• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Ritstjóraálit

Enska úrvalsdeildin Pistlar Ritstjóraálit Stjórinn

Við þurfum að tala um Louis van Gaal

Tryggvi Páll skrifaði þann 18. mars, 2016 | 26 ummæli

Ég var ekkert sérlega æstur í að skrifa þessa upphitun eftir að liðið hrapaði úr Evrópudeildinni í gær. Það má því ímynda sér hvernig stemmarinn er á æfingasvæðinu fyrir næsta leik.

Já, það er skammt stórra högga á milli. Á sunnudaginn skreppur United í hinn enda borgarinnar til þess að mæta City í Manchester-borgarslagnum.

Þessi lið eru í harðri baráttu um fjórða og síðasta Meistaradeildarsætið í deildinni og leikurinn á sunnudag gæti veitt öðru hvoru liðinu gott spark í áttina að Wenger-bikarnum fræga. Spurning hvort að það mætti ekki fara að kalla þetta LvG-bikarinn enda virðist fjórða sætið vera hans helsta markmið. Lesa meira

Efnisorð: Louis van Gaal Manchester City Upphitun 26
Enska úrvalsdeildin Lesefni Pistlar Ritstjóraálit

Reiðilestur Runólfs

Runólfur Trausti skrifaði þann 30. desember, 2015 | 10 ummæli

Það hefur myndast mikil umræða í kommentakerfinu eftir Chelsea leikinn, þar sem menn eru að vissu leyti jákvæðir og aðrir neikvæðir, skiljanlega. Fyrr í desember skrifaði ég Mánudagspælingar sem voru í jákvæðari kantinum. Þar listaði ég upp nokkrar ástæður sem gætu orsakað bjartsýni varðandi Manchester United. Síðan þá hefur liðið hins vegar tapað fyrir Wolfsburg og þar af leiðandi dottið út úr Meistaradeildinni, einnig tapaði það fyrir Bornmouth, Norwich og Stoke áður en það gerði 0-0 jafntefli við Chelsea. Lesa meira

10
Meistaradeild Evrópu Pistlar Ritstjóraálit

Wolfsburg 3:2 Manchester United – United er dottið úr Meistaradeildinni

Tryggvi Páll skrifaði þann 8. desember, 2015 | 28 ummæli

Manchester United er dottið úr Meistaradeildinni í ár. Vonbrigðin eru sár.

Svona var liðið sem mætti Wolfsburg í kvöld:

1
De Gea
36
Darmian
17
Blind
12
Smalling
30
Varela
31
Bastian
8
Mata
27
Fellaini
7
Memphis
35
Lingard
9
Martial

Bekkur: Romero, Borthwick-Jackson (Darmian), McNair, Carrick (Bastian), Pereira, Young, Powell. (Mata) [footnote]Þetta er ekki grín. Nick Powell kom í alvöru inná fyrir Juan Mata.[/footnote]

Guillermo Valera í byrjunarliðinu í fyrsta sinn síðan hann gekk til liðs við United. Nick Powell á bekkum ásamt Cameron Borthwick-Jackson. Nokkuð þunnskipaður hópur enda mikið um meiðsli. Lesa meira

Efnisorð: Leikskýrslur Louis van Gaal Wolfsburg 28
Ritstjóraálit Uppgjör

Tímabilið 2014-15 gert upp

Ritstjórn skrifaði þann 29. maí, 2015 | 6 ummæli

Yfirferðin yfir síðasta tímabil heldur áfram. Við podköstuðum og við skoðuðum nýju leikmennina en núna eru það stóru spurningarnar sem svarað verður

Hver er ykkar skoðun á þessu tímabili með United?

Tryggvi:

Svo að það sé alveg á hreinu þá er 4. sætið enginn árangur fyrir félag eins og Manchester United og ekkert til þess að stæra sig af. Undir venjulegum kringumstæðum myndi þetta tímabil flokkast undir: „Gleymist“. Kringumstæðurnar hafa þó auðvitað ekki verið venjulegar. Louis van Gaal tók við algjöru skipbroti eftir langt tímabil vanfjárfestingar og svo auðvitað David Moyes. Annað sumarið í röð tók nýr stjóri við og það tekur bara sinn tíma fyrir nýjan stjóra að ná áttum, meta hópinn og svo framvegis. Ólíkt Moyes fékk Louis van Gaal góðan stuðning á leikmannamarkaðinum og ólíkt Moyes hafði van Gaal tök á verkefninu. Við náðum 4. sæti þrátt fyrir talsverða leikmannaveltu og algjörlega fordæmalausa tíðni meiðsla hjá leikmönnum liðsins, sérstaklega varnarmönnum félagsins. Með þetta á bakinu náði van Gaal markmiðum tímabilsins. Það besta við tímabilið hefur líklega verið frammistaða liðsins gegn liðunum sem við erum í helstri samkeppni við og það er það sem hefur fleytt okkur í þetta fræga 4. sæti. Lesa meira

6
Pistlar Ritstjóraálit Stjórinn

David Moyes vs Louis van Gaal?

Tryggvi Páll skrifaði þann 3. nóvember, 2014 | 19 ummæli

 

 

 

 

 

 

 

Þetta eru ekkert sérstaklega fallegar myndir hér fyrir ofan. Hvorug þessara mynda lýsir einhverju sem þeir sem tengjast Manchester United á einhvern hátt geta verið stoltir eða ánægðir með. Umræðan undanfarna viku hefur snúist um það sem þessar myndir sýna og verið eitthvað á þessa leið: David Moyes fékk ekki að eyða næstum því jafn miklu og Louis van Gaal en gerði samt betur. Þetta tíst var líkt ansi mörgum sem fjölmiðlamenn og stuðningsmenn annara liða hafa verið að retweet-a og favorite-a yfir á tímalínuna mína á Twitter undanfarna daga. Ég geri ráð fyrir að þessi umræða magnist bara á næstu dögum eftir leik helgarinnar: Lesa meira

Efnisorð: David Moyes Louis van Gaal 19
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Page 2
  • Page 3
  • Page 4
  • Page 5
  • Interim pages omitted …
  • Page 7
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • binance account um 96. þáttur – Vörn, miðja, kantur eða sókn? Hvaða staða þarfnast mest styrkingar?
  • Vivod iz zapoya na domy_vmKt um Jóla jóla jólaleikur á morgun
  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • Arni um Liðið í Manchester slagnum

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress