• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Landsleikir

Landsleikir Leikmenn

Landsleikjahléinu lokið (nánast)

Tryggvi Páll skrifaði þann 17. október, 2012 | Engin ummæli

Nú er þessu blessaða landsleikjahléi lokið (nánast) og voru leikmenn félagsins að spila á fjölmörgum vígstöðum.

Byrjum á ensku leikmönnunum okkar. Á föstudaginn spilaði Manchester Unite…afsakið, England, við San Marinó á Wembley og það voru okkar menn sem sáu alfarið um þann sigur. Þetta var góður leikur fyrir okkar menn því þeir voru allt í öllu. Wayne Rooney, í sínum fyrsta leik sem fyrirliði Englands, skoraði tvo mörk auk þess sem að Danny Welbeck skoraði tvö og lagði upp eitt. Tom Cleverley stjórnaði miðjunni algjörlega ásamt Michael Carrick. Cleverley var með sendingarhlutfall upp á 141/146 og lagði upp tvö af mörkum Englands, ekki amalegt það.  Lokatölur 5-0 og áttu okkar menn þátt í öllum mörkunum. England átti svo að spila við Pólland í gær en leiknum var frestað vegna gríðarlegar bleytu á vellinum og fer leikurinn fram á eftir kl 15.00. Fastlega má búast við því að okkar menn spili þar stórt hlutverk en vonum að frestun leiksins hafi ekki þau áhrif að þeir verði þreyttir fyrir átök helgarinnar Lesa meira

0
Landsleikir Leikmenn

United menn í landsliðsverkefnum, seinni hluti

Björn Friðgeir skrifaði þann 12. september, 2012 | 2 ummæli

Þá eru seinni leikir þessara landsleikjahrinu búnir og þetta var mis-skemmtilegt fyrir okkar menn.

Robin van Persie meiddist á læri í leik Hollendinga og Ungverja og fór útaf í hálfleik, en að sögn Louis van Gaal, stjóra Hollendinga var það aðeins varúðarráðstöfun þannig að við vonum að hann verði með á laugardaginn kemur. Shinji Kagawa varð fyrir einhverjum bakeymslum fyrir leik Japan og Írak og byrjaði ekki leikinn, en hann segir sjálfur að það sé ekki alvarlegt. Kæmi þó svo sem ekki á óvart þó þeir yrðu hvíldir á móti Wigan. Lesa meira

2
Landsleikir Leikmenn

United menn í landsliðsverkefnum

Sigurjón skrifaði þann 8. september, 2012 | 2 ummæli

Eins og við Íslendingar vitum manna best þá var spilað í gærkvöldi í undankeppninni fyrir heimsmeistaramótið. Nokkrir leikmenn Man Utd voru í eldlínunni og því við hæfi að minnast á gengi þeirra.

Tom Cleverley, Michael Carrick og Danny Welbeck spiluðu allir í 5-0 stórsigri Englands á Moldavíu. Carrick kom inn á í hálfleik fyrir Gerrard og Welbeck komu svo inn á þegar um 20 mínútur voru eftir af leiknum. Báðir stóðu sig ágætlega en bestur United manna var klárlega Cleverley sem átti afskaplega góðan dag á miðjunni. Hann spilaði allan leikinn fyrir framan Lampard og Gerrard/Carrick, var mjög sprækur og fiskaði vítaspyrnu sem skóp fyrsta mark Englendinga. Frábær opnun hjá stráknum en þetta var fyrsti alvöru landsleikur hans fyrir England. Lesa meira

2
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Page 2
  • Page 3

Primary Sidebar

Michelsen Tag Heuer er styrktaraðili Rauðu djöflanna

Síðustu ummæli

  • Steve Bruce um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Halldór Marteins um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Sveinn um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Halldór Marteins um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi
  • Sveinn um Manchester United 5-4 Lyon: Sá góði, sá vondi og sá ótrúlegi

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2025 · Keyrt á WordPress