• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Rauðu djöflarnir

  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
  • Forsíða
  • Hópurinn
  • Greinasafn
  • Twitter
  • Leikir
  • Meiðsli
  • Djöflavarpið
Pistlar

Hillsborough: loksins sannleikurinn

Björn Friðgeir skrifaði þann 12. september, 2012 | 4 ummæli

Fyrir 23 árum fóru 96 knattspyrnuáhugamenn á fótboltaleik og komu aldrei heim aftur.

Það er ekki ofsögum sagt að dagurinn í dag sé einn sá merkilegasti í knattspyrnusögu Englands. Loksins hefur hulunni verið svipt af tuttugu og þremur árum af yfirhylmingu, lygum og svikum af hálfu yfirvalda, lögreglu og annarra sem öll beindust að því að koma ábyrgð á ölvaða áhorfendur í stað þess sem raunin var að öll ábyrgð var á höndum yfirvalda, mistökum þeirra og vanrækslu má kenna um allt sem gerðist.

Forsætisráðherra Bretlands baðst í dag fullrar afsökunar á öllum þessum misgjörðum eftir að birtar hafa verið niðurstöður nefndar sem safnaði saman gríðarlegu magni gagna um slysið, stór hluti af þeim höfðu verið haldið leyndum öll þess ár. Í framhaldinu verða vonandi þeir sem ábyrgð bera á vanrækslu við löggæslu á leiknum, aðgang neyðarþjónusta og síðan yfirhylmingunni allri sóttir til saka

Það hefur verið gríðarlega áhrifamikið að fylgjast með atburðum dagsins og yfirlit yfir niðurstöður rannsóknarinnar eru sláandi, og þá eins nálægt því í bókstaflegri merkingu og hægt er að komast við lestur einn saman.  Ef það var einhver eftir sem hafði sem mikið sem minnstu hugmyndir um að þetta hefði nú að einhverju leyti þessu fulla fótboltapakki að kenna, Englendingar væru jú bara byttur, þá er alveg óhætt að segja að viðkomandi getur straujað þær hugsanir út úr sínum huga.

Þetta hefði getað komið fyrir hvaða stuðningsmannahóp sem er og sýnir hvers konar fyrirlitning var kerfislæg í lögreglunni og stjórnkerfinu gegn fótboltaáhorfendum á þessum tíma, fyrirlitning sem átti rætur sínar í stéttaskiptingu og fyrirlitningu á verkamannastétt. Þess vegna er þessi dagur hafinn yfir allan félagaríg. Stéttaskiptingin í Englandi er nefnilega eitthvað sem við Íslendingar áttum okkur sjaldnast á, og jafnvel þó við vitum af henni þá kemur sú vitund ekki nægilega inn í almennan þankagang okkar.

Það er ekki hægt að óska Liverpool til hamingju með daginn, til þess var harmleikurinn of stór. En það er samt hægt að fagna því að í dag sigraði sannleikurinn. Réttlætið mun svo vonandi fylgja í kjölfarið.

Efnisorð: Minningar 4
Landsleikir Leikmenn

United menn í landsliðsverkefnum, seinni hluti

Björn Friðgeir skrifaði þann 12. september, 2012 | 2 ummæli

Heimsmeistarakeppnin 2014

Þá eru seinni leikir þessara landsleikjahrinu búnir og þetta var mis-skemmtilegt fyrir okkar menn.

Robin van Persie meiddist á læri í leik Hollendinga og Ungverja og fór útaf í hálfleik, en að sögn Louis van Gaal, stjóra Hollendinga var það aðeins varúðarráðstöfun þannig að við vonum að hann verði með á laugardaginn kemur. Shinji Kagawa varð fyrir einhverjum bakeymslum fyrir leik Japan og Írak og byrjaði ekki leikinn, en hann segir sjálfur að það sé ekki alvarlegt. Kæmi þó svo sem ekki á óvart þó þeir yrðu hvíldir á móti Wigan.

Tom Cleverley var eini United maðurinn sem byrjaði í leik Englands og Úkraínu og stóð sig vel en brenndi tveim upplögðum marktækifærum og fær því ekki góða dóma. Danny Welbeck kom inn á fyrir hann í seinni hálfleik og átti stóran þátt í að England náði að skrapa jafntefli. Carrick kom ekki inná.

Jonny Evans spilaði aftur allan leikinn fyrir Norður-Íra í 1-1 jafntefli við Lúxemborg, vonum að þessi meiðsli hans séu ekki alvarleg og hann sé ekki að eyðileggja ökklann fyrir okkur. Robbie Brady lék sinn fyrsta leik fyrir Íra og skoraði mark og lagði upp tvö önnur í vináttuleik gegn Óman. Góð byrjun hjá þessum tvítuga strák sem var á láni hjá Hull City í fyrra og lék í bakverðinum í upphitunarleikjum United.

Joshua King kom inná sem fyrr fyrir Noreg og þótti frískur í 2-1 sigri á Slóvenum. Evra lék allan leik Frakka gegn Hvítrússum en Nani var tekinn útaf eftir 76 mínútur í 3-0 sigri Portúgal gegn Aserbaídsjan.

Antonio Valencia var rekinn útaf á síðustu mínútu í 1-1 jafntefli Ekvador og Úrúgvæ og missir af næsta leik. Sleppur þó ekki við ferðalög þá, þarf að leika seinni leikinn í tveggja leikja hrinu. Síðast en ekki síst skoraði Javier Hernandez eina mark leiksins þegar Mexíkó vann Kosta Ríka.

Þannig það verða Chicharito og Welbeck frammi móti Wigan og Robbie Brady á bekknum, eða hvað?

2
Landsleikir Leikmenn

United menn í landsliðsverkefnum

Sigurjón skrifaði þann 8. september, 2012 | 2 ummæli

Eins og við Íslendingar vitum manna best þá var spilað í gærkvöldi í undankeppninni fyrir heimsmeistaramótið. Nokkrir leikmenn Man Utd voru í eldlínunni og því við hæfi að minnast á gengi þeirra.

Tom Cleverley, Michael Carrick og Danny Welbeck spiluðu allir í 5-0 stórsigri Englands á Moldavíu. Carrick kom inn á í hálfleik fyrir Gerrard og Welbeck komu svo inn á þegar um 20 mínútur voru eftir af leiknum. Báðir stóðu sig ágætlega en bestur United manna var klárlega Cleverley sem átti afskaplega góðan dag á miðjunni. Hann spilaði allan leikinn fyrir framan Lampard og Gerrard/Carrick, var mjög sprækur og fiskaði vítaspyrnu sem skóp fyrsta mark Englendinga. Frábær opnun hjá stráknum en þetta var fyrsti alvöru landsleikur hans fyrir England.

Robin van Persie spilaði allan leikinn fyrir Holland í 2-0 sigri liðsins á Tyrkjum. Drengurinn hélt uppteknum hætti og skoraði fyrsta mark liðsins, ekki ósvipað og mark hans gegn Southampton þar sem hann stýrði knettinum með skall beint úr hornspyrnu. Frábærlega gert hjá Persie og greinilegt að hann er sjóðandi heitur þessa dagana!

Nani spilaði 81 mínútur í 2-1 sigri Portúgal á Lúxemborg, ekki mikið annað að frétta af honum í þeim leik.

Jonny Evans spilaði allan leikinn fyrir Norður-Íra gegn Rússlandi. Írarnir töpuðu reyndar 2-0 en 90 mínútna endurkoma Evans eru frábærar fréttir fyrir klúbbinn. Ef allt gengur að óskum þá verðum við með þrjá heila miðverði klára í leikinn gegn Wigan.

Patrice Evra spilaði allan leikinn fyrir Frakka í 1-0 sigri gegn Finnlandi.

Joshua King þarf varla að kynna til leiks. Spilaði um 25 mínútur fyrir Noreg gegn Íslandi og hleypti töluverðu lífi í leik Norðmanna. Byrjaði á því að setja boltann í netið framhjá Hannesi, en var dæmdur rangstæður. Síðan komst hann einn inn fyrir vörnina en Hannes lokaði vel á hann og svo rétt fyrir leikslok skallaði hann í þverslána. Góð innkoma hjá stráksa, en ekki nóg!

Antonio Valencia spilaði allan leikinn fyrir Ekvador gegn Bólivíu. Kallinn var víst nokkur ferskur í leiknum en Bólivía spilaði sterka vörn allan leikinn. Það var ekki fyrr en á 71 mínútu að Ekvador skoraði úr umdeildri vítaspyrnu og þar við sat.

Javier Hernandez spilaði í 2-0 sigri Mexíkó gegn Kosta Ríka en setti ekki mark sitt á leikinn að þessu sinni.

2
Lesefni

Rauðu djöflarnir lesa

Tryggvi Páll skrifaði þann 6. september, 2012 | 3 ummæli

Það er af nógu að taka í United-heimum þessa vikuna. Við tókum saman það allra áhugaverðasta fyrir ykkur að lesa og skoða svona á meðan beðið eftir er að þessir paurans landsleikir líði hjá.

Beautifully Red er frábært framtak hjá ungum Breta. Hann tekur saman nokkur af bestu atvikunum í leikjum liðsins og býr til gif-myndir. Þar sem annarhver maður á Íslandi er með svona gif-síðu er þetta skemmtileg tilbreyting og skylduskoðun fyrir hvern United-mann. Hér má nálgast nýjustu færslu hans sem sýnir fimm bestu atvikin úr leiknum gegn Southampton.

The United Religion telur að Van Persie muni slá í gegn hjá United

Rooney játar að hafa snúið til baka eftir sumarleyfi of þungur

By Far The Greatest Team kemur með ástæður fyrir því að United ætti ekki að vilja Ronaldo til baka

Bolt gæti spilað fyrir United í góðgerðarleik gegn Real Madrid

Soccerlens fjallar um viðskipti United á leikmannamarkaðinum þetta sumarið

Here Is The City veltir fyrir sér ástæðum fyrir brotthvarfi De Gea úr byrjunarliðinu.

Stretford End fjallar um nýjustu kaup United, Angelo Henriquez og ræðir við breskan blaðamann sem er staðsettur í Argentínu og veit allt um þennan ágæta leikmann. 

Tosic sér eftir því að hafa yfirgefið United.

3
Leikmenn

Ángelo Henríquez er orðinn Manchester United leikmaður

Magnús Þór skrifaði þann 5. september, 2012 | 2 ummæli

Ángelo Henríquez ásamt Sir Alex Ferguson

Þá eru félagsskipti Ángelo Henríquez frá Universidad de Chile til Manchester United loksins formlega frágengin. Nokkuð er síðan að Henríquez fékk atvinnuleyfi á Englandi og er hann því núna United leikmaður. Henríquez mun leika í treyju nr.21 í vetur. Kaupverðið var ekki gefið upp en er talið vera í kringum 4 milljónir punda.

Henríquez er fæddur 13.apríl 1994 í Santiago, Chile. Hann er uppalinn hjá Universidad og spilaði 17 deildarleiki fyrir þá og skoraði 11 mörk. Hann hefur leikið með öllum yngri landsliðum Chile, samtals 18 leiki og skorað 21 mark. Þess má til gamans að geta að hann skoraði 14 mörk í 9 leikjum með U-20 ára liði Chile.

Sir Alex segist hafa fylgst með leikmanninum frá því hann var 14 ára og þegar hann varð 18 ára þá vissi hann að við gætum fengið hann. Samkvæmt Fergie þá er hann snöggur, sterkur og góður slúttari miðað við aldur.

Ekki er ólíklegt að Ángelo Henríquez muni koma eitthvað við sögu þetta tímabil.

Efnisorð: Angelo Henriquez 2
  • « Go to Previous Page
  • Page 1
  • Interim pages omitted …
  • Page 439
  • Page 440
  • Page 441
  • Page 442
  • Page 443
  • Interim pages omitted …
  • Page 446
  • Go to Next Page »

Primary Sidebar

Síðustu ummæli

  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • binance account um 96. þáttur – Vörn, miðja, kantur eða sókn? Hvaða staða þarfnast mest styrkingar?
  • Vivod iz zapoya na domy_vmKt um Jóla jóla jólaleikur á morgun
  • Mr.T um Liðið í Manchester slagnum
  • Arni um Liðið í Manchester slagnum

Tístvélin

Tweets by @raududjoflarnir

Facebook

Rauðu djöflarnir

Footer

Rauðu djöflarnir

  • Um okkur
  • Reglur

Fantasy deildin

Vertu með í Fantasy leiknum okkar!

Kóði: 1997321-460021

Leit

  • Um okkur
  • Reglur

Rauðu djöflarnir © 2026 · Keyrt á WordPress