• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Slúður

Leikmenn Slúður

Morgunfréttirnar

Björn Friðgeir skrifaði þann 29. ágúst, 2012 | 4 ummæli

Eins og vænta má, þrem dögum fyrir lokun félagaskiptagluggans, ræður slúðrið ríkjum. Dimitar Berbatov er skv. fréttum í flugvél á leiðinni til Flórens í læknisskoðun eftir að United tók tilboði Fiorentina, sem ku vera um 4 milljónir punda. Virðist nokkuð vel staðfest frétt.

Moussa Dembélé, sem margir United menn hafa viljað sjá koma til félagsins, er hins vegar á leiðinni til Tottenham Hotspur eftir að þeir buðu þær 15 milljónir sem útkaupaklásúlan í samningi hans kvað á um. Orðið á götunni er að United hafi haft áhuga en ekki sem svaraði meira en 11 milljónum. Lesa meira

Efnisorð: Dimitar Berbatov 4
Leikmenn Slúður

Verður Nani seldur??

Sigurjón skrifaði þann 28. ágúst, 2012 | 3 ummæli

Þær fréttir berast nú í morgunsárið að Zenit frá Pétursborg í Rússlandi sé á eftir Nani og hafi boðið 25 milljónir punda í piltinn. Það eru eflaust skiptar skoðanir um Nani en það er engin spurning að maðurinn hefur reynst liðinu mikilvægur og bjargað því upp á sitt einsdæmi, trekk í trekk. Þegar Nani er að spila á 100% afli þá er hann einn besti maður deildarinnar, engin spurning. Löstur hans er hinsvegar stöðuleiki, við erum ekki að sjá hans rétta andlit nema í kannski 30% leikja, restina af tímanum er hann svo sem að spila ágætlega, en virkar samt hálf bitlaus miðað við þann Nani sem við viljum alltaf sjá. Oft er hann svo að taka stórkostlega vondar ákvarðanir á mikilvægum tímapunktum, til dæmis í lok leikja þar sem Man Utd þarf á marki að halda. Lesa meira

Efnisorð: Nani 3
Leikmenn Slúður

Rooney lengur frá?

Sigurjón skrifaði þann 27. ágúst, 2012 | 1 ummæli

Áhorfendur sáu Rooney skerast ansi illa á laugardaginn þegar Rodallega steig óvart ofan á innanvert lærið á honum. Ferguson talaði um fljótlega eftir leikinn að Rooney yrði frá í kringum fjórar vikur en nýjustu fréttir herma að skurðurinn reyndist mun verri en fyrsta skoðun gaf til kynna. Til að sauma Rooney saman þurfti víst að svæfa hann en skurðurinn ku hafa verið alveg inn að beini, sem er hrikalega brútal því það er ekki eins og Rodallega hafi notað beittan eldhúshníf. Talað er nú um að fjarvera Rooney gæti orðið nær tveimur mánuðum ef lærvöðvinn hefur orðið fyrir einhverjum skemmdum. Lesa meira

Efnisorð: Wayne Rooney 1
Leikmenn Slúður

Henríquez fær atvinnuleyfi og slúður

Björn Friðgeir skrifaði þann 22. ágúst, 2012 | Engin ummæli

United hefur staðfest að Ángelo Henríquez er kominn með atvinnuleyfi og mun ganga til liðs við United eftir að leika sinn síðasta leik með Universidad de Chile í dag.

Henríques er 18 ára sóknarmaður sem United hefur haft forkaupsrétt á i 3 ár og hefur komið reglulega til æfinga í Manchester. Hann hefur síðasta árið slegið í gegn með La U eins og Universidad er kallað og verið lykilsóknarmaður þeirra síðasta ár sem hefur verið gjöfult. La U eru ‘Apertura’ meistarar þessa árs, en það er fyrri hluti sílensku deildarinnar. Nú er seinni hlutinn í gangi og eru La U næst efstir með leiki til góða. Einnig komust þeir í undanúrslit Copa Libertadores, suður-amerísku Meistaradeildarinnar í vor. Liðið þykir spila einhverja skemmtilegustu knattspyrnuna þar í álfu. Henríquez er búinn að skora 11 mörk í 17 deildarleikjum. Það er því ekki annað hægt að búast við öðru en góðu af pilti, en enn er óljóst hvort hann verður sendur í lán eitthvert. Það er ekki eins og við séum alveg á flæðiskeri staddir með framherja eins og stendur. Lesa meira

Efnisorð: Angelo Henriquez 0
Fjármál Leikmenn Pistlar Slúður

Shinji Kagawa: Kjarakaup eða eina sem við höfum efni á?

Björn Friðgeir skrifaði þann 31. maí, 2012 | 1 ummæli

Flestir United stuðningsmenn hafa væntanlega einhvern pata af því að fjármál United eru ekki eins frjálsleg og margir myndu vilja. Nú, ef þú hefur ekki heyrt af því máttu bóka að við eigum eftir að skrifa eitthvað um það á næstunni.

Í þessari viku virðist vera frágengið að Eden Hazard sápuóperan er á enda, hann mun ganga til liðs við Chelsea. Kaupin eiga að kosta Chelsea 35 m. punda, 6 milljónir fara til umba Hazards og launin 180-200 þúsund pund á viku. Til fimm ára er þetta samtals pakki upp á 75 milljónir. Lesa meira

Efnisorð: Shinji Kagawa 1
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Interim pages omitted …
  • Page 14
  • Page 15
  • Page 16

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • binance account um 96. þáttur – Vörn, miðja, kantur eða sókn? Hvaða staða þarfnast mest styrkingar?
  • Vivod iz zapoya na domy_vmKt um Jóla jóla jólaleikur á morgun
  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • Arni um Liðið í Manchester slagnum

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress