• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Jóladagatalið

Jóladagatalið

Jóladagal, 14. desember 2015, 10 dagar til jóla

Halldór Marteins skrifaði þann 14. desember, 2015 | Engin ummæli

Minnum á jóladagalið fyrir gærdaginn sem kom inn rétt í þessu hér að neðan, greinina um Evrópudeildardráttinn og podkastið sem var tekið upp á sunnudaginn, einnig hér að neðan.

Nick Culkin

Þriðji jólasveinninn sem kemur til byggða er Stúfur. Hann hefur að vísu ekki eingöngu gengið undir því nafni, hann hefur líka verið kallaður Pönnuskefill eða Pönnuskuggi. Hann er aðallega þekktur fyrir tvennt, hann er stuttur og hann vill hirða agnir. Lesa meira

0
Gestapistill Jóladagatalið Pistlar

Jóladagatal, 13. desember 2015, 11 dagar til jóla

Halldór Marteins skrifaði þann 13. desember, 2015 | Engin ummæli

Gluggi dagsins í jóladagatalinu er ekki af verri gerðinni!

George Best

Annar jólasveinninn til að mæta til byggða er sjálfur grallarinn hann Giljagaur.

Giljagaur var annar,
með gráa hausinn sinn.
Hann skreið ofan úr gili
og skaust í fjósið inn.

Hann faldi sig í básunum
og froðunni stal,
meðan fjósakonan átti
við fjósamanninn tal.

Efnisorð: Minningar 0
Jóladagatalið

Jóladagatal, 12. desember 2015, 12 dagar til jóla

Halldór Marteins skrifaði þann 12. desember, 2015 | Engin ummæli

Hoppy Thorne

Þá er fyrsti jólasveinninn kominn til byggða og það er sjálfur Stekkjastaur sem keyrir þetta jólasveinapartý í gang. Helsta leiðin til að þekkja Stekkjastaur er að hann hafði staurfætur svo hann átti í erfiðleikum þegar kom að því að sjúga ærnar. Eins og segir í kvæðinu:

Stekkjastaur kom fyrstur,
stinnur eins og tré.
Hann laumaðist í fjárhúsin
og lék á bóndans fé. Lesa meira

0
Jóladagatalið Lesefni

Jóladagatal, 11. desember 2015, 13 dagar til jóla

Halldór Marteins skrifaði þann 11. desember, 2015 | Engin ummæli

Minnum á upphitunina fyrir leik morgundagsins hér að neðan, og svo að sjálfsögðu á leikinn á morgun. Annars heldur jóladagatalið áfram að rúlla.

The Outcasts FC

0
Enska úrvalsdeildin Jóladagatalið

Jóladagatal, 10. desember 2015, 14 dagar til jóla

Halldór Marteins skrifaði þann 10. desember, 2015 | 1 ummæli

Frank Barson

Laugardaginn 10. desember 1921 komu leikmenn Bradford City í heimsókn á Old Trafford. Viku áður hafði United farið til Bradford og spilað þar við liðið á Valley Parade vellinum. Þá skoraði Joe Spence mark United en David Pratt og Peter Logan skoruðu mörk Bradford sem vann leikinn. Leikmenn United vildu því ólmir hefna fyrir tapið þegar Bradford kom í heimsókn. Leiktímabilið hafði heldur ekki gengið sem best hjá United-piltum, þegar þarna var komið við sögu hafði liðið spilað 17 leiki, tapað 8 þeirra og var í næst neðsta sæti. Neðsta liðið, Arsenal, átti auk þess leik til góða. Bradford hafði gengið aðeins betur og var í 17. sæti af 22 liðum. En United náði ekki fram hefndum í þessum leik, hann endaði 1-1. Mark United skoraði William Henderson og mark Bradford skoraði Bill Howson. Þetta reyndist ekki gott tímabil fyrir þessi lið, Manchester United endaði að lokum í neðsta sætinu eftir 22 tapleiki af 42. Liðið skoraði aðeins 41 mark en fékk á sig 73. Bradford tapaði síðustu 5 leikjum sínum og endaði í næst neðsta sætinu. Þessi lið féllu því niður í 2. deildina. Lesa meira

1
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Page 2
  • Page 3
  • Page 4
  • Page 5
  • Interim pages omitted …
  • Page 8
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • binance account um 96. þáttur – Vörn, miðja, kantur eða sókn? Hvaða staða þarfnast mest styrkingar?
  • Vivod iz zapoya na domy_vmKt um Jóla jóla jólaleikur á morgun
  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • Arni um Liðið í Manchester slagnum

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress