• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Enska deildarbikarkeppnin

Enska deildarbikarkeppnin

Auðveld átta-liða úrslit?

Ragnar Auðun Árnason skrifaði þann 9. janúar, 2023 | Engin ummæli

Manchester United tekur á móti Charlton Athletic á morgun klukkan 20:00 á Old Trafford. Um er að ræða átta-liða úrslit í enska deildarbikarnum. Charlton er eina liðið eftir í keppninni sem er ekki í ensku úrvalsdeildinni. Það er því hægt að segja að United hafi sloppið vel með dráttinn. Charlton er í dag í 1. deild eða þriðju efstu deild á Englandi (e. English Football League 1). Gengi Charlton í deildinni á tímabilinu hefur ekki verið mikið til þess að hrópa húrra fyrir en liðið situr í 12. sæti, 26 stigum á eftir Steven Schumacher (nei ekkert skyldur Michael) og lærisveinum hans í Plymouth Argyle, sem sitja á toppi deildarinnar. Það hefur þó gengið talsvert betur í deildarbikarnum hjá Charlton en sigur gegn Brighton í vítaspyrnukeppni tryggði þeim sæti í pottinum þegar dregið var í átta-liða úrslitin. United vann hins vegar ágætlega þægilegan sigur á Burnley í 16-liða úrslitum í fyrsta leik eftir HM. Lesa meira

0
Enska deildarbikarkeppnin

Burnley fyrsti mótherjinn eftir HM-hlé

Zunderman skrifaði þann 20. desember, 2022 | Engin ummæli

Embed from Getty Images

Manchester United hefur leik á ný eftir mánaðarlangt hlé vegna heimsmeistarakeppninnar í knattspyrnu þegar liðið tekur á móti Burnley á morgun miðvikudag í 16 liðar úrslitum enska deildarbikarsins. Lesa meira

0
Enska deildarbikarkeppnin Enska úrvalsdeildin

Manchester United 4:2 Aston Villa

Björn Friðgeir skrifaði þann 10. nóvember, 2022 | 2 ummæli

Liðið gegn Aston Villa er komið og nokkrar breytingar frá síðasta leik gegn einmitt Aston Villa. Martial kemur í byrjunarlið en Harry Maguire gerir það einnig og spilar við hlið Lindelöf í hjarta varnarinnar.

Lið United

31
Dubravka
12
Malacia
2
Lindelöf
5
Maguire
20
Dalot
39
McTominay
17
Fred
10
Rashford
34
Van de Beek
8
Fernandes
9
Martial

Varamenn: Garnacho (62′), Elanga (62′), Eriksen (62′) Casemiro(80′) Martínez(86′)

Lið Aston Villa

25
Olsen
17
Augustinsson
16
Chambers
4
Konsa
18
Young
44
Kamara
6
Luiz
7
McGinn
41
Ramsey
9
Ings
11
Watkins

Þetta er svo sem ekki mest spennandi leikur fyrirfram sem hægt er að ímynda sér en fyrri hálfleikur var dræmari leikur en nokkuróttaðist. United var mikið breytt og ekki margir af þeim sem fengu sénsinn í kvöld sýndu neitt mikið sem gæti komið þeim inn í aðalliðið. Lesa meira

2
Enska deildarbikarkeppnin

Bíddu, aftur? Vorum við ekki…

Björn Friðgeir skrifaði þann 9. nóvember, 2022 | Engin ummæli

Jú við erum víst nýbúin að spila við Aston Villa en fáum nú smá tækifæri til að hefna tapsins, þegar Villa kemur í heimsókn í Carabao bikarnum annað kvöld. Venjulega værum við að horfa upp á verulega breytt lið frá sunnudeginum og þá í átt að yngri leikmönnum og þeim sem eru á jaðri aðalliðs en það verður ef eitthvað er öfugt hjá United. Bruno Fernandez er frjáls úr banninu, Anthony Martial kom inn á sunnudaginn og ætti að vera heill og Antony og Jadon Sancho gætu báðir verið orðnir góðir af meiðslum og veikindum.  Að auki er aðeins þessi leikur og deildarleikurinn gegn Fulham á sunnudag eftir fram að HM hléi og því engin ástæða til að hvíla menn. Lesa meira

0
Enska deildarbikarkeppnin

Manchester United 0:2 Manchester City

Björn Friðgeir skrifaði þann 6. janúar, 2021 | 7 ummæli

Bæði lið stilltu upp sterkum liðum

26
Henderson
23
Shaw
5
Maguire
2
Lindelöf
29
Wan-Bissaka
17
Fred
6
Pogba
39
McTominay
18
Bruno
10
Rashford
9
Martial

Varamenn: De Gea, Telles, Bailly, Tuanzebe, James, Mata, Matic, Van de Beek, Greenwood

Steffen
Zinchenko
Dias
Stones
Cancelo
Gündogan
Fernandinho
Foden
De Bruyne
Mahrez
Sterling

Leikurinn byrjaði á afskaplega skemmtilegu sjálfsmarki City, Steffan varði skot frá Rashford og boltinn fór af varnarmanni og lak í netið. En því miður hafði Rashford verið rangstæður þannig þessi skemtun var til lítils. City var annars meira með boltann og Gündogan setti boltann í netið líka en var sömuleiðis rangstæður. Lesa meira

7
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Page 2
  • Page 3
  • Page 4
  • Page 5
  • Interim pages omitted …
  • Page 14
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • Snjómaðurinn um Liðið í Manchester slagnum
  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • binance account um 96. þáttur – Vörn, miðja, kantur eða sókn? Hvaða staða þarfnast mest styrkingar?
  • Vivod iz zapoya na domy_vmKt um Jóla jóla jólaleikur á morgun

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress