Manchester United 3:1 West Ham United
David Moyes, kallinn. Hann er augljóslega að ná tökum á starfinu. Í fyrsta lagi er hann búinn að banna fyrsta blaðamanninn sinn og í öðru lagi var hann bara að fokka í öllum þegar hann sagði að Rooney væri meiddur fyrir jólaleikina því að hann mætti beint í byrjunarliðið sem var svona:
De Gea
Rafael Evans Smalling Evra
Jones Cleverley
Valencia Rooney Januzaj
Welbeck
Bekkur: Johnstone, Giggs, Hernandez, Young, Kagawa, Buttner, Fletcher
Fjórði sigurinn í röð staðreynd og ljóst að spilamennska liðsins hefur batnað mjög mikið síðan í byrjun desember. Það er miklu meiri ákefð í leikmönnum og meiri hraði í leik liðsins. Liðið mætti mjög ákveðið til leiks og pressaði stíft á fyrstu mínútunum. Tom Cleverley, sem hefur heldur bætt leik sinn undanfarið var mjög nálægt því að skora strax á 2. mínútu.
United sótti vel í fyrri hálfleik og uppskar tvö mörk. Fyrra skoraði Danny Welbeck, sitt þriðja í jafnmörkum leikjum, eftir fína sendingu frá Wayne Rooney. Mark nr. 2 var ekki af verri endanum. United vann boltann hátt uppi á vellinum, Januzaj og Welbeck tóku léttan þríhyrning áður en að sá fyrrnefndi fíflaði varnarmann West Ham upp úr skónum og lagði hann glæsilega í markið. Frábært mark og kórónaði frammistöðu Januzaj í leiknum sem geislaði af sjálfstrausti.
Seinni hálfleikur var rólegri, United menn voru miklu meira með boltann og stýrðu leiknum frá A-Ö. Þriðja markið kom svo frá Ashley Young sem kláraði fína viku hjá sér með því að klína boltanum upp í samskeytin eftir sendingu frá Wayne Rooney. 3-0. Leik lokið.
Ekki alveg því að jólasveinninn Büttner var í góðu skapi og færði Carlton Cole eitt mark í skóinn eftir að hann spilaði hann réttstæðann um fleiri tugi metra. Cole gerði vel og klárað færið. 3-1. Leik lokið.
Þetta var skemmtilegur leikur og þetta var klassísk Old Trafford frammistaða hjá okkar mönnum. Ekkert kjaftæði og leiknum var lokið löngu áður en dómarinn flautaði hann af. Það er eitthvað sem hefur vantað uppá og ég við bara endilega um meira svona.
Liðið spilaði eiginlega 4-3-3 á köflum þar sem Wayne Rooney dró sig mjög niður á miðjuna. Það virðist vera vænlegt til árangurs og hentar t.d. Tom Cleverley afar vel að hafa tvo á miðjunni með sér. Vörnin var virkilega örugg og það er alveg morgunljóst að Moyes á að reyna að forðast það að spila Vidic og Rio mikið meira. Það virðist allt vera öruggara með Evans og Smalling saman í miðverðinum. Rio og Vidic eru farnir að draga sig svo svakalega neðarlega á völlinn að allt liðið þarf að verjast mun aftar á vellinum.
Næsti leikur er svo 26. desember gegn Hull á útivelli.
David Moyes vs Big Sam!
Það er sæmilega bjart yfir okkar mönnum um þessar mundir eftir ansi myrka byrjun á desember-mánuði. 3 sigrar í röð án þess að fá á sig mark og leikmenn á borð við Tom Cleverley, Danny Welbeck og Ashley Young skoruðu mörk og spiluðu bara ágætlega.
Á morgun kemur Stóri Sam með West Ham í heimsókn á Old Trafford og krafan er einföld: 3 stig og mörk frá Young, Welbeck og Cleverley. Einfalt mál. Er það ekki?
Pottþétt ekki.
Robin van Persie er meiddur eins og kunnugt er og Moyes tilkynnti fyrir leikinn gegn Stoke í vikunni að Wayne Rooney væri meiddur í nára og væri tæpur fyrir jólaleikina. Persónulega held ég reyndar að Moyes sé að púlla klassískan Ferguson á þetta og Rooney verði mættur í byrjunarliðið á morgun. Carrick er ennþá meiddur og Vidic og Fellaini eru tæpir fyrir leikinn á morgun. Moyes tilkynnti einnig áðan á blaðamannafundi að Nani væri meiddur og yrði frá í einhverjar vikur.
Ég sé reyndar ekki eina einustu ástæðu afhverju Vidic ætti að koma inn í byrjunarliðið fyrir Evans/Jones/Smalling. Þeir hafa staðið sig með ágætum og mér finnst vörnin mun stöðugri þegar þeir Vidic og Rio eru ekki í liðinu. Það er af sem áður var.
Andstæðingurinn
Stóri Sam er í ákveðnum vandræðum með liðið sitt. Þrátt fyrir taktíska snilld sína situr hann í 17. sæti með lið sitt. Hann er reyndar kominn í undanúrslit í deildarbikarnum en West Ham á álíka miklar líkur á að komast í úrslitin og að jólin verði 23. desember í ár. (Jinx!)
Frammistaðan í deildarbikarnum og frammistaða Ravel Morrison á þessu tímabili eru jákvæðu punktarnir. Fyrir nokkrum árum var alltaf verið að tala um að Ravel væri nýjasta vonarstjarna Manchester United, Sir Alex Ferguson sparaði ekki stóru orðin um hann og Rio Ferdinand lét hafa eftir sér að hann myndi borga fyrir að fá að horfa á Ravel á æfingum, hvorki meira né minna. Hann var þó í stöðugum vandræðum utan vallar og Sir Alex og Manchester United gáfust hreinlega upp á kappanum. Menn þar á bæ gerðu sér þó nákvæmlega grein fyrir því hversu góður hann gæti orðið enda fékk Big Sam þessi ráð frá Sir Alex þegar hann keypti hann:
„I hope you sort him out because you will have a top-class player.“
Hann er ekki ennþá orðinn topp-topp-topp-topp-topp leikmaður en lífið í London hefur haft jákvæð áhrif á hann. Hann hefur sýnt frábær tilþrif á köflum og gæti gert okkur skráveifu á morgun, enda líklega ákafur í að sýna öllum á Old Trafford hvað þeir létu frá sér fara.
West Ham spilar þennan týpíska direct-stórkallabolta. Þeir verjast vel og treysta á skyndisóknir og háa bolta upp völlinn. Það mun ekkert koma á óvart á morgun í þeirra spilamennsku og spurningin verður bara hversu vel okkar menn verða klárir í þennan leik.
Byrjunarliðið
De Gea
Rafael Smalling Evans Evra
Jones Cleverley
Valencia Kagawa Januzaj
Welbeck
Mér finnst eina spurningamerkið í þessu byrjunarliði vera í sókninni og hvaða fjórir leikmenn fái tækifærið þar. Mér finnst líklegast að Welbeck byrji enda skoraði hann tvö mörk í síðasta deildarleik og staðreyndin er sú að Chicharito hefur bara verið algjörlega týndur í nánast öllum leikjunum sem hann hefur spilað á tímabilinu. Valencia, Kagawa, Young eða Januzaj eiga jafnmikla möguleika á að byrja leikinn og Kagawa ætti að fá sénsinn á nýjan leik, það er að segja ef hann hemur sig í kvöldmatnum í kvöld.
Þessi jólatörn er gullið tækifæri fyrir okkur að saxa á forystusauðina sem spila innbyrðis í næstu umferðum á meðan við mætum West Ham, Hull og Norwich. Við vitum að það er ekkert gefið á þessu tímabili en ef við getum ekki gert kröfu um 9 stig úr þessum leikjum er alveg eins gott að hætta þessu bara.
Leikurinn hefst klukkan 15.00 á morgun, laugardag.
Stoke 0:2 Manchester United
Eins og undanfarið var byrjunarliðið búið að leka til David McDonnell, blaðamanns á Daily Mirror, @DiscoMirror áður en nokkur annar birti það.
De Gea
Rafael Smalling Evans Evra
Cleverley Jones Anderson
Valencia Young
Welbeck
Varamenn: Johnstone, Hernandez, Nani, Fletcher, Kagawa, Büttner, Zaha
Þegar þetta lið var birt var ekki laust við að ég óttaðist að þriggja manna miðjan yrði aðeins of neikvæð. Það kom í ljós að það reyndist nokkuð rétt og nákvæmlega ekki neitt gerðist í fyrri hálfleik, utan að dómarinn tók leikmenn útaf í 5 mínútur þegar hríðin var orðin svo þétt að hann sá ekki út úr augum. Reyndar hjálpar ekki að skýrsluhöfundur sofnaði yfir leiknum og svaf fram í seinni hálfleik. Moyes hefur líklega heyrt af þessu því hann kippti Anderson útaf og setti Hernandez inná. Það tók ekki langan tíma ða bera ávöxt. Ashley Young sem hafði verið jafn slakur og alltaf kom á blússandi ferð upp miðjuna, gaf á Hernandez og fékk boltann beint til baka og bombaði í netið utan teigs. Sørensen hafði fingur á boltanum en hefði eins getað verið að stoppa fallbyssukúlu. Gjörsamlega ótrúlegt mark úr ótrúlegri átt. Young fagnaði enda gríðarlega þessu fyrsta marki frá maí 2012, hvarf inn í stuðningsmannahópinn fyrir aftan markið og uppskar gult spjald fyrir.
United voru síðan mun betri eftir markið, fóru að spila mun betur. Young sýndi betur hvað hann gat með skemmtilegu skoti sem fór um 20m framhjá. Svona til að kóróna underlegheit þessa leiks átti hann síðan snyrtilega sendingu á Evra sem komst á auðan sjó í teignum og skoraði með frábæru bananaskoti.
Hápunktur þess sem eftir var þegar Fletcher kom loksins inná og fékk óð sér til heiðurs frá stuðningsmönnunum í gestastúkunni sem voru gjörsamlega frábærir í kvöld, héldu uppi stemming frá fyrstu til síðustu mínútu. Þeir sungu „If Fletcher scores, we’re on the pitch“ og fengu fyrir vikið óslitna línu vallarvarða fyrir framan sig. Fletcher skoraði þó ekki í leiknum, tók ekki ráðum stuðningsmanna sem hvöttu hann til að skjóta hvenær sem hann fékk boltann.
Þetta stefndi allt í leiðinlegasta leik vetrarins en tvö frábær mörk björguðu málum.
Stoke City og Darren Fletcher á morgun
Á morgun Darren Fletcher fer United Darren Fletcher í heimsókn Darren Fletcher til Stoke Darren Fletcher í fjórðungsúrslitum Darren Fletcher deildarbikarsins. Af Darren Fletcher óviðráðanlegum ástæðum Darren Fletcher missti upphitari Darren Fletcher af leiknum Darren Fletcher um helgina og Darren Fletcher hefur því Darren Fletcher ákveðið að einbeita sér Darren Fletcher að stærstu fréttunum Darren Fletcher úr þeim leik
I do not have ulcerative colitis. I have come through that now. I am leading a normal life. It has all been a success. I am just like anyone else.
This is it, I’m back for good. This is hopefully the game which means I’m back now. I seem to have come through the setbacks and health issues and I’m thankful for that. It’s onwards and upwards now.
I’m still building up my fitness, but I don’t want to take it easy. I’ve done enough of that, and I want to be involved, to get us back to where I know we should be. I think that’s the biggest determination for me.
Að segja að Darren Fletcher þessar fréttir Darren Fletcher séu góðar Darren Fletcher er úrdráttur Darren Fletcher ársins. Það hafa Darren Fletcher verið skrifaðir Darren Fletcher doðrantar um Darren Fletcher miðjuvesen United Darren Fletcher síðustu ár, en við getum Darren Fletcher ekki horft Darren Fletcher framhjá því Darren Fletcher að við höfum Darren Fletcher misst tvo bestu Darren Fletcher miðjumenn okkar Darren Fletcher síðustu 6 ár í Darren Fletcher óendanleg meiðsli. Nú virðist Darren Fletcher svo sem Darren Fletcher Darren Fletcher sé hreinlega Darren Fletcher læknisfræðilegt kraftaverk og að Darren Fletcher aðgerðirnar sem Darren Fletcher hann fór í Darren Fletcher hafi Darren Fletcher hreinlega unnið bug Darren Fletcher á hinni Darren Fletcher illvígu sáraristilbólgu. Ég Darren Fletcher er of Darren Fletcher mikill efasemdarmaður Darren Fletcher til að slá Darren Fletcher þessu föstu Darren Fletcher en get Darren Fletcher ekki hamið Darren Fletcher vonina. Ef rétt Darren Fletcher reynist verður Darren Fletcher gamla klisjan „It’s just like a new signing“ réttari en Darren Fletcher nokkru fyrr.
Því spái Darren Fletcher ég liðinu Darren Fletcher á morgun Darren Fletcher svona enda verða Darren Fletcher einhverjar róteringar:
De Fletcher
Rafletcher Jonfletcher Smafletcher Fabfletcher
Zafletcher Fletcher Anderfletcher Janufletcher
Welfletcher Chifletcher
Nú um Darren Fletcher helgina hafa Darren Fletcher íslensku miðlarnir Darren Fletcher loksins tekið Darren Fletcher almennilega eftir Darren Fletcher James Wilson Darren Fletcher sem við Darren Fletcher höfum gert Darren Fletcher smá skil Darren Fletcher af og Darren Fletcher til í Darren Fletcher vetur, aðallega Darren Fletcher á fésbókinni Darren Fletcher og twitter, Darren Fletcher enda hefur Darren Fletcher hann verið Darren Fletcher að setja Darren Fletcher mörkin í Darren Fletcher röðum og Darren Fletcher yfirleitt hvert Darren Fletcher öðru smekklegra. Darren Fletcher Hann er Darren Fletcher þó enn Darren Fletcher ekki kominn Darren Fletcher með skráningu Darren Fletcher í aðalhópinn Darren Fletcher og við Darren Fletcher þurfum Darren Fletcher að bíða Darren Fletcher enn eftir Darren Fletcher að sjá Darren Fletcher hann leika.
Að lokum Darren Fletcher smá óður Darren Fletcher til, hvers Darren Fletcher annars, Darren Fletcher