• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Enska úrvalsdeildin

Enska úrvalsdeildin

Manchester United 3:2 Fulham

Magnús Þór skrifaði þann 25. ágúst, 2012 | 1 ummæli

Fyrsta heimaleiknum er lokið með sigri okkar manna á spræku Fulham liði. Þetta leit ekki vel út í byrjun þegar Damien Duff kom gestunum yfir á 3. mínútu. En markið var ákveðið spark í rassgatið fyrir heimamenn sem tóku öll völd á vellinum. Patrice Evra átti fyrirgjöf sem virkaði frekar misheppnuð en Robin van Persie afgreiddi hana glæsilega framhjá Mark Schwarzer. Eftir það róaðist leikurinn örlítið en United var samt meira með boltann. Shinji Kagawa skoraði svo auðvelt mark eftir mistök frá Schwarzer sem varði skot Tom Cleverley beint í fætur Japanans sem gat ekki annað en skorað. Bakvörðurinn Rafael var mjög duglegur í sóknarleiknum í dag skoraði svo mark sem var dæmt af vegna rangstæðu réttilega en tæpt. Skömmu seinna átti Ashley Young fyrirgjöf sem Rafael af öllum mönnum skallaði í markið og United komnir í 3-1 og þannig var staðan í hálfleik. Lesa meira

Efnisorð: Fulham Leikskýrslur 1
Enska úrvalsdeildin

Byrjunarliðið gegn Fulham

Sigurjón skrifaði þann 25. ágúst, 2012 | Engin ummæli

De Gea

Rafael Carrick Vidic Evra

Cleverley Anderson

Valencia Kagawa Young

Van Persie

Jáhá, heilar fimm breytingar frá leiknum gegn Everton. Rafael kemur inn í hægri bakvörðinn, Valencia settur í sína venjulegu stöðu á kostnað Nani sem var ekki upp á sitt besta s.l. mánudag. Young kemur inn fyrir Welbeck og síðan sjáum herra Robin van Persie í byrjunarliðinu, og það á kostnað Rooney. Það kemur mér aðeins á óvart, ég bjóst við að Ferguson myndi byrja með þá báða í þessum leik, en gamli er greinilega á annari skoðun. Anderson kemur svo inn fyrir Scholes í djúpa miðjumanninn. Þrátt fyrir töluverðar breytingar sjáum við sama kerfi og gegn Everton, ég veit að þetta er það sem koma skal, en einhverja hluta vegna verð ég hissa þegar ég sé Man Utd ekki spila einhverja útgáfu af 4-4-2. Lesa meira

Efnisorð: Fulham Liðsuppstilling 0
Enska úrvalsdeildin

Manchester United vs. Fulham

Magnús Þór skrifaði þann 23. ágúst, 2012 | 3 ummæli

Á laugardaginn 25.ágúst leika United menn fyrsta heimaleik tímabilsins. Menn verða staðráðnir í því að sýna betri spilamennsku en á móti Everton. Búast má við því að Robin van Persie byrja sinn fyrsta heimaleik fyrir okkur, ekki veitir okkur af smá biti í sóknarleikinn. Vörnin verður líklega óbreytt frá því gegn Everton nema að Rafael fari í bakvörðinn og Valencia á hægri kantinn. Lesa meira

Efnisorð: Fulham Upphitun 3
Enska úrvalsdeildin

Everton 1:0 Manchester United

Magnús Þór skrifaði þann 21. ágúst, 2012 | 1 ummæli

Nú er fyrsta leik okkar manna á þessu tímabili lokið og ekki voru úrslitin neitt til að hrópa húrra yfir. Það var óþolandi að sjá að okkar menn höfðu engin ráð við Fellaini sem virðist alltaf eiga sína bestu leiki gegn okkur, það kom því ekki á óvart að hann skyldi skora gegn okkur. Everton áttu hættulegri færi en við vorum meira með boltann en virtumst alltaf eiga erfitt með að koma honum framhjá fyrsta manni hjá þeim. Nokkrir af okkar mönnum voru ekki uppá sitt besta í þessum leik, Nani sem er frábær oft á köflum en svo koma leikir þar sem hann tekur alltof margar rangar ákvarðanir með boltann, vantar meiri stöðugleika. Wayne Rooney átti ekki góðan leik, virkaði þreyttur og úr æfingu, reyndar man ég ekki eftir því að hann hafi átt góðan leik á Goodison Park og þessi leikur var svo sannarlega engin undantekning. Þessir tveir leikmenn ollu mér vonbrigðum í þessum leik þó svo að aðrir hafi líka verið undir getu. Michael Carrick sem að meðtöldum Antonio Valencia sem voru að spila úr stöðu voru ekki jafn beittir og á síðustu leiktíð. Lesa meira

Efnisorð: Everton Leikskýrslur 1
Enska úrvalsdeildin

Byrjunarliðið gegn Everton

Sigurjón skrifaði þann 20. ágúst, 2012 | Engin ummæli

Jæja, fyrsti leikur tímabilsins, gegn Everton, að fara í gang eftir rúman klukkutíma og liðið er auðvitað klárt. Kíkjum á:

De Gea

Valencia Carrick Vidic Evra

Scholes Cleverley

Nani Kagawa Welbeck

Rooney

Stærstu fréttirnar eru þær að Ferguson velur Welbeck framyfir Van Persie. Það ætti kannski ekki að koma svo mikið á óvart, það er ekki óvenjulegt að glænýir menn byrji á bekknum. Hinsvegar, þegar við erum að tala um menn af þeirri stærðargráðu sem Van Persie er þá bjóst maður nú við því að sjá hann frammi með Rooney. Eins og flestir vita er varnarlínan hjá okkur frekar lömuð þessa dagana þannig að Valencia er í hægri bakverði og Carrick frontar svo vörnina með Vidic (sem er frábært að sjá aftur í liðinu!). Þar sem Carrick er dottinn í vörn þá falla Shcoles og Cleverley aðeins aftar á völlinn, og síðan eru Nani, Kagawa og Welbeck þar sem við könnumst við þá. Lesa meira

Efnisorð: Everton Liðsuppstilling 0
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Interim pages omitted …
  • Page 208
  • Page 209
  • Page 210

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Arni um Liðið í Manchester slagnum
  • Helgi P um Liðið í Manchester slagnum
  • Gummi um Liðið í Manchester slagnum
  • Halldór Marteins um Liðið í Manchester slagnum
  • sófinn um Liðið í Manchester slagnum

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress