• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið

Uppgjör

Félagaskipti Uppgjör

Hverjir komu og fóru?

Magnús Þór skrifaði þann 3. september, 2014 | 7 ummæli

Inn:

Vanja Milinković Vojvodina kaupverð ekki gefið upp
Ander Herrera Athletic Bilbao £29.000.000
Luke Shaw Southampton £27.000.000
Marcos Rojo Sporting Lissabon £16.000.000
Ángel Di María Real Madrid £59.700.000
Daley Blind Ajax Amsterdam £14.300.000
Radamel Falcao AS Monaco á láni (með fyrsta kauprétt)

Út

Federico Macheda Cardiff City frjáls sala
Alexander Büttner Dynamo Moskva £4.400.000
Jack Barmby Leicester City frjáls sala
Rio Ferdinand Queens Park Rangers frjáls sala
Nemanja Vidic Internazionale frjáls sala
Ryan Giggs hættur
Louis Rowley Leicester City frjáls sala
Sam Byrne Everton frjáls sala
Patrice Evra Juventus £1.500.000
Bebé SL Benfica £2.400.000
Shinji Kagawa Borussia Dortmund £6.300.000
Nani Sporting Lissabon Lán
Javier Hernández Real Madrid Lána (með fyrsta kauprétt)
Wilfried Zaha Crystal Palace Lán
Ángelo Henriquez Dinamo Zagreb Lán
Tom Lawrence Leicester City £1.000.000
Nick Powell Leicester City Lán
Michael Keane Burnley Lán
Guillermo Varela Real Madrid Castilla Lán
Tom Cleverley Aston Villa Lán (með fyrsta kauprétt)
Danny Welbeck Arsenal £16.000.000
7
Ritstjóraálit Uppgjör

Uppgjörið – Tímabilið 2013/14

Ritstjórn skrifaði þann 15. maí, 2014 | 4 ummæli

Þá er komið að því sem allir hafa beðið eftir, uppgjör Rauðu Djöflanna fyrir tímabilið 2013/2014.

Hver er ykkar skoðun á frammistöðu United á þessu tímabili?

Tryggvi
Frammistaða félagsins á þessu tímabili var afleit frá A-Ö. Allt frá sumrinu 2013 til vorsins 2014. Það var ljóst að þegar snilli Sir Alex Ferguson nyti ekki lengur við þyrfti að fjárfesta verulega í nýjum leikmönnum. Það gerðist ekkert nema það að Moyes og Woodward keyptu Fellaini á örvæntingarfullan hátt korter fyrir lokun á sjoppunni. Sumrið setti bara tóninn fyrir tímabilið sjálft sem gekk ekki vel, vægast sagt Liðið endar í 7. sæti með lélegustu titilvörn í sögu deildarinnar frá því að Blackburn gerði það sama árið 1996. Það er ekki boðlegt og það er afar fáir sem geta stigið frá þessu tímabili og verið ánægðir með sjálfan sig. Það er ekki bara hægt að enda fingrum á Moyes, leikmennirnir verða að taka sinn skerf af sökinni. Eftir allt saman er þetta sama lið og rúllaði upp deildinni tímabilið áður. Þeir tóku Moyes aldrei í sátt og ef þeir hefðu kannski lagt sig aðeins meira fram um að hjálpa Moyes væri liðið ekki í þessari stöðu. Á móti kemur að kannski var það bara jákvætt. Við erum laus við Moyes, sem var líklega aldrei að fara gera neitt með þetta félag. Lesa meira

4
Pistlar Ritstjóraálit Stjórinn Uppgjör

Ári seinna

Tryggvi Páll skrifaði þann 22. apríl, 2014 | 21 ummæli

Það er ótrúlegt að fyrir nákvæmlega einu ári síðan hafi leikmenn og stuðningsmenn Manchester United verið að fagna meistaratitli nr. 20 eftir glæsilegan sigur á Aston Villa. Allt var eins og það átti að vera. United á toppnum, langt á undan öllum hinum liðunum. Besta liðið, besti stjórinn. Business as usual.

Það er ótrúlegt að ári seinna standi varla steinn yfir steini hjá þessu sama knattspyrnufélagi. Liðið er í 7. sæti og aumasta titilvörn í sögu Englands síðan Manchester City féll tímabilið eftir að hafa unnið titilinn er óumflýjanleg. Við erum stödd í skemmtilegasta hluta tímabilsins, þar sem úrslitin eru að ráðast og öllum keppnum að ljúka. Við erum stödd á heimavelli Manchester United. En Manchester United er ekki í baráttu á neinum vígstöðum og ef félagið myndi sleppa því að senda til leiks í þessum fjórum leikjum myndi það ekki skipta einu einasta máli. Leikirnir sem skipta máli tengjast Manchester United ekki á neinn hátt. Ótrúlegt. Lesa meira

Efnisorð: David Moyes 21
Ritstjóraálit Uppgjör

Uppgjörið – Sumarið og aðrar pælingar

ellioman skrifaði þann 12. júní, 2013 | 4 ummæli

1. Hvað viljið þið sjá gerast í leikmannamálum núna í sumar?

Bjössi:
Vann sex bjóra í fyrra af samritstjórum fyrir að spá því að enginn topp-ekta-miðjumaður yrði keyptur (holumenn töldu ekki). Hefði unnið samskonar veðmál á hverju ári síðan 2009. Það væri rosa gaman að sjá eitt sterkt tröll koma inn á miðjuna. Væri ekki slæmt að sjá vinstri kantmannbakvörð, en býst frekar við að sjá Evra, Büttner og Fabio berjast um þá stöðu næsta vetur. Lesa meira

4
Ritstjóraálit Uppgjör

Uppgjörið – Tímabilið 2012/13

ellioman skrifaði þann 3. júní, 2013 | 2 ummæli

1. Hvernig fannst ykkur þetta tímabil hjá United?

Bjössi:
Öll tímabil sem enda með meistaratign geta ekki verið annað en góð! Að mörgu leyti mjög skrýtið tímabil. Byrjaði frekar brösuglega að manni fannst og bæði Chelsea og City voru á góðu skriði. Síðan fór skútan að réttast, léttur riðill í Meistaradeildinni vannst auðveldlega, Chelsea fór að gefa eftir og við að raka inn stigum.

City fór svo að sýna veikleikamerki og allt í einu í febrúar vorum við með pálmann í höndunum, og gáfum ekkert eftir fyrr en titillinn var í höfn. Töpuðum fyrir Chelsea í báðum bikarkeppnum sem er ekkert il að skammast sín fyrir og Real leikurinn var eins og við vitum. Lesa meira

2
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Page 2

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • Snjómaðurinn um Liðið í Manchester slagnum
  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • binance account um 96. þáttur – Vörn, miðja, kantur eða sókn? Hvaða staða þarfnast mest styrkingar?
  • Vivod iz zapoya na domy_vmKt um Jóla jóla jólaleikur á morgun

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress