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Interim pages omitted …
  • Page 11
  • Page 12
  • Page 13
  • Page 14
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • Snjómaðurinn um Liðið í Manchester slagnum
  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • binance account um 96. þáttur – Vörn, miðja, kantur eða sókn? Hvaða staða þarfnast mest styrkingar?
  • Vivod iz zapoya na domy_vmKt um Jóla jóla jólaleikur á morgun

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress